Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 14.01.1993, Qupperneq 6

Fréttir - Eyjafréttir - 14.01.1993, Qupperneq 6
Fimmtudaginn 14. janúar 1993 - Á morgun er upp á dag eitt ár frá því skrifað var undir samning milli Norsk Hydro og Vestmannaeyjabæjar um kaup á Sorpeyðingarstöðinni. A myndinni eru Guðjón Hjörleifsson og Johannes Akkerhaugen að skrifa undir samninginn. Sorpeyðingarstöð Vestmannaeyja: Tæknilegar upplýsingar fyrsta sorpeyðingarstöðin á íslandi sem framleiðir orku. Ekki bara rusl v líka orka j Gunnar S forstöður Gaman taka þát Gunnar Sigurðsson var í sumar ráðinn forstöðumaður Sorpeyð- ingarstöðvar Vestmannaeyja og hefur hann síðan tekið fullan þátt í uppbyggingu hennar. Honum til halds og traust er Guðmundur Richardsson. Gunnar er vélstjóri og kom beint af sjónum þegar hann byrjaði í SV. Gunnar segir að allt hafi gengið að óskum við byggingu stöðvarinnar. „Allur frágangur tækja, húss og Aðkeyrslan að stöðinni er mjög snyi Sorpeyðingarstöðin er á tveimur hæðum. Á efri hæðinni er sorpmót- taka ásamt stjómherbergi þar sem Gunnar Sigurðsson forstöðu- maður og Guðmundur Richards- son verða við stjórnvölinn. Sorp sem berst til stöðvarinnar er losað í stórt steypt síló. Stórgert sorp, eins og fiskikör bygginga- timbur er malað í sérstakri kvörn sem er ofan við sílóið. Fellur það aftur ofan í sílóið. Sorpið er síðan krabbað upp á færiband sem mat- ar brennsluofninn sjálfvirkt. Getur bandið unnið sjálfvirkt í sex klukk- ustundir án þess að mannshöndin komi þar nærri. Ofan á ofninum er stokkur með tvöföldum lokum þar sem sorpið er tekið inn. Efri lokan opnast fyrst og lokast hún um leið og stokkurinn fylhst. Þá opnast neðri lokan og sorpið fellur ofan í ofninn. Er þetta gert til að hindra að reykur komist upp úr ofninum. Sorpið er brennt í forbrennslu- hólfi ofnsins við 850 - 900 gráðu hita og er reykurinn frá þeim bruna leiddur inn í annað eldhólf þar sem seinni hluti brunans fer fram og er hitinn þar 850 gráður. Þar brenna öll kolefni og önnur hættuleg efni. Þaðan fer reykurinn inn í fellihólf þar sem hann hreins- r Hreinn bær y < okkurkær j ast enn frekar. Ur ofninum fer reykurinn í gegnum varmaskipti er nýtir varmann sem myndast við bruna sorpsins. Það sem eftir er af reyknum fer út um 20 metra háan skorstein og er hann þá orðinn litar- og lyktarlaus. Askan, 3% - 5% af rúmmáli sorpsins, safnast í snigil undir ofninun og er honum stjórnað af hugbúnaði stöðvarinnar. Fer ask- an í lokaðan gám. Hönnun Sorpeyðingarstöðvar- innar er með þeim hætti að undir- þrýstingur er í sorpmóttökustöð- inni og öll lykt sem kemur frá því er leitt inn í ofninn og brennd þar. Þar af leiðandi finnst engin lykt í eða við stöðina. Enda er það ekki það fyrsta sem manni dettur í hug; að í stöðinni sé brennt sorp þegar komið er að henni eða inn fyrir dyrnar í Sorpeyðingarstöð Vestmannaeyja. Eiríkur Bogason veitustjóri: Hiti í 200 hús Sorpeyðingarstöð Vestmanna- eyja er tímamótafyrirtæki í fleirum en einum skilningi. Með brennslu sorpsins myndast orka og verður hún nýtt til hitunar húsa í bænum. Eiríkur Bogason veitustjóri seg- ir að gert sé ráð fyrir miUi 6 og 7 GWh orku sem er um 10% til 12% af orkuþörf bæjarins til húsahitun- ar. „Tekjur Sorpeyðingarstöðvar- innar af sölu þessarar orku er vel á 4. milljón króna og þýðir hita í 200 hús. Þetta er í fyrsta skipti hér á landi sem sorp er notað sem orku- gjafi til húshitunar. Þessir pening- ar sem sorpbrennslan fær í tekjur verða til innanbæjar og koma til lækkunar á sorpbrennslugjaldi bæjarbúa. Ég eins og aðrir Vest- mannaeyingar hlýt að vera mjög ánægður með að þetta skuli vera kleVt," sagði Eiríkur Bogason veitustjóri Bæjarveitna. Myndir úr byggingarsögu i Gamli tíminn. Bráðum heyrir gamla sorpbrennsla sögunni til. Ársæll Sveinsson verktaki og Ólafur Ólafsson bæjartæknifræðingur hafa borið hitann og þungann af byggingu stöðvarinnar. r fjC\ m’' Herjólfur Bárðarson, Viðar Guði Gunnar Sigurðsson og Guðmund

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.