Skessuhorn


Skessuhorn - 10.06.2009, Side 3

Skessuhorn - 10.06.2009, Side 3
Þjóðhátíð á Akranesi 2009 Dagskrá hátíðarhalda á 17. júní á Akranesi Akraneskaupstaður óskar Skagamönnum og landsmönnum öllum gleðilegrar þjóðhátíðar! 10:00-12:00 Þjóðlegur morgunn á Safnasvæðinu Byrjaðu þjóðhátíðardaginn með fjölskyldunni á Safnasvæðinu í léttri og þjóðlegri stemningu. Stundum er erfitt að bíða eftir því að allt fjörið hefjist á 17. júní og því tilvalið að taka forskot á skemmtilegan dag og mæta á Safnasvæðið! Andlitsmálun, blöðrur og þjóðhátíðarnammi. Þjóðlegt morgunkaffi - sannkallaður "Þjóðhátíðarbröns" í Garðakaffi. Opið og ókeypis á öll söfnin - Allir hvattir til að mæta í þjóðbúningum - þeir sem mæta í þjóðbúningi fá sérstakan glaðning! 13:00 Hátíðarguðsþjónusta í Akraneskirkju Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir messar. Ræða nýstúdents - Sigurmon Hartmann Sigurðsson. Kammerkór Akraness syngur. Minnt er á kaffisölu Kirkjunefndar í safnaðarheimilinu Vinaminni frá kl. 14:30 til 17:00. 13:30 Skrúðganga á Akratorg Gangan fer frá Tónlistarskólanum við Dalbraut 1 kl. 13:30 en gengið verður niður Kirkjubraut og á Akratorg, þar sem dagskrá þjóðhátíðardagsins fer fram að þessu sinni. Skólahljómsveit Akraness fer fyrir göngunni og leikur nokkur lög þegar komið er á Akratorg. 14:00 Hátíðardagskrá á Akratorgi Fánahylling Ávarp bæjarstjóra - Gísli S. Einarsson Ávarp fjallkonu - Guðrún Dögg Rúnarsdóttir Hátíðarræða dagsins - Guðfinna Rúnarsdóttir Fjölbreytt fjölskylduskemmtun á Akratorgi Að lokinni hátíðardagskrá verður boðið upp á fjölbreytta fjölskylduskemmtun á torginu þar sem fram koma m.a. Kristín Þóra Jóhannsdóttir, sigurvegari í Söngvakeppni framhaldsskólanna, blúshljómsveitin Ferlegheit, dansarar frá Mangó Stúdíó o.fl. o.fl. Hoppkastalar, andlitsmálun, leikir og skemmtun! 14:30 - 17:00 Kaffisala í safnaðarheimilinu Vinaminni Kaffisala í safnaðarheimilinu Vinaminni á vegum Kirkjunefndar Akraneskirkju. Glæsilegt kökuhlaðborð! Þjóðhátíðardagurinn verður viðburðaríkur á Akranesi í ár. Hátíðin fer fram með hefðbundnu sniði en aðalhátíðin verður að þessu sinni haldin á Akratorgi. Kynntu þér dagskrána og taktu virkan þátt í þessum skemmtilegasta degi ársins! Meðal dagskrárliða má nefna: Ekki missa af frábærri dagskrá á 17. júní! Dagskráin á 17. júní miðar að því að fjölskyldan finni öll eitthvað við sitt hæfi. Kynntu þér dagskrána vel og taktu virkan þátt í skemmtilegri þjóðhátíð! Sjáumst hress á 17. júní! 17. júní 2009 Nánari dagskrá hátíðarhalda á þjóð- hátíðardaginn 17. júní 2009 verður dreift í öll hús á Akranesi á næstu dögum. Kynnið ykkur dagskrána og takið virkan þátt í skemmtilegum degi!

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.