Skessuhorn


Skessuhorn - 30.01.2013, Qupperneq 7

Skessuhorn - 30.01.2013, Qupperneq 7
Nú er þjóðráð að vera með í kynningu á Vesturlandi! Ákveðið hefur verið að gefa út ímyndarblað fyrir Vesturland. Auk venjubundinnar dreifingar Skessuhorns verður því einnig dreift með Morgunblaðinu miðvikudaginn 20. febrúar nk. Sérstök áhersla verður lögð á atvinnulíf á Vesturlandi og að laða fram jákvæðar nýjungar, styrkleika og sóknarfæri landshlutans. Markhópar blaðsins eru annars vegar fyrirtæki sem hugsanlega vilja flytja starfsemi sína á Vesturland og hins vegar einstaklingar sem hingað gætu hugsað sér að flytja búferlum. Samstarfsaðilar Skessuhorns í þessu verkefni eru Vaxtarsamningur Vesturlands, Faxaflóahafnir, Norðurál og Spölur, en þrjú þessara fyrirtækja fagna 15 ára afmæli um þessar mundir. Kynning verður m.a. á öllum sveitarfélögum á Vesturlandi og styrkleikum þeirra. Gert er ráð fyrir að blaðið verði 64 síður í hefðbundnu dagblaðabroti. Samanlögð dreifing með Morgunblaðinu og til kaupenda Skessuhorns er um 35 þúsund eintök. Þeir sem vilja nýta tækifærið og auglýsa í þessu blaði er bent á að hafa samband og leggja inn pöntun hjá markaðsdeild Skessuhorns í síma 433-5500 eða senda tölvupóst á palina@skessuhorn.is fyrir 6. febrúar nk. Athygli er vakin á því að um takmarkað auglýsingapláss er að ræða. www.skessuhorn.is Starfsfólk Skessuhorns Ímyndarblað um Vesturland gefið út 20. febrúar 2013

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.