Gaflari - 03.07.2014, Side 2
2 - gafl ari.is
FRÉTTIR „Þessi áform komu mér mjög
á óvart eins og flestum öðrum. Það
lítur frekar gamaldags út að ætla að
flytja stofnun sem þessa í heilu lagi
á brott en mér er auðvitað umhugað
um hvaða áhrif það hefur í Hafnar-
firði að svo fjölmennum vinnustað í
bæjarfélaginu verði lokað,” segir Rósa
Guðbjartsdóttir, formaður bæjarráðs,
í samtali við Gaflarann. „Það var
fagnaðarefni þegar Fiskistofa flutti
starfsemi sína í bæinn fyrir átta árum
því svo fjölmennum vinnustað fylgja
ýmis samlegðaráhrif. Þótt ekki sé um
almenna þjónustustofnun fyrir bæjar-
búa að ræða þá starfa hjá stofnuninni
tíu Hafnfirðingar og annað starfsfólk
sækir ýmsa þjónustu og verslun í
bæjarfélaginu.“
Áformin mikil vonbrigði
Rósa sagði málið vissulega ekki
vera í höndum Hafnarfjarðarbæjar en
mikilvægt væri að láta í ljós óánægju
með gang mála. „Jú, ég geri mér grein
fyrir því að bæjarstjórn Hafnarfjarð-
ar hefur ekki ákvörðunarvald í þessu
efni en við lýsum vissulega yfir mikl-
um vonbrigðum með þessi áform.
Störfum á vegum hins opinbera hefur
fækkað verulega í bænum á undan-
förnum árum, einkum þegar starf-
seminni á St. Jósefsspítala var hætt
á einu bretti og mikil óvissa ríkir um
Sýslumannsembættið. Þetta er óá-
sættanlegt.“
Búið er að auglýsa stöðu bæj-
arstjóra og voru gerðar voru
athugasemdir við tengingu á ráðn-
ingu fjármálastjóra og mannauðs-
stjóra bæjarins við þessa ráðningu.
Er málið í réttum farvegi og hverj-
ar eru væntingar þínar til þessa? „Já,
okkur þótti eðlilegra að nýr bæjar-
stjóri hefði aðkomu að ráðningu í
þau störf og gagnrýndum reyndar
að störfin skyldu auglýst laus til um-
sóknar svo skömmu fyrir kosningar.
En umsóknarfrestur um bæjarstjóra-
starfið er til og með 13. júlí og vænti
ég þess að fjöldi góðra umsókna ber-
ist. Þetta er án efa skemmtilegt starf
og verkefnin framundan fjölbreytt og
krefjandi.“ Lesa má viðtalið við Rósu í
heild sinni á gaflari.is.
FRÉTTIR Skemmtikvöld Lollu
og Steina með Bingóívafi sam-
anstendur af uppistandi, upp-
lestri, leikþáttum, tónlist, gríni
og glensi. Þau Ólafía Hrönn Jóns-
dóttir og Þorsteinn Guðmunds-
son ætla í sumar að ferðast um
nágrannabæi Reykjavíkur og
skemmta bæjarbúum. Þau hefja
leikinn í Bæjarbíói næsta fimmtu-
dagskvöld kl. 22:00 Ekki missa af
hláturskasti sumarsins!
FRÉTTIR Hafnarfjarðarbær aug-
lýsir eftir bæjarstjóra í fyrsta
sinn
Hafnarfjarðarbær auglýsir eftir
öflugum aðila í starf bæjarstjóra.
Þetta er í fyrsta sinn sem starf
bæjarstjóra er auglýst en hingað til
hafa pólitískt kjörnir fulltrúar setið
í bæjarstjórastólnum, nú síðast
Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir,
bæjarfulltrúi Vinstri grænna.
Samkvæmt fréttatilkynningu
frá Hafnarfjarðarbæ þá er starf-
svið bæjarstjórans viðamikið
og felst meðal annars í því að
hafa yfirumsjón með starfsemi
bæjarfélagsins og annast fram-
kvæmd þeirra ákvarðana sem
bæjarstjórn og bæjarráð taka,
skipuleggja og undirbúa dagskrá
funda, sitja fundi bæjarstjórnar,
bæjarráðs og annarra ráða og
nefnda eftir atvikum og er fram-
kvæmdastjóri og æðsti yfirmað-
ur starfsfólks sveitarfélagsins.
Umsóknarfrestur rennur út 13. júlí
næstkomandi. Nánari upplýsingar
á hafnarfjordur.is.
Hláturinn
lengir lífið!
Hver verður
næsti bæjar-
stjóri?
Menntamálaráðuneyti í fýlu?
FRÉTTIR Kvikmyndasafn Íslands sýnir
ekki kvikmyndir í Bæjarbíói veturinn
2014 – 15. Þetta kemur fram í bréfi frá
Menntamálaráðuneytinu. Þar segir
einnig að sýningarvélar verði teknar úr
sambandi, myndvarpinn fjarlægður en
sýningartjaldið standi eftir. Náist ekki
samkomulag um sýningar Kvikmynda-
safnsins að ári þurfi hugsanlega að
meta þær endurbætur sem safnið
hefur gert á Bæjarbíói til verðs og
gjalda eins og það er orðað í bréfinu.
Kvikmyndasafn Íslands hefur haft
umráð yfir Bæjarbíói frá því árið
1997. Hafnarfjarðarbær ákvað
hins vegar að auglýsa eftir nýjum
rekstraraðilum með það í huga að
nýta húsið betur en áður hafði ver-
ið gert samfara því að Kvikmynda-
safnið héldi áfram sínum sýningar-
dögum. Rekstur bíósins var boðinn
út og gekk Hafnarfjarðarbær til
samninga við Menningar- og lista-
félag Hafnarfjarðar um rekstur
hússins í ár í tilraunarskyni. Þetta
nýja fyrirkomulag virðist ekki
hugnast Menntamálaráðuneytinu
og segir í bréfi þess að best sé
fyrir bæinn að vera óbundinn af
samningi við Kvikmyndasafnið á
meðan á tilrauninni standi. Ráu-
neytið leggur til að þráðurinn verði
tekinn upp í samningarviðræðum
eigi síðar en í mars til að kanna
hvort grundvöllur sé fyrir því að
kvikmyndasýningar á vegum Kvik-
myndasafnsins verði aftur teknar
upp veturinn 2016.
Erum á Facebook: Skottsala í Firði
í bílakjallaranum í Firði
laugardaginn 5. júlí
Opið frá 12.00 til 16.00
Stuð og stemmning
Komdu og grúskaðu
Prúttaðu og gerðu góð kaup
„Gamaldags að flytja stofnun
sem þessa í heilu lagi á brott“