Gaflari - 03.07.2014, Blaðsíða 8

Gaflari - 03.07.2014, Blaðsíða 8
8 - gafl ari.is Menntun? Er með B.ed. próf frá Háskól- anum á Akureyri. Hef lokið 60 einingum í M.ed. námi. Hvaða bók er á náttborðinu? Bókin Kuldi eftir Yrsu Sigurðardóttur. Þarf að fara að gefa mér tíma til að byrja á henni. Les helst svona reyfara. Eftirlætis kvikmyndin? Þær eru svo margar. Er mikill kvikmyndaáhugamað- ur. Schindler´s List er t.d. mjög ofarlega á blaði. Af nýlegum myndum get ég t.d. nefnt Vonarstræti og Fault in our Stars. Playlistinn í ræktinni? Er einn af þeim sem finnur alltaf afsakanir til að fara ekki í ræktina en þar sem ég ætla að taka 10 km í Reykjavíkurmaraþoninu í ágúst þá þarf ég nú að fara að drífa mig af stað. En ef ég hlusta á eitthvað þá er það á meistara Ragnar Bjarnason. Enginn sem kemur manni betur í gang en sá mikli stórsöngvari. Hvers vegna Hafnarfjörður? Hef alla tíð búið úti á landi og þegar kom að því að flytja á höfuðborgarsvæðið þá að sjálfsögðu varð Hafnarfjörður fyrir valinu enda einstaklega vinalegur bær, miðbær og höfn og allir þekkja alla. Yndislegur bær. Eftirlætismaturinn? Er mikill fisk- maður, það er ekkert sem toppar þorskhnakka að hætti Sigurborgar Geirdal. Eftirlætis heimilisverkið? Strauja. Þar sem ég er alltaf í jakka þá strauja ég bara framhliðina og þarf ekkert að vesenast með ermar og brot og svoleiðis vesen. Tekur enga stund. Helstu áhugamál? Samvera með fjöl- skyldunni, ferðast um Ísland, stjórnmál og kvikmyndir. Það sem gefur lífinu gildi? Fjölskyldan, hamingjan og húmor. Í sumar ætla ég? Hafa það ótrúlega notalegt með fjölskyldunni. Ferðast um landið og einnig njóta þess að vera með minni yndislegu konu, syni og stjúpdætr- um á Nönnustígnum í Hafnarfirði. Hvers vegna skólastjóri? Það er ótrú- lega gefandi og skemmtilegt starf. Það eru forréttindi að fá að vinna með börnum og fullorðnum. Skólastjóri þarf að leita leiða til að samþætta ólík sjón- armið og fá alla til að stefna í sömu átt, hvort sem það eru nemendur, starfs- menn eða foreldrar. Skemmtilegast við starfið? Fjöl- breytileikinn. Erfiðast við starfið? Það er í raun allt skemmtilegt en það getur tekið hressi- lega á þegar álagið verður mikið. Skondin saga úr vinnunni? Margar skemmtilegar sögur úr vinnunni. Ein ný- leg gerðist nú á vordögum þegar ég fór með nokkra nemendur úr 1. og 2. bekk um skólann. Vorum að fara í stofur og skoða hvort að reglur væru sýnilegar. Ég á það til að vera hvatvís og fer stundum fram úr sjálfum mér. Geng um gangana með tíu 6 og 7 ára kríli á eftir mér. Kem að stofu 106 og í stað þess að banka þá opna ég hurðina og auðvitað rjúka krílin inn í stofuna. Sé þá að þar inni er hjúkr- unarfræðingurinn með kynfræðslu fyrir nemendur í 9. bekk og myndefnið á tjaldinu var vægast sagt, já, myndrænt. Náði að smala krökkunum út á mettíma og held þau hafi ekki skaðast af þessari sýningu. Ég fékk allavega engin símtöl frá foreldrum. Síðasta smsið og frá hverjum eða til? Frá Halldóru systur en það hljómaði svona? Pabbi ætlar aftur að hlaupa, kemur þú ekki með? (og er þá að vísa hvort ég ætli ekki að taka þátt í Reykja- víkurmaraþoninu). Síðasti facebook status? Er mjög virkur á fésbókinni. Síðasta status var um ferðalag um Norðurland og hljóm- ar svona: Kominn heim á Nönnustíg eftir yndislegt ferðalag norður í land. Akureyri - Stórutjarnir - hvala- og fugla- skoðun á Húsavík - göngutúr og Jónsa- búð á Grenivík - Dalvík - Ólafsfjörður - Siglufjörður - Hofsós - Sauðárkrókur. Frábært að gista hjá Nonna bróður á Stórutjörnum og yndislegt að vera í Lónkoti í Skagafirði. Er frekar steikt- ur í andlitinu eftir ferðina enda norð- lenska sólin heitari en sú sunnlenska, það er bara þannig. Já og við fórum oft að veiða í þessari ferð og á meðan sú sæta mokaði inn þorskum, JGG tók kola og marhnúta, Víðir Jökull náði í nokkra marhnúta og krossfisk og Mar- ía og Óðinn tóku sitt þá sat ég uppi með minnsta fisk sem hefur veiðst á stöng. Og ég sem á að heita sjóarinn í hópnum. Skemmtilegt. Á föstudagskvöldið var ég? Heima með konunni minn að slappa af eftir ferðalagið. Ná upp eitthvað af þeim sjónvarpsþáttum sem við ,,misstum“ af í ferðalaginu. Auglýsingasími Gaflara 544 2100 auglysingar@gaflari.is TILVERAN KÍKT Í KAFFI Valdimar Víðisson er utan að landi en hefur svo sannarlega skotið rótum í Hafnarfirði. Hann er skólastjóri í Öldutúnsskóla þar sem hann stjórnar skólanum á faglegan en skemmtilegan hátt. Hann á það t.d. til að segja foreldrum og nemendum skemmtilegar sögur úr eigin lífi við sérstök tækifæri og það fellur svo sannarlega í kramið. Er einn af þeim sem finnur alltaf afsakanir til að fara ekki í ræktina GAFLARI MÆLIR MEÐ... Í SPILARANUM Bókasafninu. Þar sem margir inni- dagar virðast vera framundan er upplagt að ná sér í góða bók, dvd- mynd eða tónlist til að hlusta á. Svo er líka óskaplega notalegt að setjast þar niður, kíkja í dagblöðin, Alt for damerne og fá sér kaffisopa. Ekki skemmir fyrir að börnin una sér vel á meðan við að handfjatla litríkar bækurnar í barnadeildinni. Bókasafnið er opið alla virka daga frá kl. 10-19. L i t r í k u m regnkápum. Ef til vill verður litur- inn á regnfötun- um þínum það eina sem verður sumarlegt í sumar, hver veit? Í gulum, rauðum, grænum regnkápum – eins og regnbogi meist- arans, verður þetta kannski aðeins betra. Silja Úlfarsdótt ir, einkaþjálfari, er í sum- arfríi þessa dagana og þvælist m.a. um sveitir suðurlands. Silja segir að það sé erfi tt að fara í frí svona yfi r mitt sumarið á meðan allir helstu íþrótt amenn landsins eru á fullu í sinni iðkun og vilja æfa og styrkja sig um leið. Silja segir tónlistarsmekk sinn einfaldan. „ Ég veit ekki hvort ég á að þora að segja frá þessu en það dugar mér að setja bara MTV á og þá er ég glöð“ segir Silja hlæjandi. „Ég er svo mikill unglingur, ég þarf alltaf að hafa eitt hvað stuð í kringum mig.“ Silja er mikill aðdáandi Beyoncé og er þessi danstýpa. „Nýjasta æðið mitt er svona afrískt R&B tónlist, ég mæli t.d. með tónlistarmanninum OCD Fuse – öll lögin með honum fi nnst mér æði, sér- staklega Dangerous Love. Ég get ekki hlustað á róleg lög – ég þarf helst að dilla mér, alveg eins og þegar ég borða góðan mat þá dilla ég mér.“ Silja skorar á Hildi Erlingsdótt ur, stórvinkonu sína og starfsmann Flugfé- lags Íslands að opna plötuskápinn sinn.

x

Gaflari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gaflari
https://timarit.is/publication/1097

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.