Gaflari - 02.10.2014, Page 4
4 - gafl ari.is
Útgefandi: Bæjarfréttir ehf. - Kt. 521113-0300 • Ritstjórn og ábyrgðarmenn: Alda Áskelsdóttir, Erla Ragnarsdóttir, Helga Kristín Gilsdóttir (ritstjorn@gaflari.is) • Umbrot & hönnun: Prentun.is • Prentun: Prentun.is - Bæjarhrauni 22
Ljósmyndari: Helga Laufey Guðmundsdóttir • Upplag: 10.500 eintök Auglýsingar: Ólafur Guðlaugsson, sími: 544 2100, netfang: auglysingar@gaflari.
Undanfarið hef ég verið frekar upptekin af ýmiskonar frös-
um sem mér finnast jákvæðir og hafa góð áhrif á líðan mína
og hugarfar. Einn uppáhaldsfrasinn minn þessa dagana er:
„Hamingjan er hér og nú”. Mér finnst hann virka þokkalega
vel fyrir mig enda minnir hann mig á að bíða ekki eftir ham-
ingjunni og gleðinni - þið vitið þessu: „Þegar ég verð búin að léttast um 10 kíló
þá...” heldur að njóta líðandi stundar. Í sumar þegar ég leit t.d. út um gluggann
á hvern rigningardaginn á fætur öðrum fannst mér gott að að gjóa augunum
á bollann góða sem skartar þessari áletrun. Þrátt fyrir frasann góða verð
ég að viðurkenna að stundum fann ég pirringinn yfir veðrinu læsa klónum í
hnakkadrambið á mér. En þá þrástarði ég bara enn fastar á bollann góða. Og
þar sem mér finnst gott að sjá hlutina myndrænt fyrir mér ímyndaði ég mér
stundum þegar svona stóð á að ég væri köttur sem ríghéldi sér með klónum í
trjástofn en væri við það að renna niður og ef hann liti upp sæi hann förin eftir
klærnar svona eins og í teiknimynd... og já lundin léttist.
Undanfarið hef ég rekið augun í hverja greinina á eftir annarri þar sem fólk
stígur fram og segir frá ömurlegum högum sínum, segir frá að það hafi ekki
ráð á að kaupa mat fyrir börnin sín eða sjá þeim fyrir þeim nauðsynjum sem
flestum okkar þykir sjálfsagðar. Í Gaflaranum í dag er t.d. sagt frá því að
324 séu á biðlista eftir félagslegu húsnæði. Mikið skelfingar ósköp hlýtur
það að vera ömurleg tilfinning að eiga hvorki fyrir mat né húsaskjóli og allt
í einu fór ég að hugsa um hvort svona jákvæðnisfrasar eins og „Hamingjan
er hér og nú” fari í manngreinarálit og hvort þeir séu kannski verkfæri þeirra
betur stæðu til að gera minna fyrir þá sem búa við neyð. Er kannski gott að
geta falið sig á bak við frasa og sagt við þá sem minna mega sín: „Æi, hættu
nú þessu væli og mundu að hamingjan er hér og nú“. Hvernig í ósköpunum
er hægt að njóta líðandi stundar og vera hamingjusamur þegar fólk á ekki
fyrir salti í grautinn sinn í bókstaflegri merkingu? En þá poppar upp frasinn
sem segir að það sé „alltaf hægt að finna eitthvað til að gleðjast yfir.“ En við
hversu lítið á fólk að sætta sig og hversu langt á að ganga í Pollýönnu leiknum
– verðum við ekki bara að horfast í augu við það að það er engin hamingja
fólgin í því að eiga ekki fyrir nauðsynjum, bretta upp ermar og gera eitthvað í
þessu í stað þess að fela okkur á bak við frasana?
Alda Áskelsdóttir
Eru hamingjufrasar bara fyrir
forréttindahópa?
Leiðari ritstjórnar Gaflarans
„Betra fótboltaliðið
vinnur á laugardaginn“
FÓTBOLTI Úrslitaleikur Pepsídeildar-
innar árið 2014 fer fram í Kaplakrika
á laugardaginn en þá tekur FH á móti
Stjörnunni í hreinum úrslitaleik. Aðeins
tveimur stigum munar á þessum liðum
og FH-ingum dugar því jafntefli.
Óhætt er að segja að spennustigið í
Krikanum sé í hámarki þessa dagana
enda Íslandsmeistaratitillinn í húfi. „
Já, það er auvitað mikil spenna fyrir
þennan leik. Þetta er stórviðburður,
það er ekki hægt að segja annað,“ seg-
ir Jón Rúnar Halldórsson, formaður
knattspyrnudeildarinnar.“ En leikurinn
leggst vel í mig. Ég átti reyndar ekki
von á að þetta myndi spilast svona,
ég átti von á fleiri liðum í toppbarátt-
unni. En ég er mjög ánægður með mína
menn, allir eru heilir og ég treysti þeim
fullkomlega.“
Hvað mun ráða úrslitum á laugar-
daginn? „Betra fótboltaliðið vinnur
– það ræður úrslitum. Og við erum ein-
faldlega betri.“
FH-ingar hafa gefið út með hvaða hætti
miðasölu verði háttað fyrir leikinn og gera
þeir sér vonir um að áhorfendametið á
leik á Íslandsmótinu í knattspyrnu ,sem er
orðið 43 ára gamalt , verði slegið. Nú er því
lag fyrir Hafnfirðinga að fjölmenna á völl-
inn, allir sem einn. Sjá nánari upplýsingar
um fyrirkomulag miðasölu á fh.is.
Íslandsmeistaratitlinum hefur ávallt verið vel fagnað í Krikanum.