Gaflari - 13.11.2014, Side 4
4 - gafl ari.is
Útgefandi: Bæjarfréttir ehf. - Kt. 521113-0300 • Ritstjórn og ábyrgðarmenn: Alda Áskelsdóttir, Erla Ragnarsdóttir, Helga Kristín Gilsdóttir (ritstjorn@gaflari.is) • Umbrot & hönnun: Prentun.is • Prentun: Prentun.is - Bæjarhrauni 22
Ljósmyndari: Helga Laufey Guðmundsdóttir • Upplag: 10.500 eintök Auglýsingar: Ólafur Guðlaugsson, sími: 544 2100, netfang: auglysingar@gaflari.is
Er ekki löngu orðið ljóst að það skipulag sem hefur tíðkast í
stjórnmálum hér á landi og víðar er algjörlega úr sér gengið og
virkar bara alls ekki? Hvað er með þetta meirihluti og minnihluti?
Í bæjarstjórn sitja 11 fulltrúar sem bæjarbúar hafa kosið til að
gæta hagsmuna sinna og stjórna bænum eins og best verður
á kosið. Stundum held ég að bæjarfulltrúarnir gleymi þessi hlutverki sínu og að
meiri- og minnihluti séu fastir í viðjum vanans. Það virðist vera einskonar lögmál að
meirihlutinn sé á móti tillögum minnihlutans hversu góðar sem þær eru og minni-
hlutinn sé að sama skapi á móti tillögum meirihlutans hversu góðar sem þær eru.
Í kosningunum í vor var talað um að nú skyldi verða breyting á og að öll dýrin í
skóginum myndu vinna saman. Þrátt fyrir góðan ásetning virðist lítið þokast í
rétta átt, minnihlutinn kvartar allavega sáran undan því að lítið samráð sé haft við
hann um málefni bæjarbúa og nýverið var VG neitað um áheyrnarfulltrúa í tveimur
nefndum á vegum bæjarins. Og svo les maður í blöðunum að minnihlutinn sem var
í meirihluta á síðasta kjörtímabili hafði þáverandi minnihluta ekki með í ráðum
þegar samið var við HF verðbréf um verkefni sem kostaði bæjarbúa tæpar 120
milljónir króna. Hvaða rugl er það?
Allir bæjarfulltrúarnir eru kosnir til að vinna fyrir bæjarbúa hvort sem þeir eru
í meiri- eða minnihluta – og þiggja þeir laun fyrir það. Við bæjarbúar eigum
heimtingu á að þeir átti sig á þessu hlutverki sínu – slíðri sverðin og vinni saman. Ef
við snúum þessu stjórnunarháttalagi upp á fyrirtæki sér maður hversu hjákátlegt
það er. Hversu fáránlegt væri það ef hluti stjórnar fyrirtækis væri alltaf á móti
öllum tillögum og einu rökin væru: „Af því bara að svoleiðis hefur það alltaf verið.“
Elskulegu bæjarfulltrúar Hafnarfjarðar er ekki kominn tími til að brjóta blað í sögu
stjórnmálanna, koma upp úr skotgröfunum, taka höndum saman og vinna öll sem
eitt af heilum hug í þágu okkar bæjarbúa?
Alda Áskelsdóttir
Að vera á móti – af því bara!
Leiðari ritstjórnar Gaflarans
Traust og samstaða í Bæjar-
stjórn Hafnarfjarðar
AÐSEND GREIN Það eru mikil gæði
að eiga samstarfsfólk sem maður
getur treyst. Í mínum huga skiptir
það ekki mestu máli hvort maður er í
meiri- eða minnihluta. Það sem skiptir
mestu máli er að maður komi heiðar-
lega fram og leggi sig allan fram við að
vinna fyrir sveitarfélagið sitt af alúð.
Ég hef setið í bæjarstjórn Hafnar-
fjarðar í rúm átta ár. Fyrstu fjögur
árin sat ég í minnihluta með þrem
fulltrúum Sjálfstæðisflokksins og sjö
fulltrúar Samfylkingarinnar sátu þá í
meirihluta. Á þessu fyrsta kjörtímabili
náðist smám saman ákveðið jafnvægi
og traust bæði inni í ráðum og í bæj-
arstjórn sjálfri. Í flestum málum náð-
um við að stíga vel í takt en stundum
tókumst við líka vel á, en þau átök voru
alltaf út frá pólitík og hugmyndafræði.
Náið samstarf
Næstu fjögur ár sat ég í meirihluta
ásamt fimm fulltrúum Samfylkingar-
innar. Við upphaf þess kjörtímabils var
mikið samstarf á milli okkar oddvita
stjórnamálaflokkanna í bæjarstjórn.
Við unnum saman að undirbúningi að
fjárhagsáætlun, héldum sameigin-
legan íbúafund um fjárhagsáætlunina,
unnum náið og saman að endurskoðun
á samskiptum Hafnarfjarðarkaup-
staðar og Rio Tinto Alcan sem endaði
með sameiginlegri yfirlýsingu beggja
aðila og svo mætti halda áfram að
telja. Því miður þóaðist þessi sam-
vinna á verri veg þegar líða tók á kjör-
tímabilið. Það var ljóst að ekki voru
allir jafn sáttir með þá nánu samvinnu
sem skapaðist hafði með okkur odd-
vitunum. Taktur þessarar samvinnu
breyttist því þegar líða tók á kjör-
tímabilið. Ég hef átt náið samstarf við
einstaka fulltrúa Sjálfstæðisflokksins
en hið nána samstarf sem var á milli
okkar oddvitanna var ekki hægt að
endurnýja, því miður.
Vantraust og sundrung
Nú á nýju kjörtímabili er ég aftur
komin í mitt gamla hlutverk í bæjar-
stjórn Hafnarfjarðar. Sit í minnihluta
en að þessu sinni með þremur full-
trúum Samfylkingar og sjö fulltrúum
Sjálfstæðisflokks og Bjartrar fram-
tíðar í meirihluta. Ég hins vegar er
ég reynslunni ríkari og bý yfir mikilli
þekkingu eftir að hafa tekið þátt í
bæði minni- og meirihluta síðustu átta
árin. Ég hef líka þroskast sjálf, enda
átta árum eldri en þegar ég tók sæti
í bæjarstjórn. Ég mun ekki láta bjóða
mér það að vera krafin um samstöðu
í einu orðinu en síðan verða fyrir póli-
tískum árásum í hinu orðinu. Nú þegar
eru því miður komin nokkur dæmi um
slík vinnubrögð núverandi meirihluta
bæjarstjórnar. Þar er mikið rætt um
mikilvægi samstöðu en á sama tíma
gert í því að reyna að draga fram alls
kyns atriði frá fráfarandi meirihluta
sem gerð eru tortryggileg (eins og
kostnaður við ráðgjöf og vinnu við
endurfjármögnun), lausnir í húsnæði
Áslandsskóla og svo mætti lengi telja.
Ég verð því miður að segja að vinna
núverandi meirihluta Sjálfstæðis-
flokks og Bjartrar framtíðar kallar ekki
á traust, samstöðu eða mikla sam-
vinnu. Það er því ekki hægt að segja að
það sé mikið traust eða mikil samvinna
í Bæjarstjórn Hafnarfjarðar í dag. Rétta
lýsingin er því miður mikið vantraust,
samstöðuleysi og sundrung.
Ég ætla samt að leyfa mér að lifa í
þeirri von að þetta muni breytast því
það eru mikil gæði að eiga samstarfs-
fólk sem maður getur treyst og unnið
með.
Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir,
bæjarfulltrúi Vinstri grænna í
Hafnarfirði
Í SPILARANUM
Hvað er í spilaranum
hjá Magnúsi Sig-
mundssyni?
Guðmundur Pedersen skoraði
síðast á félaga sinn, Magnús
Sigmundsson. Magnús vinnur hjá
HS-Veitum hér á Hafnarfjarðar-
svæðinu ásamt því að þjálfa
handbolta hjá FH með Guðmundi.
Hann þjálfar einnig markmennina
í flestum flokkum í félaginu. Það
kennir ýmissa grasa á spilaran-
um hjá Magnúsi. „Það sem ég hef
verið að hlusta á í gegnum tíðina
er Queen, U2, Phil Collins, Cran-
berries.
Og af þessu hér heima er Sálin
vinsæl á mínu heimili, eins Bubbi
og þá sérstaklega í bílskúrnum
hjá mér.“ Magnús segist fá sinn
skerf af öllu því nýjasta því það sé
vinsælt að hlusta
á FM 957 heima og
í bílnum þannig að
hann er vel með á
nótunum. Magnús
skorar á Hjört Hinriksson, „betur
þekktur sem örvhenta undrið“,
segir Magnús og hlær.
gaflari.is
Auglýsingasími
691 7030
auglysingar@gaflari.is