Gaflari - 13.11.2014, Qupperneq 9
gafl ari.is - 9
Frábær golfnámskeið fyrir
krakka á aldrinum 4-10 ára
Nú ætlum við í Keili að bjóða upp á SNAG-golfæfingar (golfþrautabraut)
fyrir krakka 4-10 ára á laugardögum í Hraunkoti, æfingasvæði Keilis í vetur.
Æfingar verða á laugardögum, 18 vikur frá 22. nóvember.
Þátttökugjald fyrir 4-5 ára er 7.000 kr. (ekki niðurgreitt af Hafnarfjarðarbæ).
Fyrir 6-10 ára kostar 12.000 kr. (full niðurgreiðsla frá Hafnarfjarðarbæ).
Kylfur á staðnum fyrir alla.
Þátttakandi þarf að vera í
fylgd með fullorðnum.
Aldurskipting og mæting:
4-7 ára kl. 09:15 – 10:00
8-10 ára kl. 10:00 – 10:45
Skráning fer fram á heimasíðu Hafnarfjarðar
www.hafnarfjordur.is/minar-sidur/
Upplýsingar í Hraunkoti síma 565 3361 eða bjorgvin@keilir.is
Endilega komi
ð og prófið
prufutíma fyrir
skráningu!
MEST LESIÐ Á gaflari.is
Þegar á móti
blæs…
Skrefin
inn í heim
þroskaskertra
og fatlaðra...
„Bikar, svaka
gleði, frábært
að sjá bræðurna
spila saman“
Anas verður
KONA
Tilgerðin
Bjössi bolla –
Órabelgur og
prakkari
Magnús Ólafsson, leikari og skemmti-
kraftur hefur sent frá sér skemmtilega
bók um barnastjörnuna Bjössa bollu,
sem hann skapaði fyrir um margt löngu.
Bókin um Bjössa bollu, Órabelgur og
prakkari segir frá Bjössa bollu í sveitinni
hjá afa og ömmu. Mamma hans Bjarn-
fríður og systir hennar Inga eru vinnu-
konur á bænum Brekku. Þær sjá um að
mjólka kýrnar og hjálpa afa og ömmu
við bústörfin. Bjössi bolla er þarna líka
að reyna að hjálpa til, en lendir alltaf í
einhverjum skakkaföllum vegna þess að
hann er svo mikill prakkari og órabelgur.
Magnús er útgefandi bókarinnar
Macland opnar
í Hafnarfirði
Macland opnar nýja verslun að Hellu-
hrauni 14 til 16 í Hafnarfirði í dag, 13.
nóvember. Þetta er önnur verslun
Macland en fyrirtækið er einnig með
verslun að Laugavegi 23.
„Við erum að svara kalli frá við-
skiptavinum sem eiga ekki leið um
miðbæinn og vilja versla nær sinni
heimabyggð. Þetta er því tækifæri
fyrir okkur að verða „tölvubúð-
in“ fyrir Hafnar-fjörð, Garðabæ,
Álftanes, Kópavog og Reykjanes-
bæ“ segir Hörður Ágústsson, eig-
andi Mac-land. „Ástæða þess að
Hafnarfjörður varð fyrir valinu er
ekki síst vegna Hemma, Hermanns
Fannars Valgarðssonar, sem stofn-
aði Macland með mér og ég held að
flestir Hafnfirðingar hafi þekkt. Ég
veit að hann væri stoltur af þessari
þróun” segir Hörður.
Macland er þjónustufyrirtæki
sem sérhæfir sig í sölu og þjón-
ustu við allar vörur tengdar Apple.
Rekstur verslunarinnar að Lauga-
vegi 23 helst óbreyttur. Fyrirtæk-
ið var stofnað árið 2009 af Herði
Ágústssyni og árið 2010 kom Her-
mann Fannar Valgarðsson inn í
reksturinn.