Gaflari - 13.11.2014, Qupperneq 10

Gaflari - 13.11.2014, Qupperneq 10
10 - gafl ari.is TILVERAN Hvaða bók er á náttborðinu? Kjarval er önnur þeirra. Í bókinni er að finna helstu verk Kjarvals og umfjöllun um meistarann. Hún er þung og ekki gott að sofna með bókina. Við hliðina er bók af öðrum toga, Hávamál Indíalands eða á frummálinu Bhagavad-Gíta. Eftirlætis kvikmyndin? One Flew Over the Cuckoo’s Nest með Jack Nicholson, Louise Fletcher, and Will Sampson. Playlistinn í ræktinni/hreyfingu? Verdamp lang her með þýsku rokk- hljómsveitinni BAP. og Yesterday með Bítlunum í lok æfingar. Hvers vegna Hafnarfjörður? Svar í bundnu máli: Hamarinn, Flensborg, heillandi er, húsin og týpur við sæ. Slippurinn leikvöllur, Strandgatan sér, stundum vestur í bæ. KÍKT Í KAFFI Gaflarinn kíkir í kaffi til Janusar Guðlaugssonar, lektors á Menntavísindasviði Háskóla Íslands og nýbakaðan doktor í íþrótta- og heilsufræðum. Doktorsverkefni Janusar fjallar um hreyfingu aldraðra og hversu mikið fjölþætt heilsurækt getur bætt afkastagetu og lífsgæði hinna eldri. Janus er gaflari í húð og hár, lék lengi vel knattspyrnu og handknattleik með FH en einnig knattspyrnu í Þýskalandi og Sviss. Hann hefur þjálfað knattspyrnu og handknattleik í Hafnarfirði auk þess að hafa kennt bæði við Lækjarskóla og Iðnskól- ann í Hafnarfirði. Í dag kennir Janus við íþrótta- og heilsubraut Háskóla Íslands. Vill að til verði umboðsmaður aldraðra Bítill var Bjöggi, Lilli var Finn, magester Baldur við sæ, Hallsteinsson séní, handbolti inn, í húsum vestur í bæ Vitinn sá góði er vegvísir inn, um voga og sundin ég næ. Úfið er hraunið en aflið ég finn, úr hrauni vestur í bæ. Eftirlætismaturinn? Grillaður humar að hætti hússins. Leiðinlegasta heimilisverkið? Þrífa flísar á baðherbergi fyrir jólin Helstu áhugamál? Útivist, veiði, íþróttir, málaralist og fjölskyldan Eftirlætis íþróttamaðurinn? Geir Hallsteinsson og Guðjón Valur Sig- urðsson. Að auki: Íslenska landsliðið í knattspyrnu í dag og þjálfarateymi þess. Það sem gefur lífinu gildi? Góðir vinir og félagar. Í vetur ætla ég? …… ekki. Hef nýlega lokið vetrarverki til 7 ára með form- legri útskrift úr íslensku skólakerfi. Markmiði náð! Hvers vegna þurfa aldraðir að hreyfa sig? Til að geta sinnt ADL (Athöfnum Daglegs Lífs) eins lengi og kostur er. Er nógu vel hugað að hreyfingu aldraðra í Hafnarfirði? Þeir sem eru að sinna því gera það vel en betur má ef duga skal, bæði í Hafnarfirði og á landsvísu. Ég er fylgjandi að til verði umboðsmaður aldraða. Það þarf að greiða betur götu hinna eldri hvað varðar aðgengi og leiðsögn um hreyf- ingu á lokaspretti lífsins eins og í upp- hafi þess. Skondin saga úr vinnunni/af ferl- inum? Þegar ég ásamt félaga mínum í íslenska landsliðinu sátum fastir í umferðarteppu í Ismir í Tyrklandi. Misstum af morgunflugi 25. des- ember 1980 og af æfingu sem átti að vera síðdegis sama dag í Köln. Þurfti í kjölfarið að greiða 300 þýsk mörk fyrir atvikið. Hef ekki misst af æfingu síðan. Minningin lifir samt um 3-1 sigur í Tyrklandi, eftirminni- legt mark og fyrsti sigur Íslands í undankeppni HM á útivelli var stað- reynd. Allt 300 marka virði og gott betur. Sjá aðra góða sögu frá Janusi á gaflari.is Síðasta sms-ið og frá hverjum? Get- ur þú aðstoðað mig í ræktinni kl. 6:45 í fyrramálið? Persónuvernd leyfir ekki að svara frá hverjum en svarið var: Sjá- umst 06:44. Á föstudagskvöldið var ég? Að undir- búa kennslu helgarinnar sem var KSÍ-II námskeið fyrir verðandi knattspyrnu- þjálfara landsins. Ég mæli með? Daglegri 30 mínútna göngu, tveimur styrktaræfingum í viku og einum Hafnarfjarðarbrandara á laugardögum. Sólvangur Aðalfundur Hollvinasamtaka Sólvangs verður haldinn mánudaginn 24. nóvember nk. kl. 17.00. Fundurinn verður haldinn á 1. hæð á Sólvangi. Fundarefni venjuleg aðalfundarstörf. Lagabreytingar: 11. gr. hljóði svo: Ákvörðun um slit félagsins skal taka á aðalfundi með einföldum meirihluta atkvæða og renna eignir þess til Sólvangs eða sambærilegrar stofnunar í Hafnarfi rði. Stjórn Hollvinasamtaka Sólvangs

x

Gaflari

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gaflari
https://timarit.is/publication/1097

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.