Gaflari - 13.11.2014, Síða 11
gafl ari.is - 11
Áhugavert fólk sem hugsar út fyrir rammann
Það vakti athygli mína þegar ég skrif-
aði um Hafnarfjarðarbrandara að þeir
eiga að lýsa Hafnfirðingum sem vit-
lausum, en séu brandararnir skoðaðir
betur kemur í ljós að Hafnfirðingarnir
í þessum bröndurum eru öllu heldur
opnir fyrir nýjungum, þeir hugsa út fyr-
ir rammann, og eru tilbúnir til að gera
eitthvað nýtt og framkvæma hlutina
– prófa það að minnsta kosti,“ segir
höfundur Hafnfirðingabrandarans.
Bryndís Björg-
vinsdóttir, rithöf-
undur var að senda
frá sér sína þriðju
bók, Hafnfirðinga-
brandarinn. Sagan
gerist í Hafnarfirði
árið 1999 og og
segir sögu Klöru sem er í 10. bekk í Víði-
staðaskóla og ævintýrum hennar. „Mig
langaði að skrifa sögu sem sögð er út
frá sjónarhorni unglings, sem er kannski
svolítið æstur, dramatískur og fullur af
tilfinningum og væntingum til lífsins,
segir Bryndís. „Klara á það til að ofhugsa
hlutina en um leið kemst hún líka að
ýmsum skondnum eða áhugaverðum
niðurstöðum um lífið og tilveruna – um
sjálfa sig og annað fólk. Sagan fjallar
ekki bara um Klöru því margar aðrar
persónur koma við sögu, stelpur og
strákar á öllum mögulegum aldri, alveg
upp í áttrætt. Klara segir þó söguna
og lýsir hún öðru fólki út frá sínu sjón-
arhorni sem er oft æði ýkt og fyndið því
Klara á það til að misskilja hlutina eða
vera með sleggjudóma. Klara er óþreyju-
fullur unglingur. Henni er umhugsað um
að „lifa lífinu“, komast til dæmis í partý
eða í saumaklúbb, en því miður gengur
það ekki eins vel og hún vildi, og stund-
um neyðist hún þess vegna til þess að
hanga með ömmu sinni eða foreldrum
á laugardagskvöldum, að horfa á ríkis-
sjónvarpið og borða ísblóm.“
Langaði að skrifa bók um furðufugla
Bryndís, sem er Hafnfirðingur í húð
og hár, var aðeins fimmtán ára göm-
ul þegar hún sendi frá sér sína fyrstu
bók með Auði Magndísi, vinkonu sinni,
Orðabelg Ormars ofurmennis, en Flug-
an sem stöðvaði stríðið var önnur bók
Bryndísar og fékk hún Íslensku barna-
bókaverðlaunin árið 2011. Bryndís er
þjóðfræðingur að mennt og starfar m.a.
við kennslu. „Ég hef alltaf haft gaman af
ýkjusögum og gamansögum. Ég lærði
sagnfræði og fór síðan í mastersnám í
þjóðfræði þar sem ég stúderaði með-
al annars þjóðsögurnar, flökkusagnir,
brandara og fleiri tegundir af sögum.
Samfara þessu byrjaði ég að skrifa um
sögur og oft greip mig sterk löngun til
að bæta við þær, ýkja og breyta – en
það er nú yfirleitt ekki gert þegar um
er að ræða fræðileg skrif.“ Undanfarin
ár hefur Bryndís verið að kenna þjóð-
fræði og menningarfræði við Háskóla
Íslands og Listaháskólann og finnst
hvoru tveggja mjög skemmtilegt, en
hana hefur lengi langað til nýta þennan
þennan efnivið á annan hátt, t.d. í skáld-
skap. „Mig langaði því að skrifa bók um
Hafnfirðinga sem eru einskonar furðu-
fuglar, hver á sinn hátt, en á sama tíma
eru þeir áhugaverðar persónur sem
hugsa út fyrir rammann. Og hafa jafnvel
ýmislegt gott til málanna að leggja.“
Upplestur í staðinn fyrir nýja greiðslu
Bryndís hefur verið dugleg við að
heimsækja grunnskóla Hafnarfjarðar
og lesa upp úr bókinni og á dögunum
fór hún og hitti nemendur Iðnskólans
í Hafnarfirði. Síðustu ár hefur sú hefð
skapast þar að höfundar koma og
lesa úr bókum sínum fyrir nemendur
og starfsfólk. Fyrir lesturinn fá höf-
undarnir meðferð hjá nemum í háriðn.
Bryndís skellti sér því í stólinn hjá
Stefáni Hannessyni, Íslandsmeistara
iðnnema í hárgreiðslu og var alsæl
með nýju klippinguna og ráðin sem
hún fékk frá Stefáni.
Sjá nánar á gaflari.is
Ný bók um hafnfirska æsku
Slétt skipti