Gaflari - 27.11.2014, Blaðsíða 2

Gaflari - 27.11.2014, Blaðsíða 2
2 - gafl ari.is Verið að undir- búa flutning úr Firðinum FRÉTTIR Bæjarstjórn Hafnar- fjarðar óskaði í október síðast- liðnum eftir nánari upplýsingum um áform Innanríkisráðuneytisins um að fækka sýslumannsemb- ættum á landinu og hvort og þá hvernig það muni snerta emb- ættið í Hafnarfirði. Fátt hefur ver- ið um svör frá ráðuneytinu og svo virðist sem enn sé ekki búið að ákveða hvar hin nýja starfsstöð sameinaðs embættis Sýslumanns á höfuðborgarsvæðisins verður staðsett. Þórólfur Halldórsson, nýskipaður Sýslumaður, staðfest- ir þetta í samtali við Gaflarann. „Nei, það er ekki ákveðið. Ég hef átt fund hjá SSH með framkvæmdastjórum stjórn- sýslusviða sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu og kynnt þeim að ég gangi út frá því að færa starfsemi hins nýja emb- ættis undir eitt þak miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu. Þar er til viðmiðunar svæðisskipulag höf- uðborgarsvæðisins sem sveitar- félögin eru með á teikniborðinu, hvernig helstu umferðaræðar eru skipulagðar, almenningssam- göngur og fleira.“ Þórólfur ítrekar það að fyr- irhugað sé að öll starfsemi nýs embættis verði í hinni nýju starfs- stöð og að og núverandi starfs- stöðvar í Hafnarfirði, Kópavogi og Reykjavík verða starfræktar áfram þangað til flutt verður á nýjan stað. Samkvæmt heimild- um Gaflarans er starfsfólk sýslu- mannsembættisins í Hafnarfirði byrjað að undirbúa flutninga en á heimasíðu ráðuneytisins kemur fram að ný umdæmaskipan eigi að taka gildi um næstu áramót. Þórólfur vill ekki segja til um hvenær staðsetning hins nýja embættis liggi fyrir. „Nú er ver- ið að leggja lokahönd á skipulag hins nýja embættis. Ekki verður unnt að hrinda nýju skipulagi að fullu í framkvæmd fyrr en á nýrri starfsstöð. Hvernig starf- seminni verður háttað þangað til verður kynnt fljótlega, en ekki er á þessari stundu hægt að tíma- setja það nákvæmlega.“ Gert er ráð fyrir um eitt hund- rað stöðugildum á nýju starfs- stöðinni. Rúmlega 40 húsmæður styrktar til utanlandsferðar Hálf milljón fyrir nefndasetur FRÉTTIR Rúmlega 40 hafnfirskar húsmæður fóru á vegum Orlofs- nefndar Hafnarfjarðar til Prag í byrjun nóvember. Hver kona fékk styrk að upphæð 50.000 kr til fararinnar. Til að standa straum af kostnaði við orlof húsmæðra greiðir Hafnarfjörður árlega 100 kr fyrir hvern íbúa bæjarins sam- kvæmt lögum eða um 2,5 milljónir. Lög um orlof húsmæðra á sér langa sögu eða frá þeim tíma þegar konur sinntu fyrst og fremst barnauppeldi og heimilisstöfum í stað launaðrar vinnu. Í lögunum segir að sérhver kona sem veitir eða hefur veitt heimili forstöðu, án launagreiðslu fyrir það starf eigi rétt á að sækja um orlof. Þegar val- ið eru úr umsóknum á svo að taka tillit til fjölda barna, aldurs þeirra og félagslegara aðstæðna. Mörgum finnst að niðurgreidd- ar ferðir eingöngu fyrir konur séu tímaskekkja enda öldin önn- ur en þegar lögin tóku fyrst gildi árið 1960. Fyrir Alþingi liggur nú frumvarp sem felur í sér afnám húsmæðraorlofs verði það sam- þykkt. „Við munum að sjálfsögðu lúta vilja Alþingis í þessu máli enda þarf ríkisstjórnin kannski að gera annað við peningana en að senda gamlar konur til útlanda eins og tíðin er núna. En það verður mikil eftirsjá af ferðunum,“ segir Svan- hildur. Sjá nánar á gaflari.is FRÉTTIR Á vegum bæjarins bæjarins eru reknar fjölmargar nefndir og ráð sem í sitja kosnir bæjarfulltrúar ásamt öðrum full- trúum flokkanna. Auk þess sitja fulltrúarnir í stjórnum fyrirtækja sem Hafnarfjörður á aðild að. Þá á bærinn fulltrúa í Fulltrúaráði Samtaka sveitarfélaga á höfuð- borgarsvæðinu (FSSH), Almanna- varnarnefnd höfuðborgarsvæðis- ins og NG eignum ehf. Fyrir þessi störf fá nefndarmenn greitt. Allir sitja oddvitarnir í bæjar- stjórn og fá greitt fyrir það 175.685 kr á mánuði að undanskildum forseta bæjarstjórnar sem fær 263.527 kr á mánuði. Guðlaug Kristjánsdóttir, oddviti FB er for- seti. Fyrir setu í bæjarráði er greitt 95.828 krónur á mánuði. Þar eiga sæti Gunnar Axel Axelsson, oddviti Samfylkingarinnar, Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, oddviti VG og Guðlaug Kristjánsdóttir. Rósa Guðbjartsdóttir, oddviti Sjálf- stæðisflokksins er formaður bæj- arráðs og fær fyrir það 143.742 kr á mánuði. Fyrir setu í sviðsráðum á vegum bæjarins er greitt 79.858 kr á mánuði. Formenn fá hins vegar 119.785 kr. Rósa er formaður fræðsluráðs og Guðlaug formað- ur fjölskylduráðs. Guðrún Ágústa situr svo í fjölskylduráði. Guðlaug situr í flestum ráðum og nefndum eða sex. Samkvæmt útreikningum Gaflarans fær hún tæpar 480.000 krónur á mánuði fyrir að vera forseti bæjarstjórn- ar, sitja í bæjarráði og sinna for- mennsku í fjölskylduráði en þar fyrir utan á hún sæti í Almanna- varnarnefnd höfuðborgarsvæðis- ins, FSSH og Samvinnunefnd um svæðisskiptingu á höfuðborgar- svæðinu. Þessu störfum sinnir hún meðfram því að vera formaður BHM. Aðrir oddvitar sitja í fjór- um nefndum og ráðum. Rósa fær tæpar 440.000 kr á mánuði fyrir að sitja í bæjarstjórn og gegna for- mennsku í bæjarráði og fræðslu- ráði, auk þess á hún sæti í stjórn Sorpu sem hún fær aukalega greitt fyrir. Rósa er sjálfstætt starfandi meðfram þeim störfum sem hún gegnir fyrir bæinn. Guðrún Ágústa fær greitt rúmar 350.000 kr fyrir að sitja í bæjar- stjórn, bæjarráði og fjölskylduráði, þar fyrir utan situr hún í FSSH. Guðrún Ágústa ætlar að segja sig úr fjölskylduráði þar sem hún segir þetta ofmikla vinnu með fullu starfi hjá Strætó. Gunnar Axel Axelsson fær rúmar 270.000 krónur á mánuði greiddar fyrir að sitja í bæjarráði og bæjarstjórn, þar fyrir utan er hann í stjórn NG eigna ehf og FSSH. Þess- um störfum sinnir hann meðfram fullu starfi hjá Hagstofunni. Oddvitar flokkanna sitja í fjórum til sex ráðum og nefndum á vegum bæjarins. Flestir þeirra eru í fullri dagvinnu með þessum störfum. Fulltrúi Bjartrar framtíðar situr í flestum nefndunum. Rósa Guðbjartsdóttir Guðlaug Kristjánsdóttir Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir Gunnar Axel Axelsson

x

Gaflari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gaflari
https://timarit.is/publication/1097

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.