Gaflari - 27.11.2014, Síða 8
8 - gafl ari.is
Erum á Facebook: Sko sala í Firði
í bílakjallaranum í Firði
laugardaginn 6. des.
Opið frá 12.00 til 16.00
Stuð og stemmning
Komdu og grúskaðu Prúttaðu og gerðu góð kaup
að koma við í
Heilsubúðinni á
Reykjarvíkurvegi
ef þú þarft andlega
eða líkamlega upp-
örvun. Þar er að finna aragrúa af alls-
konar góðgæti sem hressir, bætir og
kætir. Jólailm og háralit án parabena
– svo heilsusamlegur að það mætti
næstum borð‘ann.
Sorpu, já Sorpu –
vissuð þið af nýju
talningavélinni?
Nú þarf ekki
lengur að flokka
og telja heima heldur bara að skella
pokunum í bílinn og muna eftir debet-
kortinu. Ótrúlega einfalt og skemmti-
legt ferli.
GAFLARI
MÆLIR MEÐ...
Úr bankanum í listina
Í fallegu húsi sem kúrir í hraunjaðr-
inum nærri Víðistaðaskóla býr
Bjarni Sigurðsson, keramiker.
Bjarni hefur þó ekki alltaf verið
keramiker því fram yfir þrítugt
vann hann starf sem flestir myndu
telja að ætti fátt sameiginlegt með
listsköpun, Bjarni vann í banka. „Ég
var á viðskiptabraut í FB og fékk
svo vinnu í Hagkaup við að sjá um
kassauppgjör og slíkt. Á þeim tíma
þótti mikil upphefð í því að vinna
hjá Hagkaupum og því auðvelt að
fá vinnu í bankakerfinu með þá
starfsreynslu,“ segir Bjarni þegar
hann er spurður út í það hvernig
það hafi atvikast að hann, lista-
maðurinn, hafi unnið í bankakerf-
inu árum saman.
Vissi ekki af listamanninum í sér
Ólíkt mörgum öðrum listamönnum
hafði Bjarni ekki hugmynd um að í
honum byggi listamaður sem beið
eftir því að fá að springa út. „Þegar
ég fór að nálgast þrítugt fann ég
að mig langaði til að fara að gera
eitthvað með höndunum. Ég vissi
hins vegar ekkert hvað ég vildi gera.
Ég var eitthvað ragur við þetta og
gerði því ekkert í málinu en það end-
aði svo með því að maðurinn minn,
Guðbrandur Árni Ísberg, skráði mig
á námskeið hjá Tómstundaskóla
Reykjavíkur. Þar fór ég í gluggaút-
stillingar,“ segir Bjarni og hlær. „Ég
hafði mjög gaman af námskeiðinu
og kláraði það með glæsibrag þar
sem glugginn minn var valinn sá
besti í lok námskeiðsins.“
„Það gerðist bara eitthvað
innra með mér“
Eftir þetta var ekki aftur snúið.
Bjarni ákvað að fara í Myndlista-
skóla Reykjavíkur og það var þar
sem undrið gerðist. „Þar tók ég
ýmis námskeið t.d. í teikningu og
skúlptúr. Það var svo í eitt skipt-
ið að kennarinn lét hvert okkar fá
fimm kíló af leir og fyrirmælin voru
einföld: „Vinnið eitthvað úr þessu
og gefið ímyndunaraflinu lausan
tauminn.“ Þegar Bjarni rifjar þetta
augnablik upp fær hann ljóma í
augun og bros breiðist yfir andlit
hans. „Ég hafði aldrei áður snert
svona leir og byrjaði að hnoða og
þá gerðist bara eitthvað innra með
mér. Eitthvað sem ég get ekki út-
skýrt með orðum. Það varð bara
sprenging innra með mér. Þegar ég
var svo sóttur um kvöldið náði ég
mér ekki niður, mér fannst ég geta
flogið,“ segir Bjarni og hlær.
Lærði í Danmörku
Eftir þessa mögnuðu lífsreynslu
varð ekki aftur snúið. Bjarni fór á
námskeið hjá tveimur keramiker-
um til að læra meira. „Ég ákvað svo
bara að söðla um og hætta þessu
bankarugli. Maðurinn minn var á
þessum tíma að fara í framhalds-
nám í sálfræði til Danmerkur og ég
ákvaðað sækja um nám í listaskóla
og komst inn mér til mikillar furðu.
Það sóttu 300 um skólavist og 32
komust inn,“ segir Bjarni og stoltið
leynir sér ekki í röddinni.
Bjarni og Guðbrandur dvöldu
næstu 10 árin í Danmörku. „Eftir að ég
útskrifaðist stofnaði ég gallerí ásamt
vinkonu minni og þar seldu fimm ker-
amikerar og fimm listmálarar verkin
sín. Þetta gallerí er enn starfandi og
gengur bara vel.“
Þekktari úti en heima
Það má eiginlega segja að allt
fram til þessa hafi Bjarni verið
þekktari í Danmörku en á Íslandi.
“Ég er enn að selja mikið af ker-
amiki í Danmörku. Ég framleiði
hér heima og sendi út. Undanfarið
hefur nafn mitt verið mjög rísandi
þar í landi og allt sem ég kem með
selst upp svo að segja á stundinni.“
Íslendingar hafa þó einnig kveikt á
perunni undanfarið og margir vilja
eignast verk eftir Bjarna. „Ég rek,
ásamt fleiri listamönnum, tvö gall-
erí, Fabúlu og Stíg. Þar eru verkin
mín til sölu og ég finn að áhugi
fyrir verkunum mínum er alltaf að
aukast hér á landi.“
Hafnarfjörður
einstaklega fallegur bær
Bæði Bjarni og Guðbrandur eru
uppaldir í Vesturbæ Reykjavíkur
og því alls ekki sjálfgefið að þeir
settust að í Hafnarfirði. „Hvor-
ugan okkar langaði til að flytja
aftur í Vesturbæinn, okkur langaði
að prófa eitthvað nýtt og vorum
ákveðnir í að setjast að í úthverfi
þegar við flyttum heim á ný eftir
Danmerkurdvölina,“ segir Bjarni og
bætir við: „Valið stóð eiginlega á
milli Mosó og Hafnarfjarðar. Í einni
Íslandsferðinni sá ég svo þetta hús
auglýst til sölu. Það var nú kannski
ekki alveg á því verðbili sem við
vorum að leita eftir en engu að síð-
ur ákváðum við að fara til að skoða
það að utan. Stella í Stellubakstri
sem átti húsið sá okkur sniglast
fyrir utan og bauð okkur inn til að
skoða. Hún tók eiginlega strax
ástfóstri við okkur og vildi endi-
lega að við fengjum húsið. Þegar
við komum svo inn í bílskúrinn þá
sagði hún. „Hér er svo þriggjafasa
rafmagn þannig að þú þarft ekki
að gera neitt annað en að stinga í
samband til að hefjast handa.“ Og
frá og með þeirri stundu var ekki
aftur snúið.“