Gaflari - 09.05.2014, Blaðsíða 9
gafl ari.is - 9
Páll B.
Guðmundsson
Löggiltur fasteignasali
861 9300 - pallb@remax.is
Vönduð vinnubrögð og
framúrskarandi þjónusta
sem skilar þér árangri.
Lækjargata 34d - Hafnarfjörður - 519 5900
FJÖRÐUR
Þarftu að selja? - Frítt söluverðmat
Allir með í íþrótta-
og tómstundastarfi
AÐSEND GREIN Í Hafnarfirði er
öflugt íþróttalíf og fjölmargt í boði
í íþrótta- og tómstundamálum. Í
stefnuskrá sinni leggur Samfylk-
ingin í Hafnarfirði mikla áherslu
á lýðheilsu og að efla aðstöðu og
auka þekkingu svo hreyfing og heil-
brigður lífstíll verði í auknum mæli
hluti af daglegu lífi bæjarbúa. Unnið
hefur verið að verkefninu Brúkum
bekki í samstarfi við Öldungaráð
og Félag eldri borga og höfum við
áhuga á að sjá slíkum gönguleiðum
fjölgað. Þá viljum við stefna að því
að fjölga vatnspóstum og útiæf-
ingatækjum, og gera upplýsingar
um göngu- og hlaupaleiðir aðgengi-
legar á heimasíðum bæjarins.
Íþróttir, tómstundir og forvarnir
Mikilvægi íþrótta- og tómstunda
í forvarnastarfi er óumdeilt. Við
leggjum áherslu á að Hafnarfjarðar-
bær verði áfram leiðandi í forvarnar-
starfi með þverfaglegri þátttöku
allra sem að velferð bæjarbúa koma,
þ.e heilsugæslustöðva, lögreglu,
íþrótta- og æskulýðsfélaga, félags-
miðstöðva og forvarnarfulltrúa. Við
viljum halda áfram með og efla jafn-
ingjafræðslu í forvarnarskyni gegn
einelti og hvers kyns fordómum. Þá
viljum við gera átak í því að auka
virkni og þátttöku hafnfirskra barna
af erlendum uppruna í íþrótta- og
tómstundastarfi.
Hækkun niðurgreiðslustyrkja
Við leggjum áherslu á að öll börn
geti notið þátttöku í skipulögðu
íþrótta- og tómstundastarfi óháð
efnahag foreldra. Við munum því
áfram leita leiða til að draga úr
kostnaði meðal annars með hækk-
un niðurgreiðslustyrkja. Hafnar-
fjörður var fyrsta sveitarfélagið
til að taka upp slíka styrki og nú
þarf að gera átak enda viljum við
áfram vera leiðandi í þeirri vinnu
að tryggja jafnan aðgang allra að
fjölbreyttu íþrótta- og tómstunda-
starfi.
Höfundur skipar 3. sæti á lista
Samfylkingarinnar í Hafnarfirði
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
ðurh 5, Rv 5 1 00 t n
Sverrir
Einarsson
Kristín
Ingólfsdóttir
Hinrik
Valsson
Adda María Jóhannsdóttir