Akureyri


Akureyri - 11.12.2014, Blaðsíða 21

Akureyri - 11.12.2014, Blaðsíða 21
11. desember 2014 46. tölublað 4. árgangur 21 40% af árssölu bóka hér á landi fer fram fyrir jólin Eins og jafnan eru barnabækur mikið keyptar fyrir jólin. Vísbendingar eru þó um að 12–16 ára krakkar séu ögn vegalaus. koma upp. Þetta er ekki bara bóka- búð heldur líka ritfangaverslun, í búðinni er fyrirtækjaþjónusta og heildsala sem ég sé reyndar ekki um, búðin er kraftmikill staður. Svo er líka kaffihús sem er aðskilið frá okkar rekstri. Öll þessi starfsemi verður til þess að Eymundsson er dálítið svona félagsheimilið í göngugötunni.“ Bækur hverfi úr stórmörkuðum Eftir að hafa rætt ýmis mál út og suður spyr ég hvaða skoðun versl- unarstjóri Eymundsson á Akureyri hafi á bóksölu í matvörubúðum. Verðkannanir hafa sýnt að það get- ur munað hátt í 2.000 krónum á verði nýrrar íslenskrar skáldsögu hvort hún er keypt í Bónus eða bókabúð. Þar með er þó ekki öll sagan sögð að mati verslunarstjór- ans. „Mér finnst að það eigi að hætta bóksölu í matvöruverslunum, ég vildi helst að bækur væru bara seldar í bókabúðum. Þetta byggi ég því að bóksalar selja titla allt árið um kring, það eru bóksalar sem sjá um menninguna, sjá um að selja skáldin og halda verkum þeirra á lífi allt árið um kring. Athugaðu að hvaða rithöfundur eða einyrki sem er getur gengið inn til okkar bók- sala með hugverk sitt allan ársins hring, okkur ber skylda til að selja allar bækur. En stórmarkaðir velja aðallega bækur fyrir jólin sem lík- legar eru til að seljast í miklu magni og svo henda þeir öllum bókum aft- ur út 2. janúar ár hvert.“ En eru það ekki sterk rök fyrir neytendur að bækur eru oft mun ódýrari í matvörubúðum en bóka- verslunum? „Ég vil meina að stórmarkað- irnir séu að selja út bækurnar á sama verði og þeir kaupa þær inn. Einhvers staðar þurfa þeir að borga upp tapið. Ég held að þeir ýti kostnaðinum við bækurnar upp í matvöruverðið. Ég held að stór- markaðir ættu bara að einbeita sér að matnum, nógu dýr er hann. Ég trúi því ekki að stórmarkaðir selji bækur með tapi. Ef það er þannig að forlögin selji þeim bækur á undirverði er það hreinlega blaut tuska í andlit okkar heilsársbók- sala í bókabúðum.“ Undarleg forgangsröðun stjórn- valda Bóksölum hefur fækkað ört jafnt í norðlensku héraði sem á heimvísu. Ekki alls fyrir löngu voru fimm bókabúðir á Akureyri – nú er bara ein eftir. Guðrún Karítas segist viss um að Eymundsson á Akureyri lifi allar breytingar af en henni hrýs hugur við virðisaukaskatti á bæk- ur sem nú stendur til að hækka samkvæmt fjárlagafrumvarpinu. „Bækur hafa hækkað í verði, það er ekki fyrir alla að kaupa bækur eins og staðan er í dag og ég hef miklar áhyggjur ef ríkisstjórnin hverfur ekki af þeirri braut að ætla nú að stórhækka álögur á bækur. Því er haldið fram að breytingin á virðisaukakerfinu sé gerð til að einfalda skattkerfið en auðvitað er það ekki rétt. Ég hefði viljað halda veiðigjöldunum þar sem þau voru en láta bæði mat og bækur vera. Á sama tíma og veiðigjald er lækk- að, þar sem tugmilljarða hagnaður er hjá sumum útgerðum, er skorið niður í heilbrigðiskerfinu, skorið niður í félagsmálum, skorið niður í menningu og velferð. Við sjáum sem dæmi stöðu geðverndarmála hér á Akureyri núna, hún er afleit. Ég er á því að það eigi að vera 0% skattur á bókum enda eru útlendingar sem ræða við okkur starfsfólk Ey- mundsson hérna á Akureyri mjög hissa á að það sé hár skattur af bókum hjá þessari bókaþjóð. Við erum bókaþjóð en við þurfum að hugsa hvort við búum börnunum okkar upp á aðstæður sem verði til þess að þau geti líka sagt eftir nokkra áratugi: Já, við erum ennþá bókaþjóð. Það getur skipt sköpum hvernig umhverfi ríkið býr bókinni, hvort svarið verður nei eða já.“ Arnaldur og Yrsa enn á toppnum Fyrir utan ýmsa veraldlega þætti sem líta má á sem ógn við bókarútgáfu kemur fram í spjalli okkar að Guðrún Karítas telur áhyggjuefni hve fáir höfundar séu að skrifa fyrir 12-16 ára börn hér á landi. „Það er gat í þessum hópi. Það eru til ævintýrabækur fyrir börn upp að ca. 12 ára gömlum og svo eru til bækur fyrir 16 plús en það er gat þarna á milli sem þarf að fylla.“ En hvaða bækur vilja Akureyr- ingar helst kaupa fyrir þessi jól? „Það eru bækur sögulegs eðlis, barnabækur, krimmarnir eru enn- þá býsna öflugir, Arnaldur og Yrsa tróna á toppnum í sölu eins og ver- ið hefur en árið í ár er svolítið sér- stakt fyrir þær sakir að það er ekki mikið um útgáfu á ævisögum núna.“ Næstum önnur hver útgefin bók skiptir um eigendur í flóðinu Hvað hefur verslunarstjóranum litist best á persónulega í útgáfu þessa árs? „Persónulega er ég mjög hrifinn af Kristínu Steins þetta árið, hún er með flotta bók, Vonarlandið sem fjallar um þvottakonurnar í Reykjavík. Ég er líka mjög hrifin af Stundarfró Orra Harðar sem ég vil kalla nýtt Akureyrarskáld. Svo kikkar okkar akureyski Villi inn fyrir forvitna vísindakrakka og við gætum haldið lengi áfram.“ Til eru sögur um að síðustu dag- ana fyrir jól ráðist afkoma flestra höfunda og forlaga. Að langmestu viðskiptin eigi sér stað síðustu stundirnar sem bókabúðir hafi opið fyrir jól. Guðrún Karítas segir að mikið sé til í þessu, ef horft er í jólavertíðina eina og sér fari ríflega 40% sölunnar fram vikuna fyrir jól. Hennar mat er þó að allir myndu græða á því ef bóksala væri jafnari á árs- grunni. Hún segir að markaðssetn- ing ein og sér tryggi ekki góða sölu á bók, álitsgjafar skipti líka miklu máli, til að mynda sjái starfsfólk Eymundsson á Akureyri iðulega kipp í sölu bókar daginn eftir lof- samlega umfjöllun um bókina í Kiljunni. Hún segir ekki vafamál að gagnrýni hafi áhrif á bóksölu, svo hafi eflaust eitthvað að segja ef höfundar séu iðnir við að lesa upp úr verkum sínum í desember. Við ljúkum spjallinu á persónu- legum nótum, eins og við hófum það. Guðrún Karítas upplýsir að hún hlakki til að liggja í bóklestri um jólin, sjálf sé hún ástríðulesandi í þeim skilningi að ef hún falli fyrir bók vilji hún helst fá að klára hana í einum rykk. Til þess henti jólafríið afar vel. „Það er gaman að hafa bók í höndunum sem nær manni þannig að maður tími ekki að leggja hana frá sér fyrr en lestri er lokið.“ Taka eflaust margir undir það. VIÐTAL Björn Þorláksson MYNDIR Völundur Jónsson

x

Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.