Vísbending - 29.07.2013, Blaðsíða 1
Vikurit um viðskipti og efnahagsmál
V í s b e n d i n g • 3 0 t b l 2 0 1 3 1
Friðhelgi einkalífsins er dauð!
29. júlí 2013
30. tölublað
31. árgangur
ISSN 1021-8483
Uppljóstranir Snowdens
hafa vakið athygli á hve
auðvelt er að brjóta á
friðhelgi einkalífsins.
Íslendingar eru of feitir
en eru kannski ekki
feitastir í Evrópu nema í
speglinum.
Árangur þekkingar-
stjórnunar er talsverður
og umhugsunarverður
fyrir íslensk fyrirtæki.
Lánshæfisstofnanir eru
ekki réttlátir dómarar
og hafa meiri völd en
Íslendingar myndu kjósa.
1 32 4
Gamli sveitasíminn var merki leg-u r. Bændur gátu hringt á milli bæja en allir aðrir sveitungar gátu
hlustað á samtalið ef þeir bara tóku upp
tólið og héldu í sér andanum. Það var saga
til næsta bæjar. Þó að bændur töluðu all-
frjálslega vissu þeir að einhver gæti verið á
línunni að hlusta. Nú er öldin önnur.
Uppljóstrarinn
Uppljóstrarinn og flautarinn (whisle blower) Edward Snowden vakti
athygli á því að Þjóðaröryggisstofnun
Bandaríkjanna (NSA) stundaði rafrænar
njósnir. Umfang þessara njósna hefur
smám saman verið að koma betur í ljós.
Breska fréttablaðið Guardian hefur m.a.
fjallað um hugbúnaðinn X-Keyscore
sem gerir NSA mögulegt að fylgjast með
öllu því sem fólk gerir á netinu. Tölvu-
póstsamskipti, leitarsaga á netinu, tjatt,
myndir o.s.frv. eru aðgengileg NSA. Þetta
ætti að vera versta martröð hvers og eins
sem er annt um friðhelgi einkalífsins og
trúir því að opinberir aðilar hafi engan
rétt á slíkum gögnum nema við sérstök
skilyrði sem varða sakamál og hryðjuverk.
Edward Snowden hefur verið hundeltur
af bandarísku leyniþjónustunni síðan
hann ljóstraði þessu upp og þurfti Sak-
sóknari Bandaríkjanna sérstaklega að lýsa
því yfir að þeir myndu ekki sækjast eftir
dauðarefsingu yfir Snowden og í bréfi til
stjórnvalda í Rússlandi, að Snowden yrði
ekki pyntaður í Bandaríkjunum Upp-
ljóstranir Snowdens skipta ekki einungis
Bandaríkjamenn máli heldur alla sem nota
netið með einum eða öðrum hætti.
Tæknibreytingar
Tæknin tekur svo örri þróun að fæstir átta sig á þeim breytingum sem eru að
eiga sér stað. Tölvur verða öflugri, upplýs-
ingar aðgengilegri og kostnaður lækkar
hratt. Unglingar í dag eru með öflugri
tölv u og upplýsingatækni í sím anum sín-
um en stærstu fyrirtæki og stjórnvöld
höfðu yfir að ráða fyrir tuttugu árum
síðan, fyrir einungis brot af kostnaðinum.
Fyrir tíu árum var Facebook rétt að opna
fyrir þjónustuna. Apple kynnti iPhone til
sögunnar 2007 sem greiddi götu fjórðu
kynslóð farsíma og iPad árið 2010 sem
opnaði markaðinn fyrir spjaldtölvur.
Ný tækni er í auknum mæli orðin hluti
af daglegum veruleika. Tækni leiðir líka
af sér tækni þar sem ein nýjung opnar
möguleika fyrir aðra. Þannig hafa símar
með öfluga tölvu og spjaldtölvur sem eru
svo léttar að það er hægt að taka þær hvert
sem er opnað nýja markaði en nýlega
spáði ráðgjafarfyrirtækið McKinsey (sjá
28. tbl. Vísbendingar) að far-internetið og
internet hluta myndu verða mestu vaxtar-
broddarnir hvað verðmætasköpun varðar
á næstu tíu árum.
Vandamálið við aukna tækni er að
lík ur aukast að hægt sé að safna per-
sónu upplýsingum sem var erfitt áður.
Tæknin er nú til staðar sem getur stað-
sett einstaklinginn og rakið ferðir hans.
Tæknin er til sem getur fundið allt
sem þessi einstaklingur hefur skrifað
opinberlega og jafnvel í einkaskilaboðum
eða tölvupósti. Tæknin er til sem getur
séð við hverja einstaklingurinn hefur
samband, hverjum hann tilheyrir eða
hvaða vini hann á. Tæknin er til sem
getur fylgst með neyslu einstaklinga
og fjármálum. Það sem meira er, þær
upp lýsingar sem þegar eru til geta gert
markaðsfræðingum, félagsfræðingum og
sálfræðingum mögulegt að vita hvernig
einstaklingur hugsar, hvað honum líkar og
hvað hann kýs, hvaða ákvarðanir hann er
líklegur til að taka og hvernig hann mun
hegða sér. Þeim mun fleiri tölvur og tæki
og hugbúnaður sem hjálpar fólki, þeim
mun meiri upplýsingar. Þeim mun meiri
upplýsingar, því minna verður frávikið.
Og þeim mun lægri kostnaður við tækni,
því almennara verður aðgengið að þessum
upplýsingum.
Opinberar persónur
Opinberar persónur eins og kvik-myndas tjörnur, tónlistarmenn og
jafnvel stjórnmálamenn hafa lengi þurft
að sætta sig við að setið sé um líf þeirra af
ljósmyndurum og fréttafólki. Nú er hver
einasti maður með síma mögulegur frétta-
miðill. Þetta fólk hefur í flestum tilvikum
áttað sig á að líf þeirra er meira eða minna
fyrir opnum tjöldum. Sumum er þetta
ofviða, aðrir spila á þetta til þess að auð-
gast og uppfylla drauma sína. Hugsanlega
þurfa fleiri en „stjörnur“ að fara sætta sig
við að líf þeirra verður fyrir opnum tjöld-
um og aðgengilegt hverjum sem vill.
Á aðra höndina er þetta svört fram-
tíðarsýn, allavega fyrir þá sem er annt
um friðhelgina. Á hina höndina er
þetta tækifæri. Þetta er tækifæri fyrir
einstaklinginn sem vill skilvirkara og betra
líf en fyrirtæki eins og Google og önnur
markaðsfyrirtæki hafa bent á að því meira
sem þau vita um einstaklinginn því betur
geta þau þjónað honum. Þegar hafa verið
hannaðar viðskiptahugmyndir sem hjálpa
fólki að velja mat sem er takt við lífsstíl og
áætlanir, sem og heilsu og persónulegan
smekk, lyf sem eru sérhönnuð að þörf-
um einstaklinga, sjónvarpsefni sem
hæfir hverri stund og félagsskap o.s.frv.
Einungis sérsniðið fréttaefni og afþreying
gæti sparað fólki klukkustundir á dag og
gert það betur að sér í því sem skiptir það
máli. Það er ekkert annað en bylting að
eiga sér stað hvað varðar sérsniðinn og
betri lífsstíl.
Saga til næsta bæjar
Edward Snowden gerði heimsbyggð-inni mikinn greiða með því að vekja
athygli á því að það eru aðilar eins og
NSA sem geta komist að öllu sem skiptir
máli um fólk með því að „hakka“ sig inn
í gögn á netinu. Þetta er óhugnanlegt en
raunverul eikinn í dag. Þetta er endirinn á
friðhelgi einkalífsins eins og við þekkjum
hana. Þetta þýðir hins vegar ekki að þetta
sé endirinn á einkalífinu heldur einungis
breyting á því. Rétt eins og bændurnir sem
vissu að þegar þeir töluðu í gamla sveit a-
sím ann að prestsfrúin væri sennilega á
hleri þá verður fólk í auknum mæli að átta
sig á því hvaða miðlar gætu gert það að
verk um að upplýsingar gætu orðið opin-
berar og hvaða miðlar geta tryggt friðhelgi
einkalífsins. Frelsið er yndislegt.