Vísbending - 18.11.2013, Qupperneq 1
Vikurit um viðskipti og efnahagsmál
V Í S B E N D I N G • 4 4 . T B L . 2 0 1 3 1
stundum meðan á vegferð þeirra stendur,
án þess að það virðist valda sýnilegum
stórskaða.
Þegar mikið liggur við eru allir greiðar
rukkaðir inn. Sumir þingmenn lenda í
hlutverki statista. Össur spilar á þing
menn Hreyfingarinnar eins og þeir séu
harmonikka í höndum hans. Hann lætur
þess oft getið að hann sé þungavigtarmaður
og að margir hafi skorað á hann að taka við
for mennsku af Jóhönnu.
Þegar allt virðist í hnút í þinginu hefur
Össur næma tilfinningu fyrir því að fljótt
muni úr honum rakna þó að aðrir sjái þess
engin merki. Rúmu ári fyrir kosningar sér
hann að Sigmundur Davíð muni binda sitt
trúss við Bjarna Benediktsson. Í augum
Sigmundar má sjá vott af því að hann
búi líklega yfir þeim „fágæta hæfileika
að kunna að skammast sín.“ Nokkrum
dögum eftir þá yfirlýsingu hafa fulltrúar
Framsóknar ekki tíma til þess að hitta
aðalmálflutningsmann Íslands í Icesave
málinu.
Oft segir Össur frá samræðum í ríkis
stjórn og hikar þá ekki við að til greina hver
sagði hvað. Samflokksmenn hans í þing
flokknum fá oftast sömu meðferð, en stöku
sinnum hlífir hann þó vinkonum sínum
sem verða „ein við staddra“ og „önnur“.
„Ein og önnur“ eru stuðnings menn
Jóhönnu.
Ríkisstjórnin
Kannski kemur það leikmanni mest á óvart
að á ríkisstjórnarfundum sitja ráðherrar
með símana í lúkunum og keppast við
að smassa (senda smsskeyti) hver á
annan. Mesta undrun vekur þó hversu
fámenn ríkisstjórnin er í fráögninni. Af
lestri bókarinnar er það helst að ætla að í
henni hafi setið fjórir: Össur, Jóhanna,
Ögmundur og Ólafur Ragnar Grímsson.
Undrum sætir hve stórt hlutverk
forsetinn leikur í lífi Össurar. Aldrei líður
langt á milli að vinirnir tali saman og
beri saman bækur sínar um stjórnmálin.
Í gegnum Össur fréttir Ólafur allt sem
gerist á stjórnarheimilinu. Meðan Jóhanna
er ýmist pirruð á Ólafi, eða með lífið í
18. nóvember 2013
44. tölublað
31. árgangur
ISSN 10218483
Össur Skarphéðinsson
skrifar bók um refilstigu
stjórnmálanna frá
sjónarhorni fagmanns.
Baráttan er hörð, ekki
síst við eigin félaga og
skoðanasystkin.
Í hruninu brugðust
hefð bundnar efnahags
kenningar og tími til þess
að finna nýjar.
Aðgerða ríkis stjórnar
innar í skulda niður
fellingum er beðið með
eftirvæntingu.
1 32 4
Bróðernið er flátt og gamanið grátt
Ár Drekans. Dagbók utanríkisráðherra
á umbrotatímum.
Össur Skarphéðinsson, Útgefandi:
Sögur 2013. 378 bls.
Líklega eru fáir sem gætu skrifað bók eins og Ár drekans. Össur Skarphéðinsson hefur marga menn
að geyma í einum líkama. Auk hlýlega,
hjálp sama og orðheppna náungans, sem er
umhyggjusamur faðir, má þar finna kjaft
fora frekjuhundinn sem setur eigin mál
ofar öllu, undirförla plottarann þar sem
tilgangurinn helgar öll meðöl, hégóm lega
sperrilegginn sem finnst gaman að segja
frá því að hann hafi samneyti við fínt fólk
og hrokafulla ráðamanninn sem talar um
sjálfan sig í þriðju persónu. Allir koma
þessir menn við sögu, sá síðasti þó lítið, í
dagbók ársins 2012 sem nú lítur dagsins
ljós undir nafninu: Ár drekans.
Ofmælt væri að segja að Össur segði sam
fellda sögu. Bókin er dagbók og segir því
atburði og hugsanir frá degi til dags. Þó er
greinilegt að við ritstjórn, jafnvel ritskoðun,
hefur hrár textinn sem skrifaður er í dagsins
önn breyst. Þankar eru svo þrauthugsaðir að
svo nákvæmlega getur mennskur maður vart
haft væntingar um óorðna atburði. Textinn
hefur á sér nostradamískt yfirbragð. Össur
er vel máli farinn og hnyttinn; frá sögnin
af hversdags legum samskiptum verður svo
lífleg að ég hef heyrt einn þeirra sem kom
að atburðarásinni þetta ár spyrja: Var þetta
virkilega svona?
Skyggnst bakvið tjöldin
Bók Össurar gefur skemmtilega innsýn
í það hvernig kaupin ganga á eyrinni í
pólitíkinni. Hann gumar af sínu pólitíska
nefi og sjötta skilningarviti sem í ritstýrðri
útgáfu bókarinnar er ótrúlega gott. Gaman
hefði verið að sjá skrifin eins og þau voru
fyrst, áður en höfundur fór mjúkum
höndum um textann, meitlaði og lagaði að
raunveruleikanum eins og hann varð.
Össur á nokkra vini innan þing
flokksins. Hann og Kristján Möller
brugga saman launráð og reyna að færa
málin í réttan farveg, sem breytist reyndar
lúkunum út af honum, sækir Össur stórar
og smáar veislur þjóðhöfðingjans og býður
honum í fjölskylduboð.
Milli Össurar og Jóhönnu er vopnaður
friður. Hún talar varla við hann vikum
saman, líklega út af landsdómsmálinu.
Verkstjórnin virðist í lágmarki og ráðherrar
eru seinir til að skila málum inn á þingið,
svo seinir að Össur man ekki eftir öðru
eins slyðrulagi frá upphafi Íslands byggðar.
Nema utanríkisráðherrann sem var
kominn með öll sín mál til afgreiðslu á
tilskildum tíma.
Ögmundur er álíka oft í talsambandi og
forsetinn en á öðrum tíma sólarhringsins.
Þeir Össur virðast oftast þurfa að ræða
saman um miðnættið. Þeim tekst að halda
vinskap þó að þeir rífist eins og hundur
og köttur yfir ríkisstjórnarborðið milli
þess sem smössin þeytast milli símanna. Í
lok hvers fundar takast þeir í hendur eins
og skákmenn sem hafa átt í heiftúðlegri
rimmu, en vilja leggja áherslu á að þeir séu
vinir í raunheimum þó að þeir séu svarnir
fjendur við skákborðið.
Össur móðgast við flokksystur sína
Oddnýju Harðardóttur fjármálaráðherra
framhald á bls. 2