Víkurfréttir - 13.10.2011, Qupperneq 13
13VÍKURFRÉTTIR • FIMMTudagurInn 13. OKTÓber 2011
Sorpeyðingarstöð Suðurnesja sf. óskar eftir starfsmanni í brennslustöð fyrirtækisins.
Unnið er á vöktum og um er að ræða tímabundna ráðningu.
Gerðar eru kröfur um menntun sem nýtist í starfið s.s. vélstjórnarréttindi og/eða menntun á sviði raf- eða vél-
virkjunar. Starfsmenn í brennslustöð þurfa að hafa frumkvæði og góða samskiptahæfni, geta unnið skipulega
og sjálfstætt og vera vel tölvufærir. Góð enskukunnátta er kostur.
Upplýsingar veitir framkvæmdastjóri í síma 421-8010
Umsóknarfrestur er til 17. október 2011
Umsóknir sendist til Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja sf.,
Berghólabraut 7, 230 Reykjanesbæ.
ATVINNA Í BOÐI
Settu Toyo harðskeljadekkin undir strax!
Ekki lenda í biðröð í haust!
Við bjóðum vaxtalaus
lán frá Visa og
Mastercard
í allt að 12 mánuði
N
jarðarbrau
t 9
420
3333
Þær eru margar minningarnar sem
koma upp í hugann nú þegar mín
elskulega amma, amma Fjóla, kveð-
ur þennan heim. Hann var einstak-
lega fallegur og sólríkur haustdag-
urinn sem hún amma valdi til þess
að fara í langferðina miklu.
Ég var svo heppinn að alast upp við
að hafa Fjólu ömmu á æskuheim-
ili mínu fyrstu 15 ár ævi minnar í
Baugholtinu. Þar naut ég góðs af
henni og þær voru nú ófáar brauð-
sneiðarnar með kæfunni og heitu
kakóbollarnir sem hún gerði handa
mér enda gerði hún langbesta kakó
í heimi. Oft sátum við saman og
horfðum á sjónvarp, lásum í bók
eða hlustuðum á útvarp og hún
sagði mér oft skemmtilegar sögur
úr æsku sinni í Grindavík.
Amma Fjóla ferðaðist mikið með
okkur og fór með mér í margar úti-
legur í bláa tjaldvagninum okkar
sem lifa í minningunni. Við fór-
um einnig saman til útlanda. Sér-
staklega er mér minnisstæð ferð
okkar fjölskyldunnar til Benidorm
árið 1978 þegar ég var 6 ára og ég sé
ömmu enn fyrir mér þegar hún var
að kenna mér að synda í lauginni á
hótelinu okkar.
Þegar amma flutti svo á Ásabraut-
ina árið 1987 kom ég til hennar
nánast daglega og fékk alltaf eitt-
hvað gott að borða hjá henni eins og
góðri ömmu sæmir. Fyrst um sinn
kom ég einn, svo bættist unnusta
mín Lára Sif í hópinn árið 1993 og
svo barnabarnabörnin Jón Smári,
Ólöf Rut og Viktoría Fjóla. Við Lára
Sif fluttum í Kópavoginn árið 1997
og reyndum við að koma eins oft
og við gátum að heimsækja ömmu
enda ómissandi að fá kakóbolla og
brauð með kæfu hjá henni ásamt
öðru góðgæti.
Ég hef alla tíð stundað íþróttir, sér-
staklega knattspyrnu og fylgdist
amma Fjóla vel með mér og safnaði
í úrklippubækur úr öllum blöðum
þar sem fjallað var um leiki mína
og færði mér svo til eignar þegar ég
hætti að spila. Þetta segir meira en
mörg orð um hugulsemi og vænt-
umþykju hennar í minn garð.
Eftir að amma Fjóla hætti að vinna
sat hún löngum stundum og föndr-
aði og stundaði starf eldri borgara í
Reykjanesbæ af miklum áhuga og
naut sín þar vel í góðra vina hópi.
Ég hef alltaf verið mikið jólabarn
og það vissi hún og gerði hún því
handa mér og fjölskyldu minni og
systkinum marga fallega jólalampa
og ýmislegt jólaskraut sem skreyt-
ir heimili okkar um hver jól. Ég
hef alltaf verið stoltur af og þótt
vænt um verk hennar og munu
þau halda á lofti minningu hennar
um ókomna tíð.
Þann 3. febrúar 2010 fæddist okk-
ur Láru Sif dóttir sem fékk nafnið
Viktoría Fjóla í höfuðið á lang-
ömmu sinni. Fjóla amma var yfir
sig stolt af litlu nöfnu sinni og að
sjálfsögðu mætti hún í skírnina
þrátt fyrir háan aldur og eigum við
fallegar myndir af Fjólunum okkar
þremur á þessum fallega degi.
Amma Fjóla átti 4 barnabörn og 7
barnabarnabörn sem hún fylgdist
vel með og var mjög stolt af og voru
þær ófáar myndirnar af þeim sem
prýddu íbúðina hennar á Ásabraut-
inni.
Amma lenti í alvarlegu bílslysi árið
1997 og var marga mánuði á spítala
en hún hristi það af sér enda lík-
amlega vel á sig komin. Hún varð
þó aldrei alveg söm og fyrir slysið.
Amma Fjóla hélt fullri heilsu
lengstan hluta ævi sinnar og bjó
ein á Ásabrautinni þar til fyrir
rúmlega ári síðan að hún flutti á
hjúkrunarheimilið Garðvang þá 89
ára gömul. Þann 17. janúar 2011
hélt hún upp á 90 ára afmælið sitt
með allri fjölskyldu sinni og áttum
við góða stund saman.
Ég verð alltaf þakklátur fyrir mánu-
daginn 26. september þegar ég kom
til ömmu og átti með henni nota-
lega stund og kvaddi hana, morg-
uninn eftir hringdi mamma svo
í mig og sagði að hún hefði kvatt
þennan heim á hljóðlegan og kyrr-
látan hátt.
Að leiðarlokum langar mig til að
þakka Fjólu ömmu fyrir allar þær
góðu og yndislegu stundir sem ég
og mín fjölskylda áttum með henni.
Minning um góða konu mun ávallt
lifa með mér. Blessuð sé minning
hennar. Guð blessi þig amma mín.
Elsku mamma, pabbi, Fjóla, Tóti,
Benný og fjölskyldur megi Guð
styrkja ykkur og hugga á þessum
erfiðu tímum. Missir okkar er
mikill.
Þinn dóttursonur
Ólafur Pétursson.
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Kletthálsi 7 - Reykjavík
Fuglavík 18 - Reykjanesbæ
Furuvöllum 15 - Akureyri
GOTT FYRIR BÍLINN
Deka Tjöru- og olíu-
hreinsir 4 lítrar
1.550
Rúðuvökvi -18°C
4 lítrar
540
TIA-JM-3340
Bílaþvottakústur
1.795
Ryk/blautsuga
15 lítrar HKV 1000w
18.900,-
1400W
360 min/lit/klst
Þolir 50C heitt vatn
5 metra barki
Sápubox
Black&Decker
háþrýstidæla
110 bar
15.900
Fjóla Benediktsdóttir
- minning -
Fjóla Benediktsdóttir fæddist á Þórkötlustöð-
um í Grindavík 17. janúar 1921. Hún lést
á hjúkrunarheimilinu Garðvangi þann 27.
september 2011.
Hún var dóttir Benedikts Benónýssonar frá
Þórkötlustöðum í Grindavík, f. 21. júlí 1894,
d. 29. júní 1953 og Magnúsu Aðalveigar Ólafs-
dóttur úr Grindavík, f. 23. september 1902, d.
26. október 1987. Systkini Fjólu eru: Þórlaug,
f. 25 apríl 1923, látin 19. september 2001,
Ólöf, f. 14. mars 1927, látin 24. september
2007, Benóný, f. 28. maí 1928, Jóhann Ragnar,
f. 14. nóvember 1930, Ólöf Sigurrós, f. 3. októ-
ber 1934 og Elsa, f. 20 mars 1938. Foreldrar
hennar voru bæði með búskap og útróðra ásamt Guðmundi bróður
Benedikts og Sigríði systur Magnúsu og bjuggu þau alla tíð í sama húsi
á Þórkötlustöðum og átti hún góða æsku með þeim. Fjóla vandist allri
vinnu frá unga aldri og fór í vist til Reykjavíkur. Hún lauk barnaskóla-
prófi og fór síðan að læra matreiðslu á hótel Skjaldbreið í Reykjavík.
Fjóla giftist Ingólfi Eyjólfssyni, þau slitu samvistir. Fjóla eignaðist eina
dóttur, Ingibjörgu, f. 26. nóvember 1940, maki Pétur Þórarinn Þór-
arinsson, f. 28. júlí 1933. Fjóla eignaðist fjögur barnabörn og sjö barna-
barnabörn sem hún lifði fyrir. Þau eru: Fjóla, f. 20. nóvember 1959.
Þórarinn, f. 25. febrúar 1965. Maki Þóra Hafsteinsdóttir, börn þeirra
eru Ingibjörg Þóra og Klara Lind. Benedikta, f. 16. desember 1966.
Maki Haukur Ingi Jónsson, börn þeirra eru Pétur Ingi og Helga Ósk.
Ólafur, f. 7. febrúar 1972. Maki Lára Sif Jónsdóttir, börn þeirra eru Jón
Smári, Ólöf Rut og Viktoría Fjóla.
Fjóla fluttist til Keflavíkur 1941 og bjó þar alla tíð síðan. Hún vann alla
almenna vinnu í fiski, síld og saltfiski. Hún vann við afgreiðslustörf
stærstan hluta ævi sinnar, mest í versluninni Eddu í Keflavík. Hún
starfaði með öldruðum í mörg ár þangað til heilsan fór að gefa sig og
tómstundastarfið fluttist á Nesvelli.
Útför Fjólu Benediktsdóttur fór fram frá Keflavíkurkirkju 7. október
2011, kl. 13.
›› SVART ‹‹
og sykurlaust
Hver kannast ekki við allar dulbúnu áfengisauglýs-
ingarnar frá bjórframleiðend-
um, þar sem orðinu „léttöl“ er
bætt aftan við auglýsinguna.
Léttölið er síðan selt úti í næstu
sjoppu en sterkari drykkurinn í
Ríkinu. Söluturn einn á Suður-
nesjum var hins vegar með bjór
til sölu á dögunum. Söluturn-
inn hafði fengið sendingu frá
framleiðanda og í sakleysi sínu
var dósum af því sem talið var
vera Víking léttöl raðað í kæl-
inn. Fljótlega komu þó upp
vandræði með strikamerkið á
vörunni, enda var það ekki til í
sölukerfi verslunarinnar. Fljót-
lega varð starfsfólkinu þó ljóst
að þarna var um alvöru bjór
að ræða en ekki léttöl. Fjórar
dósir höfðu verið seldar og því
einhverjir sem hafa fundið fyr-
ir óvenju miklum áhrifum af
léttölinu þann daginn.
Seldu bjór í stað léttöls