Heima og erlendis - 01.10.1952, Side 1

Heima og erlendis - 01.10.1952, Side 1
5. árg. 4. tbl. Heima og erlendis Um Islaml og Islendinga erlendis Október 1952 ÍSLENDINGAR FAGNA í KAUPMANNAHÖFN XI. Sumarfagnaður. þetta er þriöja grein- in í þessari syrpu og verður sú síðasta fyrst um sinn, enda þótt enn sé af nokkru að taka á því sviöi. jþessi fundur er haldinn árið 1937, og læt eg fundabók Islendinga- félags segja frá: „Sumarfagnaö hjeltlslendingafjelagið föstu- daginn 30. apríl kl. 8V2 e- h. (ekki stund- víslega eins og stendur í fundarhoðinu) í Borgernes Hus, sem er hús íhaldssinnaðra Dana, í Rósinhorgargötu 1. Fundurinn eða fagnaðurinn öllu heldur, var vel sóttur og fór að áliti ritarans vel og skipulega fram. Davíð Stefánsson — stórskáldið sem venju- lega er kent við Fagraskóg — hjelt ágæta og skörulega ræðu, sem skrifuð er aptan við fundargerðina, og á eptir söng snillingurinn með ítalska nafnið Stefano Islandi, lög þau sem prentuð eru í fundarboðinu og ljek Haraldur Sigurðsson að vanda undir á klóf- ferjuna... . Dansað var til kl. 2 og spilaði ágæt hljóm- sveit — svo notuð sjeu enn orð fundarboðs- ins — undir dansinum. jjetta var síðasti fundur starfsársins 1936—1937.“ Svo fer hér á efdr ræöa Davíðs Stefáns- sonar: „Sá sem stígur á skipsfjöl í erlendri höfn að áliðnu vori, og heitir ferð sinni til Is- lands, getur átt þaö á hættu, að sjá þar alt snævi þakið. Hann siglir hurt frá heiðbláum himni, sáðum ökrum, laufguðum skógum, en þegar hann kemur til Islands, sjer hann þar ef til vill öll einkenni hins grimma vetrar, gráa hríðarhólstra hanga yfir hvítum klakabreiðum. Hann sigldi frá strönd þar, sem vorið liaföi ^eyst alt úr vetrarálögum og sólin skín vor- langan daginn. Öldungarnir höfðu kastað loðfeldinum og litlu stúlkurnar voru komn- ar í hvíta sokka. það var sÖDgur og angan og gleðin dansaði í loptinu. Frá öllu þessu verður hann að hverfa og með vorhug læt- ur hann í haf. Ef til vill er þó hugur hans þrátt fyrir alla erlendu dýrðina, kominn langt á undan honum heim, skip hans veður sjó- ina, hann svelgir hafrænuna í stað skógar- ilmsins og loks kemur stundin mikla. Hann sjer ísland risa úr sæ, í sinni hvítu þöglu tign — eins og tröllmikið klakamusteri. Vel getur farið hrollur um suma við að sjá slika sjón, og er síst furöa, þó ókunnugir efist um, að þetta klakabákn sje manna- bústaður. En íslendingurinn veit, að þetta er fööur- land hans, landið sem gaf honum líf, sem með dulmætti sínum kveikti heimþrá hans, meðan hann dvaldi erlendis og seiddi hug hans til ilugs — heim yfir hafið. Hann veit að þarna húa yfir 100,000 manna, sem allir þrá vorið. þarna í snjónum, þarna í klakan- um eru þorp og hálffent hændabýli — en eld veit hann hrenna á hverjum arni. Heimili sendiherra íslands í Kaupmannahöfn, A. N. Hansens Allé 5, Hellerup 25

x

Heima og erlendis

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima og erlendis
https://timarit.is/publication/1100

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.