Heima og erlendis - 01.10.1952, Qupperneq 6
manna o. s. frv. b) aÖ ræÖa áhugamál fyrst
og fremst félagsmanna sjálfra, en einnig
allrar al|)ýÖu bæði á Islandi og erlendis.
c) aö auka þekkingu félagsmanna meö fræð-
andi fyrirleslrum um þjóðfélagsmál, bók-
mentir, listír o. s. frv. og e. t. v. meÖ ann-
ari fræðslustarfsemi. d) að auka áhuga fé-
lagsmanna fyrir íslenskum málum og gera
þeim auÖveldara að fylgjast meö í þeim, t.
d. meÖ því aö fá Islendinga, sem aÖ heiman
koma, til þess að skju’a frá síóustu viöburð-
um í þjóðmála- og menningarlífi á Islandi
og ræða málin með þeim. Utvega nýjustu
íslensk blöð og tímarit og leggja þau fram
til lesturs fyrir félagsmenn. e) aö leiðbeina
félagsmönnum og löndum, sem hingaö koma
og vera þeim innan handar, eftir því sem
föng eru á (t. d. með lögfræöilega aðstoð
eða þ. u. 1.). f) aÖ halda uppi ódýrum
skemtunum, eftir sem unt er. g) að auka
samhug, samheldni og viðkynningu félags-
manna.
3. gr. FélagiÖ heldur fundi helst ekki
sjaldnar en hálfsmánaöarlega, mánuðina
september—júní að þeim meötöldum.
4. gr. Tillag til félagsins er kr. 0,60 á
mánuði, starfsmánuöina og greiðist fyrir
hvern mánuÖ, ekki síÓar en á fyrsta fundi
í mánuðinum.
5. gr. Aðalfundur skal haldinn í október
mánuöi ár hvert. Ennfremur er stjórninni
skylt að boða til auka-aÖalfundar, ef aö m.
k. V3 félagsmanna krefst þess skriflega af
henni eða samþykki það á venjulegum fé-
lagsfundi, og skal þá slíkur fundur haldinn
ekki síöar, en hálfum mánuði eftir að stjórn-
inni barst áskorunin. Sinni stjórnin ekki
áskoruninni, getur J/a félagsmanna boðaÖ
til hans. Aðalfundir eru lögmætir, ef þeir
eru boÖaÖir skrillega meö a. m. k. fjögra
daga fyrirvara, enda sé helmingur félags-
manna mættur. Nú mætir ekki helmingur
félagsmanna. Skal þá boðað til fundar á ný
og er hann J)á lögmætur, ef hann var lög-
lega boðaöur.
6. gr. AÖalfundur kýs stjórnina og nær
kjörtimabil hennar til næsta aöalfundar,hvort
sem bann er reglulegur eöa auka-aöalfundur.
Stjórnin er skipuð 5 mönnum: formanni,
ritara, gjaldkera og 2 meÖstjórnendum og
skiftir hún sjálf með sér verkum. Til vara
skulu kosnir 3 menn og skal taka varamann
inn í stjórnina, hvenær sem rueðlimur henn-
ar forfallast, þó ekki sé nema um stundar-
sakir. Einnig skal kjósa 2 endurskoðenda
og einn til vara og er kjörtímabil þeirra
hiÖ sama og stjórnarinnar. A aðalfundi skal
stjórnin gefa skýrslu um starfið á starfstíma-
bili hennar, og leggja fram reikninga félags-
ins með vottorÓum endurskoÖenda.
7. gr. Lögum félagsins má aðeins breyta
á aðalfundi. Einfaldur meirihluti atkvæÖa
ræður úrslitum allra félagsmála.
Undirbúningsnefndin^.
Stjórn íslendingafélags hélt fund með sér
til að ræða þessa félagsstofnun og segir í
fundabók félagsins 21. nóvember 1931:
„Laugardaginn 21. nóv. var fundur haldin
með stjórn Islendingafélagsins í „Café Buriis^
kl. 5 síÖd. Stjórn Islendingafélagsins hafÖi
nokkru áður borist bréf án undirskrif'tar, til
þess að mæta í „Sludentersamfundet" föstu-
daginn 13 nóv., þar sem ræða ætti stofnun
nýs félags meðal landa hér. Tveir úr stjórn-
inni formaður (M. Bartels) og gjaldkeri (Jiorf.
Kr.) mættu á fundinum og gátu þess, að
ekki væri þörf á stofnun slíks félagsskapar,
með því að tilgangur Islendingafélagsins sé
sá, aÖ lialda uppi fundum fræÖandi og skemt-
andi efnis meðal Islendinga hér, eins og
gert hafi verið áður.
Eftir að mjög margir voru farnir af fuud-
inum, kom fram tillaga um að stofna félagið
og var hún samþykt meÖ 17 atkvæðum
gegn 16.
Nokkru seinna kom nefnd frá þessu nýja
félagi til formanns Islendingafélagsins og
bauö samvinnu við Islendingafélagið, eftir
þeim skilyrÖum sem hér eru lijálögö (sarn-
ber einuig lög bins nýja félags).
Annar nefndarmanna (sem var Hjalli Arna-
son, en liinn Hjörtur Halldórsson) gat þess,
aö í liinu nýja félagi væru 35 meðlimir og
myndu þeir vilja ganga í IslendingafélagiÖj
ef þeir yröu ánægðir meÖ fundi þess.
Skilyrði þessi bar formaÖur Islendingafe'
lagsins fram á stjórnarfundinum, og þar sern
að áður bafði veriö samþykt á stjórnarfundi
að stofna til málfunda, og meÖ því aÖ 1 ög
Islendingafélagsins mæla svo fyrir, aÖ stjórnin
annist öll störf þess, var samþykt að lata
nefndina vita, að íslendingafélagiÖ myndi
sjálft stofna til málfunda, og gætu þeir þa
30