Heima og erlendis - 01.12.1956, Blaðsíða 1

Heima og erlendis - 01.12.1956, Blaðsíða 1
5). árgT. 2. tbl. Heima og erlendis Um Island og Islendinga erlendis Dcsember 1950 SITT AF HVERJU UM ÍSLENDINGA í KAUPMANNAHÖFN þaÖ er laugardagur. Eg hætti vinnu kl. 13. það er bjart veÖur og þurt og eg hefi ásett mér aÖ setja mig á hekk viÖ Orstedsveg og njóta veðurblíÖunnar. Annars er ekki vísl aÖ eg fari meira út í dag, því þurfi eg engra erinda þegar heim kemur, er liæpiÖ aÖ eg nenni aÖ fara út aftur. MeÖ mér er vinur minn, hann fylgir mér eins og skuggi sjálfs mín. ViÖ erum háóir fæddir í lleykjavík sama ár, mánuÖ og mán- aðardag. Höfum veriÖ hér jafn lengi, höf- umst þaÖ sama aÖ, erum samrýmdir en liöfum ekki ávallt sömu skoóun á hlutun- um. Við getum hnakkrifist, en sættumst þó ávallt án milligöngumanns. það skilur okk- ur lika, aö eg er tvöfaldur í roÖinu en hann einfaldur, eg er tvöfaldur þannig, aö eg nefni mig annað á kvöldin og sérstaka tilli- daga, en vinur minn nefnir sig aldrei ann- að en þaÓ, sem hann er á daginn. Nú sitjum viÖ hér og gónum út í loftiÖ. En svo dettur mér í hug aÖ spyrja vin minn hvort hann kannist viÖ nafn, sem eg hafÖi nýlega rekist á í símaskránni, og taldi ís- lenskt. — Nei, segir hann. En eg hefi stundum til gamans flett í símaskránni og fundiÓ þar íslensk nöfn eÖa af íslenskum stofni, eða sem mér hefir fundist sjálfsagt aÖ væru þaÖ, án þess þó aÖ hafa vissu fyrir því, eða vita nokkur deili á mönnunum. Eg hefi fundiÖ þar fólk af öllum stéttum og sem eg þykist viss um að séu Islendingar eða afkomendur Islendinga. Aö sjálfsögðu þekki eg líka margt af þessu fólki. Eg liefi fundið þar: rakara, bakara, kaupmenn, trésmiði, málara, klén- smiði, arkitekta, lækna og annarra stétta fólk. þá eru í símaskránni ýms íslensk kvenna- nöfn, sem eg veit engin deili á, mér hefir þó skilist, aÖ undir þeim fleslum leyni sér ógiftar konur, sem hafi búið hér lengi, eða ekkjur, en þá er gátan líka vandráðnari, því þó hún heiti A. Björnsson eÖa S. Jónsson, getur ekkjan veriö dönsk. En eg hefi rekist á íslenska konu sem hefir wsjoppuw, eins og þeir kalla það heima. Mig minnir aö hún húi í Strandgade. Hefir þú ekki rekiÓ augun í þetta, segir vinur minn. Jú, segi eg, eg kannast viÖ nokkuð af þessu fólki og sumt þekki eg. Af sumum nöfnum veit eg, að eg hefi séÖ persónuna á fundi Islendingafélags, en fæst kemur þar leugur. En annars er rétt aÖ vera varkár með að dæma þjóðerni manna af nöfnum þeirra. Eg man eftir danskri stúlku, sem Is- lendingafélag hafði sent fundarboð eÖa frétta- hréf, af því að föðurnafn liennar var islenskt. Stúlkan hrást reið við, sagðist ekkert eiga sameiginlegt meö Islendingum, nema aðeins að vera fædd á Islandi, og óskaði aó félagið léti hana í friði framvegis. I nágrenni mínu liýr islenskur hakarameistari, eg man eftir lionum að heiman, hann vann ekki langt frá prentsmiöjunni, sem eg vann í. Og mér liefir oft fundist þaÖ einkennileg tilviljun, aö við skyldum líka veröa nágrannar hér í Höfn. Hann hefir haft brauÖgeróahús við Vesturbrúgötu síÖustu 15—20 árin. Eg hefi líka rekist á íslenskan hlaðsala á Amager, hann haföi þar kiosk. Seinna hefi eg heyrt, að hann hafi veikst og ekki náÖ fullri heilsu aftur. J>á veit eg líka um Islending, er gefur út blaÖ í Ilerlev, hér í nágrenni Hafnar, Folkehladet lieitir það og er mest auglýsing- ar, sá heitir SigurÖur Kristjánsson. Ætli hann sé ekki eini Islendingurinn sem oi'ÖiÖ hefir ritstjóri aÖ dönsku blaÖií Jú, hér eru margir landar og í ýmsum stöðum, en sem við vit- um lítil eöa engin deili á. Svo segir vinur minn: J>ú liefir veriÖ aÖ leyta uppi Islendinga hér, þú ættir því að

x

Heima og erlendis

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima og erlendis
https://timarit.is/publication/1100

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.