Fagnaðarboði - 01.03.1950, Qupperneq 1

Fagnaðarboði - 01.03.1950, Qupperneq 1
En leitiö fyrst rílás Hans og réttlcetis, og þá mun altt þetta veitast yöur að auki. Heyrið allir þér Heyrið, allir þér, sem þyrstir eruð, komið hingað til vatnsins, og þér sem ekkert silfur eigið, komið, kaupið korn og etið! Komið, kaup- ið korn án silfurs og endurgjaldslaust bæði vín og mjólk? Því reiðið þér silfur fyrir það, sem ekki er brauð, og gróða yðar fyrir það, sem ekki er til saðnings. Hlýðið á mig, þá skuluð þér fá gott að eta og sálir yðar gæða sér á feiti. Hneigið eyru yðar og komið til mín,heyrið svo að sálir yð- ar megi lifna við! Og ég vil gjöra við yður eilífan sáttmála, Davíðs órjúfanlega náðarsáttmála. Sjá ég hefi gjört Hann að vitni fyrir þjóðirnar, að höfðingja og stjórnara þjóðanna. Sjá, þú munt kalla til þín þjóð, er þú þekkir ekki, og fólk, sem ekki þekkir þig, mun hraða sér til þín, sakir Drottins Guðs þíns, og vegna hins Heilaga í ísrael, af því að Hann hefur gjört þig vegsam- legan. Leitið Drottins, meðan Hann er að finna, kallið á Hann, meðan Hann er nálægur. Hinn óguðlegi láti af breytni sinni og illvirkinn af vélráðum sínum og snúi sér til Drottins, þá mun Hann miskunna honum, til Guðs vors, því Hann fyrir- gefur ríkulega. Því að mínar hugsanir eru ekki yðar hugsanir, og yðar vegir ekki mínir vegir, segir Drottinn, heldur svo miklu sem himininn er hærri en jörðin, svo miklu hærri eru mínir vegir yðrum vegum og mínar hugsanir yðrum hugsunum. Því eins og regn og snjór fellur af himni ofan og hverfur eigi þangað aftur fyr en það hefur vökvað jörðina, gjört hana frjó- sama og gróandi, og gefið sáðmanninum sæði og brauð þeim, er eta, eins er því farið með mitt Orð, það er útgengur af mínum munni: Það hverfur ekki aftur til mín við svo búið, eigi fyr en það hefur framkvæmt það, sem mér vel lík- ar, og komið því til vegar, er ég fól því að fram- kvæma. Já, með gleði skuluð þér út fara, og í friði burt leiddir verða. Fjöll og hálsar skulu hefja upp fagnaðarsöng fyrir yður, og öll tré merkurinnar klappa lof í lófa. Þar sem áður voru þyrnirunnar, rnun kýprusviður vaxa, og þar sem áður var lyng, mun myrtusviður vaxa, og þetta mun verða Drottni til lofs og eilífs minningar- marks, sem aldrei mun afmáð verða. Jesaja 55.

x

Fagnaðarboði

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fagnaðarboði
https://timarit.is/publication/1103

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.