Fagnaðarboði - 01.03.1950, Blaðsíða 1
En leitiö fyrst rílás
Hans og réttlcetis, og
þá mun altt þetta
veitast yöur að auki.
Heyrið allir þér
Heyrið, allir þér, sem þyrstir eruð, komið
hingað til vatnsins, og þér sem ekkert silfur
eigið, komið, kaupið korn og etið! Komið, kaup-
ið korn án silfurs og endurgjaldslaust bæði vín
og mjólk? Því reiðið þér silfur fyrir það, sem
ekki er brauð, og gróða yðar fyrir það, sem ekki
er til saðnings. Hlýðið á mig, þá skuluð þér fá
gott að eta og sálir yðar gæða sér á feiti. Hneigið
eyru yðar og komið til mín,heyrið svo að sálir yð-
ar megi lifna við! Og ég vil gjöra við yður eilífan
sáttmála, Davíðs órjúfanlega náðarsáttmála. Sjá
ég hefi gjört Hann að vitni fyrir þjóðirnar, að
höfðingja og stjórnara þjóðanna. Sjá, þú munt
kalla til þín þjóð, er þú þekkir ekki, og fólk, sem
ekki þekkir þig, mun hraða sér til þín, sakir
Drottins Guðs þíns, og vegna hins Heilaga í
ísrael, af því að Hann hefur gjört þig vegsam-
legan.
Leitið Drottins, meðan Hann er að finna, kallið
á Hann, meðan Hann er nálægur. Hinn óguðlegi
láti af breytni sinni og illvirkinn af vélráðum
sínum og snúi sér til Drottins, þá mun Hann
miskunna honum, til Guðs vors, því Hann fyrir-
gefur ríkulega. Því að mínar hugsanir eru ekki
yðar hugsanir, og yðar vegir ekki mínir vegir,
segir Drottinn, heldur svo miklu sem himininn
er hærri en jörðin, svo miklu hærri eru mínir
vegir yðrum vegum og mínar hugsanir yðrum
hugsunum. Því eins og regn og snjór fellur af
himni ofan og hverfur eigi þangað aftur fyr
en það hefur vökvað jörðina, gjört hana frjó-
sama og gróandi, og gefið sáðmanninum sæði
og brauð þeim, er eta, eins er því farið með mitt
Orð, það er útgengur af mínum munni: Það
hverfur ekki aftur til mín við svo búið, eigi fyr
en það hefur framkvæmt það, sem mér vel lík-
ar, og komið því til vegar, er ég fól því að fram-
kvæma. Já, með gleði skuluð þér út fara, og í
friði burt leiddir verða. Fjöll og hálsar skulu
hefja upp fagnaðarsöng fyrir yður, og öll tré
merkurinnar klappa lof í lófa. Þar sem áður voru
þyrnirunnar, rnun kýprusviður vaxa, og þar sem
áður var lyng, mun myrtusviður vaxa, og þetta
mun verða Drottni til lofs og eilífs minningar-
marks, sem aldrei mun afmáð verða.
Jesaja 55.