Fagnaðarboði - 01.03.1950, Síða 8

Fagnaðarboði - 01.03.1950, Síða 8
8 FAGNAÐARBOÐI Draumurinn Þegar ég var ungur, kom Fredrik Fransson þangað sem ég átti. heima og þá varð vakning þar. Margir komust yfir á Guðs veg. Eg var einnig með, það er að segja, ég hreyfst af And- anum, beygði kné mín, en það varð aldrei algjör uppgjöf. Eg sameinaðist söfnuðinum, var settur í kórinn, og gekk einnig inn í unglingadeildina. Þetta var allt talið lofsamlegt. Eg var oft óró- legur yfir þeirri hugsun, að það væri eitthvað milli mín og Guðs, sem væri óuppgert, ég hugg- aði sjálfan mig með því, að ég mundi lifa lengi og þá gæti ég að lokum fært allt í lag, og komist síðan inn í himininn. Tíminn leið og allt virtist vera í lagi, þar til Guð mætti mér í draumi. Mig dreymdi að það var skínandi bjartur sunnudagsmorgun og allur söfnuðurinn og unglingafélagið væri á leið til himins, með járnbrautarlest, er legði á stað kl. 7, frá Austurbrautarstöðinni. Allar götur voru fullar af fólki, er flýtti sér sem mest það mátti, til þess að ná lestinni. Eg fylgdist einnig með, en þegar ég kom á stöðina, sá ég að allt var orðið fullt. Lestin var orðin troðfull og búið að loka öllum dyrum. Meðfram endilangri lestinni var löng stöng, sem handfang, er hægt var að halda í ef maður gæti þrengt sér það nærri. Þetta tókst hjá mér, ég þrengdi mér fram, náði taki á stöng- inni og fótfestu fyrir annan fótinn, á gangbrún- inni. Lestin lagði af stað. Enn get ég séð fyrir aug- um mér, þá ofboðslegu skelfingu, er var uppmál- uð á andlitum þeirra er eftir urðu. Nokkru síðar heyrði ég allt í einu kallað með þrumandi röddu, að allir þeir, sem væru utan á lestinni og héldu sér í stöngina yrðu að flýta sér inn í hana, annars mundu þeir merjast sundur í jarðgöng- unum, er lestin færi brátt gegnum. En lestin var full, dyrunum lokað og enginn gat komist inn. Allt í einu sáum við hvar lestin var að byrja að fara inn í fjallið, en jarðgöngin voru svo þröng, að ekki svo mikið sem eitt strá gat rúmast á milli lestarinnar og veggjanna. Þá kvað við gegnum- skerandi neyðarvein frá öllum þeim er héngu Heyr þitt kall Einn serafanna flaug þá til mín; hann hélt á glóandi steini, sem hann hafði tekið af altarinu með töng; og hann snart munn minn með stein- inum og sagði: „Sjá, þessi hefir snortið var- ir þínar; misgjörð þín er burt tekin og friðþægt er fyrir synd þína.“ Þá heyrði ég raust Drottins, Hann sagði: „Hvern skal ég senda? hver vill vera erindreki vor.“ — „Eg sagði: „Hér er ég, send þú mig!“ Jes. 6, 6—8. utan á. I hræðsluæðinu, sem greip mig missti ég taki af stönginni og féll aftur yfir mig niður i gljúfrin. Þar með vaknaði ég. Fyrstu mínútun- um á eftir get ég ekki lýst, en þegar ég komst smátt og smátt til meðvitundar um að ég væri ennþá á jörðinni og lá í rúmi mínu heima hjá pabba mínum og mömmu, fór ég þá að hágráta, skreiddist fram úr, kraup við rúmið mitt o gafst með öllu í Guðs hönd. Þið ungir eða gamlir, sem lesið þetta, og eruð í sama ástandi og ég var, að þið eruð með, eða þið eruð hlyntir kristilegu starfi, en hafið ekki látið frelsast, — munið það, að það eru aðeins þeir, sem eru inni í lestinni er komast alla leið. Hinir munu allir merjast í sundur í jarðgöng- unum. Enginn veit hvenær lestin leggur á stað, hraða þér því í dag að komast inn áður en það er orðið of seint. GuÖjón Gíslason þýddi. 3. árg. 1950 3. tölublað Gefið út af Sjálfseignarstofnuninni Austurgötu 6 Hafnarfirði. — Simi 9075 Ritnefnd: Einar Einarsson, Frímann Ingvarsson og ögmundur Jónsson. Fagnaðarboði kemur út þrisvar á ári 8 bls. Verð 1 kr. blaðið. Þeir, sem óska eftir að fá blaðið sent, sendi afgreiðslunni nöfn sín og heimilsfang. Gjalddagi blaðsins er fyrir áramót.

x

Fagnaðarboði

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fagnaðarboði
https://timarit.is/publication/1103

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.