Fagnaðarboði - 01.01.1953, Side 6
6
FAGNAÐARBOÐI
innri byltingar í sálarlíf okkar svo sjáandi sjá-
um vér.
Hið yfirnáttúrulega verður aldrei fullkomlega
útskýrt og hið andlega verður aldrei greint með
mannlegum augum. Guð okkar er enginn mann-
vera. Hann er undranna Drottinn.
Nú á okkar dögum er Guð að vígbúast til
lokauppskerunnar meðal hinna sjúku. Hann
hefur sent votta sina til allra þjóða, votta, sem
við höfum kallað ,,lækningapredikara“ (hel-
bredelses-evangelister).
Þessir menn eru ekkert annað en vottar trú-
arinnar, er flytja állan boðskapinn óskertan, það,
sem við allir ávallt hefðum átt að gera.
Og nú er Drottinn að bæta okkur skaðann.
Tíminn er kominn, þegar við verðum að leggja
við hlustirnar svo við fáum héyrt hvað Andinn
segir söfnuðunum á þessum síðustu tímum.
Brennandi í trúnni eigum við að flytja þann
boðskap, sem við í fyrstu fengum frá Drottni
sjálfum.
Herrann Drottinn hefir gefið mér lærisveina
tungu, svo að ég hefði vit á að styrkja hina
mæddu með orðum mínum; Hann vékur á
hverjum morgni, á hverjum morgni vékur Hann
eyra mitt, svo að ég taki eftir, eins og lærisvein-
ar gjöra. Herrann Drottinn opnaði eyra mitt og
ég þverskallaðist eigi, færðist ekki undan.
Jes. 50, —5.
TREYSTIÐ DROTTNI.
Þýtt úr Hjemmets Venn, Trondheim.
Qcrisi áskri$endur
ALMENNARSAMKOMUR
BOÐUN FAGNAÐARERINDISINS
Austurgötu 6 — Hafnarfirði
Sunmuiaga kl. 2 og 8 e. h.
Þriðjudaga kl. 8 e. h.
Fimmtudaga kl. 8 e. h.
Laugardaga kl. 8 e. h.
Gefið út af Sjálfseignarstofnuninni Austurgötu 6
Hafnarfirði. Sími 9075. — Afgreiðsla sama stað.
Áætlað er að 5 blöð komi út þetta ár.
Árgjald blaðsins er kr. 5
en í lausasölu kr. 1,25 eintakið.
Bréf.
Heil og sæl!
(Ég leitast við í mínum veikleika, að senda þér
þetta bréf, sem svar við befðni þinni. Ég bið
Drottinn náðarinnar um að gefa þér skiling á því,
sem Hans er, svo málið verði þér ljóst.
Náð og friður Krists Jesú sé með öllum, er
sannleikann elska).
Þegar ég les Fagnaðarerindi Jesú Krists Guðs
Sonar, finn ég hvergi með einu orði gefið til
kynna nema eina trú. Trú, sem byggist á Orðum
og boðum Hans, sem er höfundur og fullkomnari
trúarinnar, Jesú Krists. Hvorki í nýja né gamla
Sáttmálanum er með einu orði talað um andatrú,
en víða í Ritningunni er talað um andavillur og
jafnframt varað við þeim.
Eigi skal nokkur finnást hjá þér, sá er láti
son sinn eða dóttur ganga gegnum éldinn, eða
sá er fari með galdur eða spár eða fjölkyngi,
eða töframaður, eða gjörningamaður eða sœr-
ingamaður eða spásagnamaður, eða SÁ ER
LEITI FRÉTTA AF FRAMLIÐNUM. Þvi að
hver sá, er slíkt gjörir, er Drottni andstyggileg-
ur, og fyrir slíkar svivirðingar rekur Drottinn,
Guð þinn, þá burt undan þér. Mós. 18,10—12.
Allir, sem vilja leita og elska sannleikann, leita
til Hans, sem er SANNLEIKURINN. Jesús er
sannleikurinn og ef við viljum hann þá leitum
við til Hans.
Ég geri ráð fyrir að þyrstur maður leiti að
hreinu lindinni og drekki af henni, ef hann á
kost á því, 'hve margar gruggugar lindir, sem
kunna að renna við hlið hinnar hreinu.
Svo er það um sannleikann. Ef við leitum til
Hans, sem er sannleikurinn, þá finnum við sann-
leikann. Fyrst nú margir Ritningarstaðir vara
okkur við villukenningunum, en enginn, sem
bendir okkur í þá áttina, heldur allir frá þeirri
synd og villu, því ættu þá ekki allir, sem sann-
leikann vilja, að hafna slíkri tilbeiðslu við óvin
alls réttlætis. Margir hyggja ekkert að hvað
sannleikans er og vilja alls ekkert með hann
hafa. En aðrir vegir en friðþægingarvegur Jesú
Krists eru frá öðrum en Guði Föður. Það sýnir
Guðs góða Orð oss í Orðskv. 16, 25. Margur
vegurinn virðist greiðfær, en endar þó á hel-
slóðum.
Allir spámenn Ritninganna og Jesús Kristur
sjálfur, sem veitir oss alla þekkingu á Guði, og
hinir trúu lærisveinar Hans, er tóku við Gleði-