Fagnaðarboði - 01.01.1953, Blaðsíða 7
FAGNAÐARBOÐI
7
boðskapnum af Honum, flytja allir einum munni
Hjálpræði Guðs til fyrirgefningar syndanna,
hreina og fullkomna sáluhjálp fyrir hvern, sem
til Krists kemur, og Hans boðum og lögum hlýðir.
Hann kom til þess að veita öllum eilíft líf. Allir,
sem af Honum eru fæddir og fræddir hafa því
eilíft líf með Honum. Þeir eru Krists vottar í
dag, með því að þeir lifa í Honum og Hann í
þeim, svo daglega veita þeir Hans skipunum við-
töku til þess að gera Hans vilja.
Þeir einir vita að Jesús Kristur er lifandi
Frelsari, sem þegið hafa af Honum frelsið.
Þar efast enginn um, að allt er líf og enginn
dauði fyrir þá, sem trúa á Hans upprisukraft.
Trúa! — Hvað er nú það?
Það er að finna, lifa og þjóna samkvæmt þeirri
kenningu, er Guð hefur búið okkur, sem endur-
leystum börnum, svo við erfum Guðsríkið eins
og okkur er búið í sigri Jesú Krists, með rétt-
læti Hans.
Heyr og athuga það, að Hjálpræði Guðs var
til á undan manninum, frá upphafi gjöf frá Guði
til mannsins.
Hann var að sönnu þekktur fyrirfram, áður
en veröldin var grundvölluð, en var opinberaður
i lok tímanna vegna yðar. I. Pét. 1, 20.
1 Hjálpræðinu megir þú svo þekkja kærleika
Guðs til þín, og reynast eftir að endurfæðingin
hefur átt sér stað, í elskunni til Hans, — hvort þú
vilt elska Guð eða hata Hann. Að elska Hann er
að halda Hans boðorð, að hata Hann, er að rang-
færa Guðs Orð og boða þar með lygina, sem
er verk djöfulsins.
Úti gista hundarnir og töframennirnir og
frillulífismennirnir, og manndrápararnir og
skurðgoðadýrkendurnir og hver, sem élskar og
iðkar lygi. Opb. 22, 15.
En fyrir hugdeiga og vantrúaða og viður-
styggilega, og manndrápara og frillulífismenn og
töframenn, og skurðgoðadýrkendur og alla lyg-
ara — þeirra hlutur mun vera í díkinu, sem
logar af eldi og brennisteini, sem er hinn annar
dauði. Opb. 21, 8.
Sannkristnir menn vita, að Satan er höfund-
ur lyginnar. Um hann segir Jesús í Jóh. 8, 44.:
Hann var manndrápari frá upphafi og stendur
ekki i sannleikanum, því að sannleiki er ekki i
lionum; þegar hann tálar lygi, talar hann af sinu
eigin, þvi að hann er lygari og faðir lygarans.
Getur andatrúin verið huggunarboðskapur
til syrgjandi manna, sem eru að farast úr sorg
og angist af því að ástvinirnir eru horfnir þeim?
Nei, blekking getur aldrei huggað nokkurn mann.
Það er sannleikurinn, sem gerir okkur frjálsa.
Hinn sæli Job þekkti leiðina í þrengingunum
og ástvinamissinum. Þá er hann féll fram fyrir
Guð og tilbað og þakkaði.
Nakinn kom ég af móðurskauti
og nákinn mun ég aftur þangað fara;
Drottinn gaf og Drottinn tók,
lofað veri Nafn Drottins.
Job. 1, 21.
Við lesum um ríka manninn í Lúk. 16, 30—31.
En hann sagði: Nei, faðir Abraham, en ef ein-
liver frá hinum dauðu kæmu til þeirra, þá mundu
þeir gera iðrun. En hann sagði við liann: Ef
þeir hlýða ekki Móse og spámönnunum, munu
þeir ekki héldur láta sannfærast, þótt einhver
risi upp frá dauðum.
Við heyrum að ríki maðurinn biður um að
einhver af hinum dauðu fari til bræðra sinna,
þá myndu þeir gera iðrun.
Nú vissi ríki maðurinn að það var iðrunar-
leiðin, sem gilti fyrir bræður hans. Sú leið, er
hann ekki sinnti í lifanda lífi og missti þess-
vegna af.
Abraham tók ekki í sama strenginn og breytti
ekki um hugarfar frá því sem hann þjónaði hér.
Hann sagði: Þeir hafa Móse og spámennina, og
aftur ef þeir hlýða ekki Móse og spámönnunum
mundu þeir ekki heldur láta sannfærast þótt
einhver rísi upp frá dauðum.
Abraham talar einnig í Lúk. 16 kap. um mik-
ið djúp staðfest; til þess að þeir, sem vilja fara
héðan yfir til yðar, geti það ekki, og að menn
'komizt ekki þaðan yfir til vor.
Ríki maðurinn vissi nú, hvað iðrun meinti en
nú var það of seint fyrir hann.
Samkvæmt Lúkas 16. kap. átt þú engan að-
gang að vinum þínum og þeir ekki að þér.
1 Kristi hafa þeir hvíld og hvílast, sem dánir
eru í Honum.
I Hans lífi sameinast hin alsæla hjörð. Ein
hjörð og einn hirðir. Guð bjó öllum, sem til
Krists koma eilíft líf í Jesú Kristi. Honum, sem
afmáði dauðann og að engu gerði hans mátt
svo allir, sem Kristi hlýða lifa Honum alltaf.
Ef þú vilt vera sannleikans megin, þá heyr
þú raust Jesú, hvað Hans Orð segjá þér, svo
þú sért Hans vottur. En ef þú vilt það ekki, þá