Fagnaðarboði - 01.01.1953, Side 8
8
FAGNAÐARBOÐI
hefur þú frjálsræði til þess að velja. Komið til
mín! segir Jesús.
Eftir dauðann er of seint að iðrast. f dag bíður
Jesús þér samvist við sig í dýrð Guðs, hvar engin
synd né dauði er, en líf og kærleikur HANS
ANNAST ÞIG.
Sumir andatrúarmenn vilja benda til ummynd-
unarfjallsins, þá er Guð birti dýrð Jesú til læri-
sveinanna, svo að þeir vottar Hans vissu að Hann
hafði umgengni á himni og jörðu. Guðs kærleik-
ur birti þeim: Þessi er minn elskaði Sonur, sem
ég hefi velpóknnn á; hlýðið á Hann.
Matt. 17, 5.
Móse og Elia töluðu ekki við lærisveinana og
lærisveinarnir ekki við þá. Hér er ekki um neina
sönnun að ræða, sem andatrúarmenn geta vitn-
að til. Hér er eingöngu sönnun Guðs um sinn
elskaða Son, sönnun sem hefur ekki og mun
aldrei breytast frá Hans hendi.
Sá, sem hlýðir á Soninn hlýðir á Föðurinn.
Þetta er það, sem vottar Jesú Krists gera í dag.
Þeir hlýða á Soninn í Heilögum Anda.
Heyrði ekki Pétur Krist á móti lygi Ananí-
asar og Saffíru. En Pétur mælti:
Ananías, hví fyllti Satan hjarta pitt, svo að
pú skyldir Ijúga að Heilögum Anda og draga
undan af jarðarverðinu? Post. 5, 3.
Pétur mælti pá til liennar: Hvernig gátuð pið
orðið sampykk um að freista Anda Drottins?
Post. 5, 9.
Jesús Kristur sagði til safnaðanna sjö: Hver,
sem eyra hefir liann heyri, hvað Andinn segir
söfnuðunum. Opb. 2, 7.
Heyrið hvað ANDINN segir söfnuðunum, en
ekki andarnir eða miðlarnir.
Daníel spámaður talaði um einn Guð og Heil-
agan Anda, en Nebúkadnezar talaði um guðina
og þar af leiðandi andana.
Af Fagnaðarerindi Jesú Krists eigum við að
læra, að það er Sannleiksandinn, Andinn Heil-
agi, sem Drottinn gefur sínum. En andarnir eru
frá óvininum, útsendir til þess að vinna hans
verk, tala hans máli og útiloka mannssálina frá
sáluhjálpinni, sem Jesús Kristur kom til þess
að veita og um leið aðganginn að himnaríkinu.
En Andinn segir berlega, að á síðari tímum
muni sumir ganga af trúnni, er gefa sig að villu-
öndum og lærdómum illra anda. I. Tím. 4,1.
Enda ég svo línur þessar með bæn um að les-
arinn athugi málið frá sjónarmiði Fagnaðarer-
indis Jesús Krists, en ekki mannlegs hyggjuvits.
Guðs Orð segir, að allar hugsanir mannsins séu
hégómlegar.
Guð gefi oss auðmýkt, því auðmjúkum veitir
Hann náð. Það er auðmýktarleysi að vita betur
en Guðs eilífa Orð kennir.
Orð Jesú: Ég er upprisan og lífið; sá sem trúir
á mig, mun lifa pótt hann deyi. Jóh. 11, 25.
Guðrún Jónsdóttir.
Eg veit að Jesús lifir.
Ég vil lofa Drottin minn og Frelsara, Jesúm
Krist, og bera vitni um náð Guðs mér auðsýnda.
En mig skortir orð, því þegar ég hef flúið til
Drottins, hefir Hann ávallt svarað og gert verkið
í sinni ríku náð.
Ég vil segja frá dásamlegu kraftaverki, er
Drottinn gerði á mér fyrir 16 árum.
Þá veiktist ég af hálsbólgu. Hálsinn bólgnaði
utan sem innan og virtist alveg vera að lokast.
Ég gat engu rennt niður og hitinn var mjög hár.
Þá var Guðrún Jónsdóttir beðin að koma til
mín og biðja fyrir mér. Hún kom og bað Drott-
inn Jesúm að lækna mig.
Pabbi og mamma krupu einnig til bænar. Er
þau stóðu upp eftir bænina hrópaði ég: „Pabbi,
mér er alveg batnað.“
Þau urðu sjónarvottar að því að bólgan rann
úr hálsinum og að ég varð alheil, borðaði og
drakk.
Drottinn Jesús hefur verið minn einasti lækn-
ir í mörg ár. Hann hefur mörgum sinnum læknað
mig er Guðrún hefur beðið fyrir mér og þar á
meðal læknað mig af miklu brjóstameini.
Mér er ljóst, að það er ekki mér að þakka,
heldur Guðs gjöf í Jesú Kristi.
„En Hann var særður vegna vorra synda og
kraminn vegna vorra misgjörða; hegningin, sem
vér höfðum til unnið, kom niður á Honum, og
fyrir Hans benjar urðum vér heilbrigðir“.
Jes. 53, 5.
Dýrð og þakkir séu Drottni Jesú Kristi, sem
ég má ekki og vil ekki gleyma.
Guðbjörg Einarsdóttir.
1 tbl.
1953
6. árg.