Fagnaðarboði - 01.02.1962, Qupperneq 1
ililii
llli
W8&
■ ■ V . ■:
s ;
..■:■.:.g
Hans og n
þá inun
:
íjliíisisiíiili
'.;..■ ;■ : :,:
i -:
: x :: x- :
■:-:.V:-. .
veiíast yður aS
: V :::
■ :
:
.• ■ 'i’: : x;
íííííííi
HJONABOND
Og Farísear komu til Hans, freistuðu Hans og sögðu:
Hvort er leyfilegt að skilja við konu sina fyrir hvaða
sök sem er? En Hann svaraði og sagði: Hafið þér eigi
lesið, að Skaparinn frá upphafi gjörði þau karl og konu,
og sagði: Fyrir því skal maður yfirgefa föður og móð-
ur og búa við eiginkonu sína, og þau tvö skulu verða
eitt hold? Þannig eru þau ekki framar tvö, heldur eitt
hold. Það sem Guð þvi hefir tengt saman, má eigi
maður sundur skilja. Þeir segja við Hann: Hvers vegna
bauð þá Móse að gefa skilnaðarskrá og skilja við hana?
Hann segir við þá: Vegna hjartaharðúðar yðar leyfði
Móse yður að skilja við konu yðar. En frá upphafi hefir
þetta eigi verið þannig. En ég segi yður, að hver sem
segir skilið við konu sina nema fyrir hórdóms sakir,
og gengur að eiga aðra, hann drýgir hór; og hver sem
gengur að eiga fráskilda konu, drýgir liór. Lcerisvein-
arnir segja við Hann: Ef svo er farið málefni manns-
ins gagnvart konunni, þá er ekki gott að kvcenast. En
Hann sagði við þá: Eigi fá allir höndlað þetta, héldur
þeir sem það er gefið. Matt. 19, 3—12.
Að gefnu tilefni ræðum við stuttlega, út frá Heilagri
Ritningu, hjónabönd og hjónaskilnaði og höfum þá fyr-
ir ökkur Matt. 19, 3—12. Ekki verður þó farið neitt
ýtarlega út í þau stóru mál.
Samkvæmt Ritningunni skulu hjónaböndin byggð á
kærleiksboðum Guðs. Hjónabandið var af Guði sett eða
gefið, og á að vera af Honum helgað, með því að hjónin
ættu allt sameiginlegt í þjónustu og helgun Guðs Orðs.
1 stöðugu samfélagi við Guð áttu þau að taka tillit til
þess, sem Guðs var og sinna Hans náðarboðum og
reglum. Þá mundu þau fá haldið sáttmálann, er þau
gengust undir, er þau sameinuðust í, urðu sem einn
maður að Guðs boði, og náð Guðs yrði með þeim verk-
andi.
Sönn hyggindi eru að elska Drottin. Á þessum hygg-
indum eiga hjónaböndin að vera reist samkvæmt Guðs
boðum og blessunarfyrirheitum. Því verður það hið
fyrsta fyrir alla, að þekkja Hann, sem hjónaböndin
hefir sett, það er, — þekkja Orð Guðs og skyldur sín-
ar við Hann.
Prestar Gyðingdómsins fóru ekki fyrst að uppfræða
hjónaefnin um sáttmála Guðs, þá er þau voru komin
á brúðarbekkinn. Lögmálið og spámennirnir voru lesn-
ir upp fyrir lýðnum á hverjum hvíldardegi. Náðarsátt-
málinn talar einnig um skyldur hjóna. Ef svo er, að
lýðurinn þarfnaðist þá fræðslu um Guðs náð og sáttmála