Fagnaðarboði - 01.02.1962, Qupperneq 2

Fagnaðarboði - 01.02.1962, Qupperneq 2
2 FAGNAÐARBOÐI hjónabandsins, þá er þess ekki minni þörf nú, því án Guðs ráða og hjálpar er allt rotið til dauða. Guð inn- siglaði hjónasáttmáiann með þessum orðum: Þaö, sem Guö því hefir tengt saman, má eigi maöur sundur skilja. — Má eigi maður? Þá eigi prestur? Eigi kvænti mað- urinn, né gifta konan? Mannleg boð og mannleg ráð skilja manninn frá Guði. Guðs ráð er samband Guðs við manninn í kærleika og miskunn. Kristur Jesús, lærisveinar Hans og spámennimir byggðu ekki kenninguna á manna boðum eða tilfinn- ingum. Guðs Orðið skyldi flutt óskorað sem fullkom- inn sannleikur eins og það er, svo það renni til mann- anna í sínu fulla gildi. En hafa nútima kennimenn kirkjunnar uppfrætt fólk- ið um lög hjónasáttmálans eins og þau em í Guðs Orði? Hafa þeir þá nokkra heimild frá Drottni, til þess að lesa hjón sundur og gefa þau hin sömu aftur í hjónabönd og þá öðrum. Þeir geta ekki haft neitt umboð frá sönnum Guði til þeirra verk, nema fyrir liggi sú sök, er Ritningin til- greinir. Ef boð Guðs eru ónýtt og að engu höfð, þá höf- um við Guð á móti okkur en ekki með. Guð virðir sátt- mála sinn og heiðrar hvern þann, sem sáttmálann virð- ir og heldur. HJÓNABÖND NÚTÍMANS OG ÞEIRRA UPP- LAUSN. Var ekki hjónabandið byggt upp á björtum framtíðarvonum með heilla- og hamingjuóskum vin- anna? En hvað kom fyrir? — Voru hjónin ekki vígð? Skein ekki hamingjan af andlitum þeirra? Voru þau ekki uppfrædd um skyldumar? Eða gleymdist ábyrgðin, sem þau höfðu tekið á sig með sáttmála hjónabandsins? Og hvert stefndi, þegar sáttmálinn gleymdist og Guðs hönd hrint frá vonarríku heimilinu. — Mennirnir varpa Guðs náðarhönd frá sér og hún fær ekki að reisa húsið. En Guðs útrétta kærleikshönd eru Hans boð og ráð. Ef GuÖ byggir ekki húsið, erfiöa smiöirnir til ónýtis. Ef Drottinn verndar eigi borgina, vakir vöröurinn til ónýtis. (Sálm. 127, 1.) Þú vilt sjálfur ráða þinni framtíð, byggja húsið, en ganga fram hjá Guðs ráðum. En það verður aldrei nema á sandi reist. Þetta er það, sem liggur á bak við og veldur upplausn hjónabandsins. Ykkur, sem eruð í upplausn hjónabandsins vil ég benda á, að eina vonin er Guðs náð og eina hjálpin er FRELSUNIN, lausn frá dauðans — slysi hjónabands- ins. Hjónaskilnaðir em stórslys þjóðfélagsins og allt of margir láta það sér í léttu rúmi liggja. Þið — unga fólk, sem emð í upplausn hjónabandsins. Gefið ykkur tíma, til þess að nema staðar frammi fyrir Almáttugum Guði, nema staðar til bænar. Komið fram fyrir Hann með meinsemdimar og biðjið Hann um hjálp. Ef til vill er sökin sjálfselska og hroki, og stærsta orsökin sú, að þið hafið gleymt Guði, sem þið eigið aðgang að með bæninni og trúnni, ykkur til lausnar og hjálpar. Gleymið ekki, að þið hafið gengizt undir sáttmála af Guði settan og innsiglaðan með þessum orðum: Þaö, sem Guö því hefir tengt saman, má eigi maöur sundur skilja. Svo sér Guð viðleitni þína þá er þú gengur fram fyrir Hann í Jesú nafni og leitar Hans hjálpar af heil- um hug, til þess að ná rétti þínum, sem er í Hans hendi. Þú munt fá áheyrn, er þú þiggur FYRIRGEFNING- UNA og fyrirgefur sjálfur af hjarta. Og þú eiginkona. — Ef til vill talar maðurian þinn ekki við þig um ágreiningsmálin, af þv'. nann er þér reiður og afhuga. Láttu það ekki tefja þig, að leita Drottins. Segðu Honum allt, því Haan er fús að hjálpa. En MUNDU sjálf, að fyrirgefa svo þér verði fyrirgefið. Margir hafa hlotið sár í þessum efnum. En Jesús Krist- ur er sá sami, til þess að frelsa og græða og leysa öll vandamál einstaklinga og þjóða. Guð gerði sinn lýð að þjóð með lögum sínum og skip- unum. Og þegar að lýðurinn fór eftir þeim, gekk þjóð- arbúskapur Israelsmanna vel. En þegar að þeir gleymdu Guðs boðum, hrundi allt í rústir. Svo er Iíka um hvert heimili, þar sem Drottinn fær ekki að vera Guð og Frelsari. Allt, sem ekki er byggt á Jesú Kristi, bjarg- inu eilífa, er byggt á sandi. En hvað eina, sem byggt er á grundvellinum, Jesú Kristi er Guði samboðið og sameiginlegt. Þar fyrir utan er allt höfðingja heimsins samboðið. Syndin og ranglætið er óvinarins. Og syndin er þjóðanna skömm. Réttlæti, friður og fögnuður Guðsríkisins, allt er það gefið fyrir Jesúm Krist — fæst aðeins fyrir Hann. Hann einn getur sameinað til friðar og blessunar. Bjóð Honum á heimilið, svo Hann fái að vera þar ríkjandi og verkandi í sínum friði. Þá verður aldrei neinn hjónaskilnaður og litlu börnin ekki heimilislaus. Bið á hverjum degi fyrir hjónabandi þínu. Þá er sig- urinn vís. Byggðu bæn þína á Guðs Orðinu og gleym ekki, að Jesús Kristur stendur við þínar hjartadyr og bíður eftir, að þú ljúkir upp fyrir Honum. Og þegar að þú hefur lokið upp og Hann er inngenginn með frið og sigur kærleikans, þá verður heimili þitt blessunar- ríkt í Honum, Kristi Jesú, KONUNGI LlFSINS. Því að: Allt hold er sem gras og öll vegsemd þess sem blóm á grasi; grasiö skrcelnaöi og blómið féll af, en Orð Drottins varir að eilifu ... (1. Pét. 1, 24—25). Guðrún Jónsdóttir.

x

Fagnaðarboði

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fagnaðarboði
https://timarit.is/publication/1103

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.