Fagnaðarboði - 01.02.1962, Qupperneq 4

Fagnaðarboði - 01.02.1962, Qupperneq 4
4 FAGNAÐARBOÐI Kraftnverk Drottins á Díöttu Cooper Móðirin bað: Ég get ekki sleppt voninni um að litla stúlkan mín verði heilbrigð Hvernig óskar þú lítilli fjögurra ára telpu til ham- ingju með nýbyrjað aldursár, sem vitað er, að þjáist dag frá degi af sársaukafullum krampaköstum, — vitað, að hver dagurinn, sem liður er henni þjáningadagur, og elcki um neina breytingu að ræða, nema þá til hins verra. Aðeins Almáttugur Guð megnaði að gera Díönu Cooper þennan afmælisdag, 5. maí 1956, að fagnaðar- ríkum hamingjudegi, og Hann einn gat gefið henni að mega horfa fram á marga slíka daga. Læknamir höfðu sagt, að Díana hlyti að deyja í einhverju krampakastinu, — allt hefði nú verið reynt, sem hægt væri, en ekkert stoðað. Þeir gátu engar vonir gefið um bata, svo frá þeim var ekki neinnar hugg- unar að vænta. Og nú virtist ferðin til Orals Roberts ætla að verða farin til einskis. Ferðapeningarnir, sem leyfðu ekki nema þriggja daga viðstöðu, vom nú á þrotum, og enn- þá hafði nafn Díönu ekki verið kallað upp. Hún hafði því ekki getað komizt í röð hinna sjúku og vanheilu, sem Oral Roberts átti að biðja fyrir. Allt útlit var nú fyrir, að móðirin yrði að hverfa heim aftur með barn- ið sitt án fyrirbænarinnar. En til þess að fá fyrirbæn Orals Roberts höfðu þær farið alla þessa iöngu leið, mörg hundruð mílur. Þetta var því dapur og ömurlegur afmælisdagur og mestar líkur til, að þetta yrði einnig síðasti afmælis- dagurinn hennar Díönu litlu, því nú fékk hún hvert krampakastið á fætur öðru. Veslings móðirin var sár- hrygg og yfirkomin af þreytu. Samt lét hún ekki af að knýja á í bæn til Drottins. — „Góði, miskunnsami Guð,“ bað hún. „Ég get ekki sleppt voninni um að litla stúlkan mín verði heilbrigð. Drottinn, ég veit að þér er ekkert ómögulegt. Þú getur læknað bamið mitt“. Og áður en þessi dagur var liðinn, hafði Díana fengið gjöf frá Drottni — lækningu —, afmælisgjöf, sem henni var send frá himni, sérstaklega. Allt gerbreyttist á svipstundu, — var sem kirkju- klukkum væri hringt, englasöngur ómaði og kertaljós blikuðu, og allt endurómaði í himneskri gleði: Til ham- ingju með afmælisdaginn, Díana, og nýbyrjuð fagnað- arrík æviár. •K* Sheila Díana, fædd 5. maí 1952, er ein af þrem dætr- um Álvins LeRoy Coopers jr. Faðirinn er starfsmaður í nýlenduvöruverzlun en móðirin vinnur í klæðaverk- smiðju. Fram á mitt ár 1953 virtist allt brosa við Coopers-f jölskyldunni, sem þá var flutt í ný og góð húsa- kynni í heimaborg sinni Columbus í Georgíu. Coopers- hjónin höfðu ávallt verið kirkjurækin og Guð var sá styrki armleggur, sem þau leituðu til, þegar sjúkdóms- bölið dundi yfir. Liðlega ársgömul varð Díana fyrir því slysi, að detta niður háan stiga. En barnið huggaðist við blíðu móður- innar, tárin voru þernið og sársaukinn mildaður, og slys þetta virtist ekki ætla að verða annað eða meira en það, sem iðulega hendir börn á þessum aldri. En sex vikum síðar fékk Díana fyrsta krampakastið. Ýmsir læknar rannsökuðu hana og leitað var til sér- fræðings í heilasjúkdómum. I sjúkrahúsinu voru henni gefnar 24 sprautur einn klukkutímann við hættulegri blóðrásartruflun. Læknarnir, sem gátu ekki stöðvað krampann ákváðu nú tafarlausan uppskurð. Móðirin segir: „Þegar ég skrifaði undir skjölin, sem heimila uppskurðinn, fannst mér sem lífið væri að slokkna í brjósti mér“. Nú var barninu, liðlega árs gömlu, ekið inn í skurð- stofuna, en áður en svæfingu yrði viðkomið, hafði það fengið enn eitt krampakastið. Móðirin hélt nú að barnið hennar væri að deyja og hljóðaði upp yfir sig. En föðuramman, sem einnig fékk að vera þarna viðstödd, fór að biðja til Drottins. Fað- irinn átti bágt með að hljóða ekki upp eins og kona hans, en þráði þó í hjarta sínu að eiga stillingu og trúar- traust móður sinnar. En hann gat ekkert gert og sem lamaður beið hann þess sem verða vildi. Við rannsókn kom í ljós ör á heila Díönu eftir áverka, sem hún hafði hlotið við fallið. Sérfræðingarnir kváð- ust geta fjarlægt æxli og bólguhnúta, en ekki ör. Hér gæti því uppskurður engu um bætt. „Við getum ekki hjálpað henni“, sögðu þeir. Hún yrði að taka inn lyf það sem eftir væri ævinnar, sem gæti okki orðið löng. Þessi lyf áttu aðeins að geta haldlð sjúkdóminum að einhverju leyti niðri, en ekki meir. Næstu þrjú árin voru Cooper-hjónunum erfiðari, en orð fá lýst. Milli krampakastanna reyndi Díana litla oft að leika sér eins og eðlilegt er lítilli telpu á hennar aldri. Hana langaði til þess að leika sér á þrihjóli, hlaupa um og skríkja af ánægju eða undrun yfir því, sem

x

Fagnaðarboði

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fagnaðarboði
https://timarit.is/publication/1103

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.