Fagnaðarboði - 01.02.1962, Side 6

Fagnaðarboði - 01.02.1962, Side 6
6 FAGNAÐARBOÐI Hnnn nuetti Ktisti (Post. 26.) Sál var í Gyðingdóminum fyrirmynd ungra manna, fróður í lögmál: Guðs og staðráðinn í því að helga Guði líf sitt til þjónustu. Hann beið þess með eftirvænt- ing að mega renna skeið sitt. I eldmóði og krafti hinna göfugustu áforma, sem lestur spámannsbókanna hafði vakið í brjósti hans, tók hann þegar á unga aldri jafn- öldrum sínum langt fram, þar sem hann var miklu vandlætingasamari um erfikenning forfeðranna. Við hann batt samtíðin sínar beztu vonir og vænti mik- ils af honum. Ráð hans voru tekin til greina af æðstu mönnum, og ekkert virtist geta hindrað, þar sem hann stóð buinn til sóknar og varnar. — Þessi Galílei og kenning hans, sem vakið hafði mikinn óróa meðal lýðs- ins, skyldi nú fljótlega kveðinn niður. En það var Hann, Galíleinn, sem í hinu skærasta ljósi birtist honum, sem varð augum hans, já, honum öllum yfirsterkara á einu augabragði. Nú lá hann blindur og örmagna á jörðunni, fullviss þess, að hann væri hinn mesti syndari, sem nokkru sinni hefir andann dregið. Hann hafði mætt hin- um upprisna Kristi, Jesú frá Nazaret. Dýrðin tók af öll tvímæli um, að Jesús væri Eingetinn Sonur Guðs, hinn fyrirheitni Messías, sá hinn sami, sem öll þjóðin vænti eftir. En Honum hafði hún þó hafnað og sjálfur hafði hann, Sál, barizt á móti og talið sér skylt að of- sækja. — llver gat afborið slíka vanvirðu. Hin sárasta sektartilfinning altók hjarta Sáls. Engin orð gátu lýst þeirri kvöl, sem henni var samfara. Engin afsökun var til sem gæti hlíft honum hið minnsta eða hulið synd hans. Og réttlætið, sem hann hafði lagt svo mikið kapp á að iðka var honum eilíflega horfið. Allt, sem hann hafði talið sér til sæmdar fór sömu leið. Sjónin var farin, hreystin að engu orðin, og vimrnir orðnir fjand- menn. Hver sýnin af annarri birtist fyrir sáír.rsjónum hans, þar sem hann, fastandi ákallaði þann, sem hann hafði ofsótt. Hvernig gat hann hafa verið svona blindur? Þurfti hann að missa sjónir.a, til þess að verða sjáandi? Einmitt þann, sem hann heizt vildi heiðra, hafði hann talið sér heiður að ofsækja. Þó höfðu spámennirnir lýst þvi svo greinilega, að hinn fyrirheitni Messías myndi líða kvaladauða sakir syndar lýðsins. Hafði ekki Jesaja sagt? ... En vorar þjáningar voru það, sem Hann bar, og vor harmkvoéli, er Hann á sig lagði; vér álitum Hann refsaðan, sleginn af Guði og lítillœttan, en Hann var særður vegna vorra synda og kraminn vegna voira misgjörða; hegningin, sem vér höfðum tilunnið, kom niður á Honum, og fyrir Hans benjar urðum vér heil- brigðir. Vér fórum allir villir vega sem sauðir, stefnd- um hver sína leið, en Drottinn lét misgjörð vor allra koma niður á Honum. (Jes. 53, 4—6.) Sást það ekki þarna berlega að hann he:öi lesið Ritningarnar með lokaðum augum. „Sál, bróðir“. Hver gat á^arpað hann svo huggunar- ríkum orðum jafn sekur ?em hann var? Eftir þriggja daga föstu og stöðuga bær., í hinu svartasta myrkri, barst honum til eyrna þessi friðsæla kveðja. Og er hend- ur þess manns, er við hann hafði mælt þessi orð, voru lagðar yfir hann, hvarf myrkrið frá augum hans, er sem hreistur hrundi honum af augum. En Andi Drottins fyllti hann öllum friði, er hann hafði fest trú sína á Drottin Jesúm, Hann, sem hann hafði ofsótt ákaflega. Það, sem hann hafði lært þessa þrjá föstu- og bæna- daga, þótt blindur væri, var meira, en allt, sem hann hafði áður numið, við hin beztu skilyrði og af hinum færustu fræðimönnum. Nú hafði hann komizt að raun um, að Kristur Jesús væri hinn fyrirheitni Frelsari, sem fullnað hafði fórnarþjónustuna öllum mönnum til lausnar, og hafði áunnið þeim, sem á Hann trúa, eilífa réttlæting frammi fyrir augliti Guðs. Sál, sem nú var orðinn Páll hafði lært að skilja, að enginn gat réttlætzt af lögmálsverkum og að fórnirnar veittu sálinni enga svölun framar. Allt var þetta honum horfið fyrir yfirburðum trúar-réttlætisins, sem hann nú hafði öðlazt fyrir trúna á Jesúm Krist. Páll postuli hafði tapað þjóð og föðurlandi. Vina- snauður og yfirgefinn var hann flóttamaður í sínu eigin landi, umsetinn og ofsóttur af þeim, sem áður voru vinir hans. Og er hann i Jerúsalem reyndi að sam- laga sig lærisveinunum, hræddust allir að hafa nokkuð saman við hann að sælda. Ekkert af öllu þessu olli honum nokkurs kvíða, þar sem hann hafði öðlazt það, sem var þessu öllu æðra, hið eilífa föðurland á himnum, þar sem honum var geymdur sigursveigur réttlætisins fyrir trúna á Jesúm Krist. Hann hafði dáið syndinni, en reis nú upp til að þjóna lifandi Guði i Anda og sannleika. Hann var endur-

x

Fagnaðarboði

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fagnaðarboði
https://timarit.is/publication/1103

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.