Fagnaðarboði - 01.05.1965, Side 5

Fagnaðarboði - 01.05.1965, Side 5
F A G X A Ð A R B O Ð I 5 dionungur úivaldra Hvar er lúnn nýjœddi Gyðingákonungar? Því að vér höfum séð stjörnu Hans austur frá og erum komnir, til þess að veita Honum lotningu. (Matt. 2, 2.). Vitringar eru á ferð. Þeir spyrja eftir Gyðingakonung- inum. Hvar er Hann? Máske hafa þeir bi'iizt við að fá greið svör. Þeir voru ekki komnir, til þess að skoða land- ið, byggð þess og framkvæmdir eða fylgjast með hátíða- höldum þjóðarinnar. Þeir spyrja með djörfung eftir E I N U M, konungi útvaldra. Hans fundi verða þeir að ná, því þeir hafa fengið áreiðanlega vitneskju, hinmeskar bendingar um komu Hans til jarðarinnar, komu Gyðingakonungsins, sem spámenn þjóðarinnar höfðu talað um. Ennfremur hafa þeir fengið ábending um, hvar Hans skuli leita, þ.e. meðal Guðs lýðs. Þjóðunum var enn í fersku minni, hvað Guð Israels hafði gert fyrir Davíð, þá er Guð hóf Davíð til konungs, og hin litla þjóð fékk náð rétti sínum yfir mótstöðu- mönnunum, þá er hún bjó við kúgun og undirokun. En nú var konungurinn kominn, sem sitja skyldi í hásæti Davíðs, konungur Gyðinga, alvaldur og eilífur, er aldrei mundi hrundið af veldisstóli, heldur mundi ríkja að eilífu. Hallelúja! Þetta lét ekki vel í eyrum allra borgarbúanna. Ef til vill hafa margir vænzt þess, að Gyðingakonungdómur- inn yrði ekki reistur við, og þær ógnir endurtækju sig, þar sem Guð hafði sýnt sig í alveldi sínu til stórra og voldugra þjóða, sem féllu fyrir mætti Hans, þá er Hann lét hinn útvalda iýð ná rétti sínum yfir óvinunum. Þjóðir Guðs óvina máttu sín einskis. Þeir urðu lé- magna gegn mætti Guðs, þá er Hann vitjaði lýðs síns. Guð hóf lýð sinn upp með því að gera sín máttarverk með honum, svo allar þjóðir máttu þekkja dýrð og sigra Guðs. Þjóðirnar voru alls óviðbúnar, töldu sig örugg- ar í sínum stóru ráðum. Allt væri óhagganlegt í þeirra vizku og veldi. Þær áttu ekki von á, að neitt fengi þessu raskað. En sendiboðar hrópa sterkum rómi með eftirvænt- ing og í krafti sannfæringar: — Hvar er hinn nýfæddi Gyðingakonungur? — Hvert var erindi þeirra á fund Hans? — Þeir ætluðu að veita Honum lotningu. — Vissu þessir menn þá ekki, að rómverskur konung- ur var ríkjandi í Jerúsalem? — Jú. Þeir vissu það. En hann var ekki Gyðinga- konungurinn. — Hafði Guð þá ekki gefið þjóð sína á vald hinum rómverska konungi, og var hann ekki af Guði settur yfir þá. Hafði því ekki einnig verið spáð, að ísraels- ríki myndi undir lok líða og ekki verða konungsríki framar? — Jú, vissulega. En Guð útvaldi þessa þjóð, ísraelsmenn, til þess að búa hjá þeim og vera þeirra andlegi konungur. Með útvalningunni gerði Guð þá að nýjum, andlegum lýð sínum, það er að segja, ef gerðust þeir fúsir að þekkja Hann, Guð sinn, sinna vilja Hans og lilýða Honum. Það var þessi IvONUNGLIí, eilífur og andlegur, sem nú var í heiminn íæddur og vitringarnir vöktu eftirtekt á, — konungurinn, sem mundi ríkja í hásæti Davíðs, forföðurins, sem hafði hjarta Guði að skapi. Nú mátti hinn guðelskandi og trúi lýður vakna og rísa upp, til að fagna Guði sínum. Fagnaðartíminn var kominn, sá sem Guðs lýður oft og mörgum sinnum hafði verið minntur á. Þeir, sem lifðu í Abrahams trú, biðu og væntu þessarar huggunar. I svartnætti niðurlæg- ingar þjóðarinnar skein nú hið eilífa ljós heimsins. Það skein í hinum eilífu fyrirheitum kærleikans, sem Guð ávallt minnti sína elskuðu á. Enn skín þetta himneska Ijós til okkar mannanna. Hvað hindrar þjóðirnar í að dvelja við birtu þess, sinna boðskapnum um frelsi og líf, eins og segir hjá Jesaja (60, 1-3.). Statt upp, skín þú, því að Ijós þitt kemur og dýrð Drottins rennur upp yfir þér! Því sjá, myrkur griífir yfir jörðinni og sorti yfir þjóðunum; en yfir þér upp rennur Drottinn, og dýrð Hans birtist yfir þér. Heið- ingjarnir stefna á Ijós þitt og konungar á Ijómann, sem upp rennur yfir þér. Eru svo þjóðirnar enn að leita að öðrum vegi, fálm- andi í fávizku sinni og vonlausu stríði, fjötraðar synd- inni i öfund hver við aðra. Astæðan er sú, að þær stefna fram hjá Ljósi lífsins og ganga á öðrum vegum en þeirn, sem Guð hefir þeim fyrirbúið. Leitið vitnisburðarins og kenningarinnar. Þann veg fóru vitringarnir, þegar þeir leituðu Gyðingakonungs- ins. A þeirri leið fundu þeir Hann. Stjarnan, himinljós- ið, leiddi þá á vegi Ritninganna. Þar lásu þeir hver væri hin rétta leið. Það var jólabókin þeirra, — þeirra hátíð- arbók. Þeir fóru ekki villuveg falsspámannanna, veg afvega- Framhald á bls. 7.

x

Fagnaðarboði

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fagnaðarboði
https://timarit.is/publication/1103

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.