Fagnaðarboði - 01.05.1965, Síða 6
6
F A G N A Ð A R B O Ð I
Guð er enn að útvelja ......
Framhald af bls. 3.
mótsins haldin. Sá, sem predika átti á þessari síðustu
samkomu hét Jim Brown og var úr Oldungakirkjunni
(presbyterian). Hann var maður skírður í Heilögum
Anda. Þegar hann hafði lokið máli sínu bauð hann þeim,
sem taka vildu við Kristi sem Frelsara sínum og eins
þeim, sem væru að keppa eftir að hljóta skírn Andans
að koma inn í bænaherbergi inn af aðalsalnum.
Nokkrir vinir okkar hjóna voru með allri levnd að
ráðgast um, hvernig fara ætti að því að fá mig til að
fara inn í herbergi þetta. Þeir urðu því ekki lítið undr-
andi, þegar þeir sáu mig fremstan þeirra, er héldu til
bænaherbergisins.
Þetta kvöld skírði Drottinn mig krafti Anda síns og
var það svar við þessum bænarorðum mínum í Grafar-
garðinum: Drottinn! — Ef þessu er þannig varið, þá
vinn verk þitt í hjarta mínu og ger það eins bert og
raunsætt og það er með þessum mönnum.
Vegir Guðs eru órannsakanlegir. Hann rendi fram ráð-
um sínum svo Fred Waugh amerískur kaupsýslumaður,
ferðaðist yfir úthaf til fjarlægra landa og þar mætti Guð
honum á þennan undursamlega hátt og í þessu sérstæða
umhverfi — við gröf Krists.
I stuttu máli sagt: Þetta er saga HeiIags-Anda-skírðs
manns, sem farið hefir krossins leið, mætt hinum upp-
risna Ivristi á liljóðri stundu og haldið áfram veg bæn-
arinnar, til þess að meðtaka fylling Andans.
Fred Waugh hélt áfram vitnisburði sínum: Drottinn
sleppti ekki af mér hendi sinni. Hann hélt áfram að
leiða mig og stýra skrefum mínum. Enda þótt ég ætti
nú frið í hjarta og fullvissu trúarinnar og hinn kyrrláta
og friðsæla styrk Guðs barnsins, er öðlast hefir skírn
Andans, þá verð ég að játa að þessi hugsun ásótti mig
sí og æ:
Hvað getur þú sagt, þegar þú kemur aftur heim, og
vinir þínir segja eitthvað á þessa leið: — Svona fór það
þá með hann Fred okkar. Hann gerðist þá guðrækinn
— Rut bar þá að lokum sigur úr býtum.
Hvað á ég nú að segja við þessa menn?
Þessar hugsanir ásóttu mig, en ég lét þær ekki uppi
við nokkurn mann.
Þegar við komum til Noregs tóku A1 og Edith Kons-
mo á móti okkur, en þau höfðu verið ferðafélagar okk-
ar. Þau buðu okkur heim til sín. Og kvöld eitt, á sam-
eiginlegri bænastundu, mælti Edith fram spádómsorð
fyrir Anda Drottins. Orðunum var beint til mín og voru
þau þessi:
Ver ekki áhyggjufullur um, hvað þú átt að segja eða
hvað þú átt að gera. Þegar þinn tími er kominn til vitn-
isburðar mun ég opna þér leiðina og leggja þér í munn
þau orð, sem þú átt að segja. Og þessi spádómsorð hafa
rætzt hvað eítir annað. Þegar Drottinn opnar mér leið
til vitnisburðar — leiðin stendur mér opin, finn ég það
ávalt fvrir Anda Drottins.
Til dæmis get ég tilgreint fyrstu heimsókn mína eft-
ir utanferðina. Ég fór þá til gamals vinar. Þegar ég kom
inn á skrifstofuna til hans varð honum að orði: Komdu
sæll og blessaður, vinur. Ég hef ekkert heyrt af þér, síð-
an ég frétti, að þú værir í flugvél yfir Indlandshafi. Ég
var nú hálft í hvoru farinn að halda að eitthvað hefði
komið fyrir þig. Þú værir ef til vill ekki lengur í lifenda
tölu.
Þú hefir líkast til frá einhverju að segja. Hvað sást
þú þarna suður frá og hvað er eiginlega að gerast þar?
Ég fór nú að segja honum frá öllu því furðulega, sem
er að gerast í Israel, — frá eyðimörkinni, sem er að verða
að gróðursælum reitum, og ýmsu fleiru. Þá sagði hann
við mig: Fred. Þegar þú hefir nú augum litið allt þetta,
hvaða áhrif hefur það haft á þig? A sömu stundu opin-
beraði Andi Drottins mér að nú stæði mér leiðin opin
til vitnisburðar. Ég fór nú að segja honum frá því,
þá er Drottinn mætti mér í Grafargarðinum. I heilan
klukkutíma vitnaði ég fyrir honum um verk Drott-
ins og sagði honum frá reynslu minni. Þá sagði hann:
— Þetta er sannarlega stórkostlegt.
Getur þú ekki heimsótt okkur í kvöld? Konan mín
verður líka að fá að heyra um þetta.
Þessar einu dyr, sem opnuðust mér þarna, hafa leitt til
þess, að margar aðrar dyr hafa staðið mér opnar til vitn-
isburðar, því vinur minn hefir flutt vitnisburðinn áfram
til sinna kunningja og rætt hann við marga vini mína.
Ég hafði verið hræddur um, að margir gamlir kunn-
ingjar og vinir mundu snúa við mér bakinu. En reynd-
in hefir verið hið gagnstæða.
Ég hef sagt þeim frá hvernig Drottinn mætti mér og
hefir stjórnað skrefum niínum og leitt mig áfram veg-
inn með sér. Nú er svo komið, að hópur vina keniur
saman á heimili okkar hvert þriðjudagskvöld til þess
að lesa og ígrunda Guðs Orð. Surnir þessara manna hafa
gefizt Kristi, öðlast lifandi trú og samfélag við Drottin
Jesúm. I stað þess að vinátta okkar rofnaði, eins og ég
óttaðist, hefir hún trevstst æ sterkari böndum.
Nú eru sameiginleg hugðarefni okkar það sem Drott-
ins er, en ekki hégómi heimsins.
Fred Waugh hafði ekki aðeins öðlazt lífið í Kristi og
leitt vini og kunningja inn á veg trúarinnar, heldur farn-
ast honum nú vel í kaupsýslustarfinu og öll fjölskyldan
sameinaðist með einum huga við lestur Guðs Orðs og
kepptu í bæninni eftir fylling Heilags Anda.
Viðtal blaðaviannsms TF. C. Armstrongs við Fred
Waugh. (Töluvert stytt).