Víkurfréttir


Víkurfréttir - 21.03.2013, Side 2

Víkurfréttir - 21.03.2013, Side 2
fimmtudagurinn 21. mars 2013 • VÍKURFRÉTTIR2 ATVINNA DEILDARSTJÓRI OG SÉRKENNARI ÓSKAST Viltu vinna á faglegum, kraftmiklum og skemmtilegum vinnustað? Þá er Akurskóli staðurinn fyrir þig. Akurskóli óskar eftir deildarstjóra: Starfssvið: Menntunar- og hæfniskröfur: Akurskóli óskar eftir sérkennara til starfa: Menntunar- og hæfniskröfur: Í Akurskóla er lögð áhersla á kennsluhætti sem einkenna opinn skóla, einstaklingsmiðað nám og teymisvinnu kennara. Sjá nánar um Akurskóla: www.akurskoli.is Umsóknarfrestur er til 1. apríl nk. Sækja skal um starfið á vef Reykjanesbæjar http://www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf Nánari upplýsingar veitir Sigurbjörg Róbertsdóttir, skólastjóri, í síma 420-4550 eða 849-3822, eða á netfangið sigurbjorg.robertsdottir@akurskoli.is HREINSUNARÁTAK Hreinsunarátak, samstarf um betri ásýnd og virðisauka. Frekari upplýsingar má nálgast hjá Umhverfis- og skipulagssviði í síma 421-6700 eða á netfangið sigmundur.eythorsson@reykjanesbaer.is Opinn fundur með Árna Páli Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, ræðir alvöru gjaldmiðil, húsnæðisöryggi, heil- brigða forgangsröðun og margt fleira á opnum fundi í Vitanum Sandgerði laugardaginn 23. mars kl. 13.00 Við hvetjum sem flesta til að mæta og taka þátt í skemmtilegum og uppbyggilegum umræðum um samfélagið og framtíðarsýn fyrir land og þjóð. Vitanum Sandgerði Laugardaginn 23. mars kl. 13 Allir velkomnir Æfingar á Jesus Christ Superstar í fullum gangi Æfingar standa nú yfir af fullum krafti fyrir metn- aðarfulla dagskrá sem f lutt verður í kirkjum á Suðurnesjum í dymbilviku. Flutt verða valin lög úr hinum þekkta söngleik Jesus Christ Su- perstar og verður fyrsta sýning í Keflavíkurkirkju á pálmasunnudag, önnur sýning 25. mars í Safnaðar- heimilinu í Sandgerði og 26. mars í Grindavíkurkirkju. Dagskrá hefst kl. 20:00. Arnór B. Vilbergsson organisti stendur í stafni og stjórnar kór, hljómsveit og einsöngvurum sem eru ekki af verri endanum. Má þar nefna Eyþór Inga Gunnlaugsson fulltrúa Íslands í Evróvisjón en hann mun syngja hlutverk Jesú og Sigurð Ingimarsson sem verður í hlutverki Júdasar. Aðrir söngvarar eru úr röðum kórfélaga og margir þeirra munu jafnframt leika á ýmiss hljóðfæri. Suðurnesjamenn og aðrir velunn- arar eru boðnir velkomnir á meðan að húsrúm leyfir en enginn að- gangseyrir er á viðburðinn. Hins vegar verður boðið upp á kaffi og kökur og safnað um leið frjálsum framlögum í orgelsjóð Keflavíkur- kirkju. Að auki munu félagar úr kór Keflavíkurkirkju selja afmælis- diskinn sinn en kórinn varð 75 ára á síðasta ári. Allur ágóði af sölu disksins rennur jafnframt í orgel- sjóðinn. Karlmaður á fertugsaldri var handtekinn fyrir kynferðis- lega áreitni við ungan dreng í Sundmiðstöð Keflavíkur í sl. viku. Málið er til rannsóknar hjá Rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurnesjum. Maðurinn sem er íslenskur en býr ekki á Suðurnesjum hafði komið úr millilandaflugi. Hann hafði verið nokkra stund á svæðinu, í heitum pottum og síðan í gufu sundmið- stöðvarinnar þar sem hann áreitti drenginn á kynferðislegan hátt. Drengurinn hafði verið með fleiri vinum sínum á sundæfingu og síðan í heitu pottunum og gufunni. Félagar drengsins fóru út úr guf- unni á undan honum og þá áreitti maðurinn hann þegar þeir voru tveir þar inni. Drengurinn hljóp út úr gufunni og tilkynnti atburðinn til starfsmanna sundmiðstöðvar- innar. Þeir kölluðu til lögreglu en tóku manninn afsíðis og héldu honum þar, þangað til hún kom á staðinn. Samkvæmt heimildum VF var maður inn undir veru legum áhrifum áfengis þó það sæist ekki mikið á honum og í fórum hans fannst bjór. Fólk í lauginni var slegið yfir atburðinum en drengur- inn sem stundar sundæfingar þar var í miklu uppnámi eftir atburð- inn. Starfsfólk þótti taka faglega og fumlaust á málum. Lögreglan tók skýrslu af mann- inum og í framhaldi var óskað eftir gæsluvarðhaldi yfir honum. Því var hafnað en gefið út farbann á hann. Rannsókn er í fullum gangi. Sakamál Áreitti ungan dreng í sundmiðstöðinni Víkurfréttir næsta miðvikudag! Páskablað Víkurfrétta kemur út miðvikudaginn 27. mars. Skilafrestur á auglýsingum er nk. mánudag. Auglýsingasíminn er 421 0001 Póstur: fusi@vf.is

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.