Víkurfréttir


Víkurfréttir - 21.03.2013, Page 6

Víkurfréttir - 21.03.2013, Page 6
fimmtudagurinn 21. mars 2013 • VÍKURFRÉTTIR6 SAFNAHELGI Á SUÐURNESJUM 16. - 17. MARS Dagskrá Reykjanesbæjar Sjá alla dagskrána á safnahelgi.is Víkingaheimar, Víkingabraut 1, opið laugardag og sunnudag kl. 12.00 - 17.00. Sunnudag kl. 15.00 er kynning á Ásatrúarfélaginu. Fimm sýningar í húsinu: 1. Víkingaskipið Íslendingur sem sigldi til Ameríku árið 2000 og ýmsir gripir tengdir siglingunni. 2. Víkingar Norður-Atlantshafsins, sýning um siglingar og landnám norrænna manna sem unnin var í samstarfi við Smithsonian stofnunina í Bandaríkjunum. 3. Landnám á Íslandi, merkar fornleifar af Suðurnesjum. Á sýningunni má m.a. sjá gripi úr Hafurbjarnarkumlinu og nýjustu fornleifarannsókn- inni í Vogi Höfnum. 4. Örlög guðanna, sýning um norræna goðafræði. Heimsmynd víkinganna er þarna sett fram á listilegan máta þar sem frásögn, myndlist og tónlist fléttast saman á nýstárlegan hátt. 5. Söguslóðir á Íslandi, kynning á helstu söguslóðum á Íslandi í samstarfi við Samtök um sögutengda ferðaþjónustu. Duushús, Duusgata 2-8 Opið laugardag og sunnudag 13.00 – 17.00 Sýning á skúlptúrum Hallsteins Sigurðssonar. Laugardagur kl. 15.00 er formleg opnun á sýningunni, allir velkomnir. Bein útsending á risatjaldi af súluvarpinu í Eldey alla helgina. Rúmlega 100 bátalíkön og munir tengdir sjávarútvegssögu Íslendinga. Sýningin Vertíð, þyrping verður að þorpi. Sunnudagur kl. 14.00 er leiðsögn sýningarstjóra, allir velkomnir. Ljósmyndasýning frá Þjóðminjasafni Íslands. Sunnudagur kl. 15.00-17.00. Myndgreining, íbúar geta komið með gamlar ljósmyndir og fengið ráðleggingar um skráningu. Bókasafn Reykjanesbæjar, Hafnargötu 57, Opið laugardag: 10.00 - 16.00. Karls Smára Hreinssonar verða sýndar í glerskáp. Bókasafnið skreytt risafiskum og vakin athygli á fiskum í bókum og bókum um fiska. Orkuverið jörð, Reykjanesvirkjun. Opið sunnudag kl. 12.30 - 15.30. Sýningin rekur sögu orkunnar frá Miklahvelli að virkjun jarðhita á Íslandi. Sjá powerplantearth.is. Skessan í hellinum. opið laugardag og sunnudag kl. 10.00 – 17.00. Skessa Herdísar Egilsdóttur býður gestum og gangandi að heimsækja sig í hellinn. Sjá skessan.is. Rokkheimur Rúnars Júlíussonar Skólavegi 12, opið laugardag og sunnudag 14:00 – 17:00. Sjá runarjul.is. ATVINNA AÐSTOÐARSKÓLASTJÓRI HEIÐARSKÓLA Í REYKJANESBÆ Staða aðstoðarskólastjóra í Heiðarskóla er laus til umsóknar. Leitað er að einstaklingi með góða færni í mannlegum samskiptum og sem sýnt hefur mikinn metnað í störfum sínum. Menntunar- og hæfniskröfur: Meginhlutverk aðstoðarskólastjóra er að: Umsóknarfrestur er til 1. apríl nk. Sækja skal um starfið á vef Reykjanebæjar http://www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf Umsóknum eiga að fylgja ítarlegar starfsferilsskrár og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðko andi í starfið. Upplýsingar veitir Sóley Halla Þórhallsdóttir, aðstoðar- skólastjóri, í síma 420-4500 / 894-4502 eða á netfangið soley.h.thorhallsdottir@heidarskoli.is Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Heiðarskóli hefur á að skipa afar hæfu starfsfólki sem hefur metnað til góðra verka í skólamálum og hefur það komið skólanum í fremstu röð grunnskóla landsins. Nánari upplýsingar um skólann er að finna á heimasíðu hans www.heidarskóli.is ERLINGSKVÖLD Okkar árlega Erlingskvöld verður haldið í Bíósal Duushúsa 21. mars kl. 20:00. Allir velkomnir á dagskrána, sem styrkt er af Menningarráði Suðurnesja. � Garðvangur verður 20 rýma hjúkr unarheimili sam- kvæmt fyrirliggjandi drögum að samkomulagi milli sveitar- félaganna Garðs, Reykjanesbæjar, Sandgerðisbæjar og Sveitarfélags- ins Voga um uppbyggingu hjúkr- unarheimila á starfssvæði Dvalar- heimilis aldraðra á Suðurnesjum. Drögin voru kynnt í bæjarráði Sveitarfélagsins Garðs fyrir helgi. Í dag eru 38 íbúar á Garðvangi, 5 tvíbýli eru þar og 28 einbýli. Í drögum að samkomulaginu koma m.a. fram eftirfarandi áherslur í náinni framtíð: Unnið verði að því að fjölga hjúkrunarrýmum á starfssvæði DS þannig að aldraðir sem þurfa á hjúkrunarheimili að halda fái notið þeirrar þjónustu sem þeir þarfnast. Sveitarfélögin standi sameiginlega að erindi til Velferðarráðuneytisins um 20 hjúkrunarrými til viðbótar þeim 60 sem heimiluð hafa verið á Nesvöllum, enda þjóni Nesvellir íbúum svæðisins alls. Garðvangur verði rekinn áfram sem 20 rýma hjúkrunarheimili. Staðið verði sameiginlega að umsókn um fjármagn úr Framkvæmdasjóði aldraðra til endurbóta á Garðvangi. Hlévangur verði seldur og sölu- andvirðið lagt í endurbætur á Garðvangi. Samkvæmt svæðisskipulagi Suður- nesja verði horft til þess að í sam- ræmi við stækkandi samfélög verði í framtíðinni hjúkrunarrými í öllum bæjarfélögunum. Bæjarstjórar sveitarfélaganna sem standa að DS komi að samningum við væntanlega rekstraraðila hjúkr- unarheimilanna að Garðvangi og Nesvöllum. Bæjarráð samþykkir samhljóða efni samkomulagsins og leggur jafnframt áherslu á að samkomu- lagið verði lagt fyrir bæjarstjórnir sveitarfélaganna til staðfestingar. Samþykkt var samhljóða í bæjarráði Garðs að fela bæjarstjóra umboð til að fylgja málinu eftir og ganga frá samkomulaginu, sem verði síðan lagt fram til staðfestingar í bæjar- stjórn. Garður Verður Garðvangur 20 rýma hjúkrunarheimili? Hagsmunasamtök heimilanna (HH) efna til borgarafundar fimmtudaginn 21. mars kl. 20:00 í Stapanum, Reykjanesbæ, undir yfirskrift- inni „Fast er sótt á Suðurnesjamenn“. Umræðuefni fundarins er slæm fjárhagsstaða heimila á Suður- nesjum, en þar eru nauðungarsölur hlutfallslega flestar á landinu. Framsögumenn eru: Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar Þórólfur Halldórsson, sýslumaður í Keflavík Oddný Harðardóttir, þingmaður í Suðurkjördæmi Ólafur Garðarsson, formaður HH. Að framsögum loknum taka við pallborðsumræður þar sem fulltrúum stjórnmálaflokka sem bjóða fram í alþingiskosningum hefur verið boðið til þátttöku. Borgarafundur í Stapanum í kvöld

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.