Víkurfréttir - 10.10.2013, Page 6
fimmtudagurinn 10. október 2013 • VÍKURFRÉTTIR6
Tómataframleiðsla
í Grindavík?
Á síðasta fundi bæjarráðs Grindavíkur gerði bæjar-
stjórinn Róbert Ragnarsson
grein fyrir stöðu viðræðna við
h o l l e n s k a n
aðila sem hefur
áhuga á að reisa
15 ha gróðurhús
til tómatafram-
leiðslu á reit i5
skv. aðalskipu-
l ag i Grind a-
v í k u r b æ j a r
2010-2030.
Vinna við deiliskipulagstillögugerð
er að hefjast og er fyrirhugað að
halda kynningarfund fyrir íbúa
þann 16. október næstkomandi.
Bæjarráð fól bæjarstjóra að vinna
tillögu að viljayfirlýsingu við fé-
lagið um framgang verkefnisins og
leggja fyrir bæjarráð.
Á móti auknum
þjónustugjöldum
Á síðasta fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar þann 1.
október lögðu bæjarfulltrúar
S a m f y l k -
ingar fram
bókun þar
sem mót-
mælt var
h æ k k u n
þjónustu-
gjalda í Reykjanesbæ. Friðjón
Einarsson bæjarfulltrúi Sam-
fylkingar lagði fram eftirfarandi
bókun.
„Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar
eru á móti því að auka álögur á
íbúa Reykjanesbæjar með því að
hækka þjónustugjöld eins og t.d.
leikskólagjöld, gjald fyrir skólamál-
tíðir, tónlistarskóla og frístunda-
skóla um allt að 5% árið 2014 eins
og sjálfstæðismenn leggja til.“
Friðjón sagði að rekstrarárin 2013
og 2014 njóti Reykjanesbær um
3-400 milljón króna afsláttar af
leigugreiðslum bæjarins sem muni
hækka aftur í milljarð árið 2015.
„Við viljum nýta þetta tímabundna
svigrúm í rekstri bæjarins m.a. til
þess að hlífa íbúum Reykjanes-
bæjar við gjaldskrárhækkunum
sem hafa verið töluverðar undan-
farin ár.“ Til máls tóku einnig Árni
Sigfússon og Kristinn Þ. Jakobsson.
Fundargerð var samþykkt með 11
atkvæðum gegn engu.
Sunnudag 13. október kl. 14 verður listamannaspjall með
Gunnhildi Þórðardóttur þar
sem hún segir frá sýningu sinni
Áframhald í Listasafni Reykja-
nesbæjar. Á sýningunni eru ný
verk öll unnin á þessu ári en titill
sýningarinnar vísar í áframhald-
andi þróun á verkum Gunnhildar
og til þeirra efna sem verkin eru
gerð úr. Á sýningunni eru tvíð
og þrívíð verk sem ýmist eru
unnin úr fundnum hlutum eða
tilfallandi efni og afskurði eins og
timbri, bárujárni og textíl enda
sjálfbærni ofarlega í huga hennar.
Gunnhildur sækir innblástur til
bernskuáranna í Keflavík, hluti
tengda sjómennsku, náttúru og
mannvirkja á Reykjanesinu.
Sýningarstjóri er Inga Þórey Jó-
hannsdóttir myndlistarmaður.
Gunnhildur lauk BA (Honours) í
listasögu og fagurlistum frá Listahá-
skólanum í Cambridge árið 2003
og MA í liststjórnun frá sama skóla
árið 2006. Hún hefur haldið nokkrar
einkasýningar meðal annars Minn-
ingar í kössum í Flóru á Akureyri
sl. vor auk þess að taka þátt í sam-
sýningu í Listasafni Íslands í maí
sl. Þá tók hún þátt í myndbands-
gjörningi í Tate Britain á síðasta
ári sem stjórnað var af Tracly Mo-
berly myndlistarmanni. Sýningin
stendur til 27. október en safnið er
opið virka daga kl. 12.00-17.00 og
um helgar kl. 13.00-17.00. Að venju
er aðgangur ókeypis.
30
Áframhald listamannaspjall
- 13. október kl. 14
Lögreglustjórinn á Suður-nesjum, Sigríður Björk Guð-
jónsdóttir fundaði ásamt Skúla
Jónssyni aðstoðaryfirlögreglu-
þjóni með bæjarráði í Vogum þar
sem kynnt var nýtt fyrirkomulag
hverfislöggæslu í sveitarfélaginu.
Sigríður kynnti jafnframt til leiks
Sigurð Bergmann aðalvarðstjóra,
sem nú hefur tekið við umsjón með
hverfislöggæslunni í Vogum og
Grindavík. Sigurður er enginn ný-
græðingur í lögreglunni, en hann
hefur starfað sem lögreglumaður
frá árinu 1982.
Hlutverk hverfislögreglumanns felst
ekki síst í því að þekkja starfssvæði
sitt vel og mynda góð tengsl við
íbúa og stofnanir sveitarfélagsins.
Þar má nefna barnaverndarnefndir,
forvarnarnefndir, félagsþjónustu,
umhverfis- og skipulagssvið, skóla,
fyrirtæki og ýmiss félagasamtök.
Hverfislögreglumaður tekur jafn-
framt virkan þátt í starfsemi for-
varnarteymis sveitarfélagsins.
Hverfislöggæslan í Vogum efld