Víkurfréttir


Víkurfréttir - 10.10.2013, Side 13

Víkurfréttir - 10.10.2013, Side 13
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 10. október 2013 13 AuglýsingAsíminn er 421 0001 Þegar ég reið á vaðið með fyrsta pisti linn minn fyrir réttum t v e i mu r á r u m síðan, þá kvart- aði ég sár lega yfir því að okkur vantaði slátrara í bæjarfélagið, sem gæti boðið okkur þegnunum upp á alvöru kjötborð. Innpakkaðar og oftar en ekki óhag- kvæmar stærðir helgarsteika hafa staðið okkur til boða í verslunum svæðisins um árabil. Mér vitanlega gera heimamenn sér ferðir til höfuð- borgarinnar til þess að kaupa þennan hluta matarkörfunnar fyrir helgar og því miður er oft ákveðið að nýta tæki- færið og klára önnur innkaup fjarri heimaverslun. Ég get ekki fullyrt um að fyrrum þingmaður og aflakló úr Njarðvíkurhverfi passi við þá ímynd sem við höfum af slátrara en guði sé lof fyrir frumkvæði hans til að laga valkvíðann fyrir framan kæliborðið í kaupfélaginu. Og hvar er betra en að koma því fyrir í sjálfstæðishúsinu í heimahögunum? Ég hlakka til þess að nýta mér þennan nýja valkost og vona svo sannarlega að versluninni verði vel tekið. Í kjölfar nýliðinnar ljósahátíðar og komandi hátíðar ljóssins, þá er ekki úr vegi að ræða aftur lýsinguna á Reykjanesbrautinni. Nú líður að þeim tíma árs að Vegagerðin leggi höfuðið í bleyti vegna sparnaðarkrafna fjár- lagafrumvarpsins og að sá sparn- aður komi að fullu til framkvæmda á næstu mánuðum. Þeir halda eflaust áfram að spara með þessa árs fjárlög á bakinu með því að kveikja á öðrum hverjum staur, enda féllu andmæli vegna þeirrar ákvörðunar í gleymsk- unnar dá og umferðarörygginu, sem stefnt var í voða, var ekki nægilega fylgt vel á eftir. Hver veit nema þriðji hver staur verði látinn loga eftir áramót, miðað við umræðuna um almennan niðurskurð hjá stofnunum fyrir komandi ár. Á endanum hverfa þeir fyrir fullt og allt. Mig skal þó ekki undra að þessir herramenn þurfi á næstunni að líta til verðlags á orku og aðföngum. Ef ég lít í eigin barm, þá furða ég mig á verðlagningu á ljósaperum nú til dags. Gömlu glóperurnar eru horfnar af sjónarsviðinu og við taka nýjar tegundir, halógen, sparperur og hvað þetta nú heitir allt saman, sem eru margfalt dýrari en von- andi endingarbetri og orkusparandi. Venjulegar heimilisperur standa nú í tæpum fimm hundruð krónum stykkið og hægt er að sjá verðlag vel á annað þúsund krónur, eftir því hvers lags tegund er um að ræða. Vona innilega að raforkuverðið verði áfram á viðunandi prís og að eigendur Gullgæsarinnar fari ekki að heimta aukinn arð og hækki það úr hófi með tíð og tíma, þrátt fyrir vilyrði að svo færi ekki. FIMMTUDAGSVALS VALUR KETILSSON SKRIFAR KVeIKTU á peRUnnI X-ICE • Hjólbarði hannaður fyrir borgarbíla og fjölskyldubíla • Mikið skorið og stefnuvirkt munstur sem veitir frábært grip í hverskyns aðstæðum. • Endingargott naglalaust vetrardekk X-ICE NORTH • Léttir álnaglar sem eru níðsterkir og hljóðlátir • 10% styttri hemlunarvegalengd á ís • Allt að 30% færri naglar • Aukið öryggi og meiri virðing fyrir umhverfinu NÁÐU GÓÐU GRIPI Á VETRINUM MEÐ MICHELIN VETRARHJÓLBÖRÐUM ALPIN A4 • Hljóðlátt og gripgott • Naglalaust vetrardekk • Ný APS gúmmí blanda tryggir gott grip í öllum hitastigum • Flipamunstur tryggir gott grip þó líði á líftíma dekksins • Margátta flipamunstur tryggir hliðar, fram og hemlagrip HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA N1 | REYKJANESBÆ | GRÆNÁSBRAUT 552 OPIÐ MÁNUDAG TIL FÖSTUDAGS KL. 08-18 OG LAUGARDAG KL. 09-13 SÍMI 440 1372 | WWW.DEKK.IS Bleikri lýsingu hefur verið komið fyrir víða á Suðurnesjum. Það er gert til að minna á átak Krabbameinsfélags Íslands en í október hvert ár er bleika slaufan seld. Með henni er verið að efla krabbameinsrannsóknir hjá konum, hvort sem um er að ræða legháls- eða brjótsakrabbameinsskoðun. Í Reykjanesbæ hafa bæjarhliðin á Stapanum og einnig við Aðalgötu verið lýst upp með bleikum ljósum. Ráð- hús bæjarins er einnig bleikt og snúni Eiffelturninn á Þjóðbraut. Allar kirkjur Suðurnesja hafa verið lýstar upp með bleikum ljósum og í öllum sveitarfélögum svæðisins hefur verið komið upp bleikum ljósum sem lýsa upp mannvirki og listaverk. Víða bleikt á Suðurnesjum

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.