Víkurfréttir - 10.10.2013, Page 13
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 10. október 2013 13
AuglýsingAsíminn
er 421 0001
Þegar ég reið á vaðið með
fyrsta pisti linn
minn fyrir réttum
t v e i mu r á r u m
síðan, þá kvart-
aði ég sár lega
yfir því að okkur
vantaði slátrara í
bæjarfélagið, sem gæti boðið okkur
þegnunum upp á alvöru kjötborð.
Innpakkaðar og oftar en ekki óhag-
kvæmar stærðir helgarsteika hafa
staðið okkur til boða í verslunum
svæðisins um árabil. Mér vitanlega
gera heimamenn sér ferðir til höfuð-
borgarinnar til þess að kaupa þennan
hluta matarkörfunnar fyrir helgar og
því miður er oft ákveðið að nýta tæki-
færið og klára önnur innkaup fjarri
heimaverslun. Ég get ekki fullyrt um
að fyrrum þingmaður og aflakló úr
Njarðvíkurhverfi passi við þá ímynd
sem við höfum af slátrara en guði sé
lof fyrir frumkvæði hans til að laga
valkvíðann fyrir framan kæliborðið
í kaupfélaginu. Og hvar er betra en
að koma því fyrir í sjálfstæðishúsinu
í heimahögunum? Ég hlakka til þess
að nýta mér þennan nýja valkost og
vona svo sannarlega að versluninni
verði vel tekið.
Í kjölfar nýliðinnar ljósahátíðar og komandi hátíðar ljóssins, þá er
ekki úr vegi að ræða aftur lýsinguna á
Reykjanesbrautinni. Nú líður að þeim
tíma árs að Vegagerðin leggi höfuðið
í bleyti vegna sparnaðarkrafna fjár-
lagafrumvarpsins og að sá sparn-
aður komi að fullu til framkvæmda
á næstu mánuðum. Þeir halda eflaust
áfram að spara með þessa árs fjárlög
á bakinu með því að kveikja á öðrum
hverjum staur, enda féllu andmæli
vegna þeirrar ákvörðunar í gleymsk-
unnar dá og umferðarörygginu, sem
stefnt var í voða, var ekki nægilega
fylgt vel á eftir. Hver veit nema þriðji
hver staur verði látinn loga eftir
áramót, miðað við umræðuna um
almennan niðurskurð hjá stofnunum
fyrir komandi ár. Á endanum hverfa
þeir fyrir fullt og allt.
Mig skal þó ekki undra að þessir herramenn þurfi á næstunni að
líta til verðlags á orku og aðföngum.
Ef ég lít í eigin barm, þá furða ég
mig á verðlagningu á ljósaperum
nú til dags. Gömlu glóperurnar eru
horfnar af sjónarsviðinu og við taka
nýjar tegundir, halógen, sparperur
og hvað þetta nú heitir allt saman,
sem eru margfalt dýrari en von-
andi endingarbetri og orkusparandi.
Venjulegar heimilisperur standa nú
í tæpum fimm hundruð krónum
stykkið og hægt er að sjá verðlag vel á
annað þúsund krónur, eftir því hvers
lags tegund er um að ræða. Vona
innilega að raforkuverðið verði áfram
á viðunandi prís og að eigendur
Gullgæsarinnar fari ekki að heimta
aukinn arð og hækki það úr hófi með
tíð og tíma, þrátt fyrir vilyrði að svo
færi ekki.
FIMMTUDAGSVALS
VALUR KETILSSON SKRIFAR
KVeIKTU á peRUnnI
X-ICE
• Hjólbarði hannaður fyrir borgarbíla
og fjölskyldubíla
• Mikið skorið og stefnuvirkt munstur
sem veitir frábært grip í hverskyns
aðstæðum.
• Endingargott naglalaust vetrardekk
X-ICE NORTH
• Léttir álnaglar sem eru níðsterkir og hljóðlátir
• 10% styttri hemlunarvegalengd á ís
• Allt að 30% færri naglar
• Aukið öryggi og meiri virðing fyrir umhverfinu
NÁÐU GÓÐU GRIPI Á VETRINUM
MEÐ MICHELIN VETRARHJÓLBÖRÐUM
ALPIN A4
• Hljóðlátt og gripgott
• Naglalaust vetrardekk
• Ný APS gúmmí blanda tryggir gott grip
í öllum hitastigum
• Flipamunstur tryggir gott grip þó líði
á líftíma dekksins
• Margátta flipamunstur tryggir hliðar,
fram og hemlagrip
HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA N1 | REYKJANESBÆ | GRÆNÁSBRAUT 552
OPIÐ MÁNUDAG TIL FÖSTUDAGS KL. 08-18 OG LAUGARDAG KL. 09-13
SÍMI 440 1372 | WWW.DEKK.IS
Bleikri lýsingu hefur verið komið fyrir víða á Suðurnesjum. Það er gert til að minna á átak
Krabbameinsfélags Íslands en í október hvert ár
er bleika slaufan seld. Með henni er verið að efla
krabbameinsrannsóknir hjá konum, hvort sem um
er að ræða legháls- eða brjótsakrabbameinsskoðun.
Í Reykjanesbæ hafa bæjarhliðin á Stapanum og einnig
við Aðalgötu verið lýst upp með bleikum ljósum. Ráð-
hús bæjarins er einnig bleikt og snúni Eiffelturninn á
Þjóðbraut.
Allar kirkjur Suðurnesja hafa verið lýstar upp með
bleikum ljósum og í öllum sveitarfélögum svæðisins
hefur verið komið upp bleikum ljósum sem lýsa upp
mannvirki og listaverk.
Víða bleikt á
Suðurnesjum