Víkurfréttir


Víkurfréttir - 10.10.2013, Page 14

Víkurfréttir - 10.10.2013, Page 14
fimmtudagurinn 10. október 2013 • VÍKURFRÉTTIR14 T I L K Y N N I N G Kynnt verður fyrirhugað jólaleikrit sem frumsýnt verður í byrjun desember. Hvetjum alla áhugasama að koma og kynnast starfinu framundan. -St jórnin- Ert þú 16 ára eða eldri og langar þig að taka þátt í jólaleikrit i með Leikfélagi Keflavíkur? Skólamatur óskar eftir umsóknum í lausar stöður og í afleysingar í mötuneyti í Reykjanesbæ. Allar nánari upplýsingar veitir Fanný Axelsdóttir. Umsóknir berist á fanny@skolamatur.is Mötuneyti! Hollt, gott og heimilislegt Sími 420 2500 I skolamatur@skolamatur.is skolamatur.is Sagan um krakkana í Rydell High skólanum hefur nú ratað í Frumleikhúsið í Keflavík. Grunnskólakrakkar stíga á svið í bítlabænum og syngja og dansa í GRÍS á aðdáunarverðan hátt. Þessi heimsfrægi söngleikur (Grease) var fyrst settur á svið í Chicago árið 1972 en samnefnda kvikmynd þekkja nánast allir þar sem þau John Travolta og Olivia Newton John voru í aðalhlutverki en hún var frumsýnd 1978. Upp- færslur Grease skipta hundruðum um heim allan og söngleikurinn hefur verið þýddur á yfir tuttugu tungmálum. Rúmlega tuttugu krakkar taka þátt í GRÍS og eru öll mikið á sviðinu. Í leikstjórapistli þeirra Guðnýjar Kristjánsdóttur og Höllu Kar- enar Guðjónsdóttur kemur fram að mun færri komust að en vildu þegar áheyrnarprufur fóru fram síðasta vor. Þær tvær eru kynntar í leikskrá undir nafninu „Gylturnar“ og setja upp sýninguna í samvinnu við Leikfélag Keflavíkur þar sem þær hafa líka verið í framlínunni í mörg ár. Tónlistin skipar stóran sess í sýn- ingunni en líka dans og þetta er skemmtilegt bland í söngleiknum sem er með lög sem margir þekkja eins „Sandy“, „Summer nights“ og „Greased lightnin“. Klæðnaðurinn er flottur og sviðsmyndin fín. Þær Guðný og Halla hafa náð öllu því besta út úr þessum krökkum og þau standa sig mjög vel. Í aðalhlutverki eru þau Perla Sóley Arinbjörns- dóttir sem leikur Sandy og Valþór Pétursson er í hlutverki Danny. Þau gera það bæði vel eins og reyndar allir í sýningunni. Nær allir leikar- arnir eru að stíga sín fyrstu skref á sviði og mörg þeirra geta eflaust átt framtíð fyrir sér í leiklist. Án þess að greina sérstaklega frammi- stöðu hvers og eins þá er ekki hægt annað en að minnast á frammi- stöðu Elmu Rúnar Kristinsdóttur. Hún er dansar, syngur bakraddir og syngur ein á sviðinu í hlutverki engils í sýningunni. Brosmild og með frábæra dans- og sönghæfi- leika er ljóst að hún er með'etta eins og sagt er. Annars er stórkostlegt að sjá krakk- ana koma fram, ýmist eina að syngja á sviðinu eða með öðrum. Það er ekki öllum krökkum á unglings- aldri gefið að koma fram, syngja og dansa fyrir fullu húsi af fólki. Þau munu án efa aldrei gleyma þess- ari lífsreynslu og ekki má heldur gleyma að gefa leikstjórunum stórt prik fyrir að fara í svona viðamikla sýningu með unglingum. Bítlabær- inn stendur svo sannarlega undir nafni í GRÍS og ég hvet alla til að mæta í Frumleikhúsið. Maður fer bæði hissa og stoltur heim að lok- inni sýningu. Páll Ketilsson. Leiklist: Skemmtileg GRÍS í bítlabænum

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.