Víkurfréttir - 10.10.2013, Síða 14
fimmtudagurinn 10. október 2013 • VÍKURFRÉTTIR14
T I L K Y N N I N G
Kynnt verður fyrirhugað jólaleikrit sem frumsýnt
verður í byrjun desember. Hvetjum alla áhugasama
að koma og kynnast starfinu framundan.
-St jórnin-
Ert þú 16 ára eða eldri og langar þig að taka
þátt í jólaleikrit i með Leikfélagi Keflavíkur?
Skólamatur óskar eftir umsóknum í lausar stöður
og í afleysingar í mötuneyti í Reykjanesbæ.
Allar nánari upplýsingar veitir Fanný Axelsdóttir.
Umsóknir berist
á fanny@skolamatur.is
Mötuneyti!
Hollt, gott og heimilislegt
Sími 420 2500 I skolamatur@skolamatur.is
skolamatur.is
Sagan um krakkana í Rydell High skólanum hefur nú
ratað í Frumleikhúsið í Keflavík.
Grunnskólakrakkar stíga á svið í
bítlabænum og syngja og dansa í
GRÍS á aðdáunarverðan hátt.
Þessi heimsfrægi söngleikur
(Grease) var fyrst settur á svið í
Chicago árið 1972 en samnefnda
kvikmynd þekkja nánast allir þar
sem þau John Travolta og Olivia
Newton John voru í aðalhlutverki
en hún var frumsýnd 1978. Upp-
færslur Grease skipta hundruðum
um heim allan og söngleikurinn
hefur verið þýddur á yfir tuttugu
tungmálum.
Rúmlega tuttugu krakkar taka þátt
í GRÍS og eru öll mikið á sviðinu.
Í leikstjórapistli þeirra Guðnýjar
Kristjánsdóttur og Höllu Kar-
enar Guðjónsdóttur kemur fram
að mun færri komust að en vildu
þegar áheyrnarprufur fóru fram
síðasta vor. Þær tvær eru kynntar í
leikskrá undir nafninu „Gylturnar“
og setja upp sýninguna í samvinnu
við Leikfélag Keflavíkur þar sem
þær hafa líka verið í framlínunni í
mörg ár.
Tónlistin skipar stóran sess í sýn-
ingunni en líka dans og þetta er
skemmtilegt bland í söngleiknum
sem er með lög sem margir þekkja
eins „Sandy“, „Summer nights“ og
„Greased lightnin“. Klæðnaðurinn
er flottur og sviðsmyndin fín. Þær
Guðný og Halla hafa náð öllu því
besta út úr þessum krökkum og þau
standa sig mjög vel. Í aðalhlutverki
eru þau Perla Sóley Arinbjörns-
dóttir sem leikur Sandy og Valþór
Pétursson er í hlutverki Danny. Þau
gera það bæði vel eins og reyndar
allir í sýningunni. Nær allir leikar-
arnir eru að stíga sín fyrstu skref
á sviði og mörg þeirra geta eflaust
átt framtíð fyrir sér í leiklist. Án
þess að greina sérstaklega frammi-
stöðu hvers og eins þá er ekki hægt
annað en að minnast á frammi-
stöðu Elmu Rúnar Kristinsdóttur.
Hún er dansar, syngur bakraddir
og syngur ein á sviðinu í hlutverki
engils í sýningunni. Brosmild og
með frábæra dans- og sönghæfi-
leika er ljóst að hún er með'etta eins
og sagt er.
Annars er stórkostlegt að sjá krakk-
ana koma fram, ýmist eina að syngja
á sviðinu eða með öðrum. Það er
ekki öllum krökkum á unglings-
aldri gefið að koma fram, syngja og
dansa fyrir fullu húsi af fólki. Þau
munu án efa aldrei gleyma þess-
ari lífsreynslu og ekki má heldur
gleyma að gefa leikstjórunum stórt
prik fyrir að fara í svona viðamikla
sýningu með unglingum. Bítlabær-
inn stendur svo sannarlega undir
nafni í GRÍS og ég hvet alla til að
mæta í Frumleikhúsið. Maður fer
bæði hissa og stoltur heim að lok-
inni sýningu.
Páll Ketilsson.
Leiklist:
Skemmtileg GRÍS
í bítlabænum