Bæjarins besta - 24.07.2008, Síða 5
FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 2008 5
Eigandi plötusafnsins, sem
innihélt verk eftir marga af
uppáhalds tónlistarmönnum
Guðmundar s.s. Uriah Hepp
og Deep Purple, fór þá með
safnið út í garð ásamt vini
sínum þar sem vínilplöturnar
voru notaðar sem leirdúfur.
Þeim var kastað á loft og þær
skotnar með haglabyssu. Eig-
andinn taldi ekki ástæðu til að
eiga þetta „drasl“, til hvers að
hirða þetta þegar geisladiskar
voru komnir til að vera? Þetta
virtist vekja upp skelfingu hjá
Guðmundi og svarar hann
ekki í nokkrar sekúndur.
Loksins svarar hann með
hryllingstón: „Það er ekki í
lagi með suma.“
Vinnur að gagna-
banka um tónlist
Guðmundur er að vinna að
því að koma öllum upplýs-
ingum um plöturnar sínar á
stafrænt form en síðustu miss-
eri hefur hann skráð niður
nöfn á listamönnum, plötum
og lögum og sett þær á heima-
síðu sína, www.123.is/hammond.
Gagnabankinn er stórmerki-
legur fyrir þær sakir að þetta
eru oft einu upplýsingarnar
sem finnast á Internetinu um
lítt þekktari hljómsveitir Ís-
lands í gegnum tíðina. Hann
skráir einnig sögu hljómsveit-
arinnar ef hún finnst og býður
hann öllum þeim sem hafa
einhverjar upplýsingar að
senda sér línu svo hann geti
bætt því við.
„Ég er ekki nálægt því bú-
inn en það er þó nokkuð mikið
komið inn. Ég hef tekið eftir
því að fólk rekst á síðuna mína
með því að leita á Google, en
oft er ekkert annað sem kemur
upp. Einnig kemur fyrir að
tónlistarmenn sjálfir hafi sam-
band við mig til að bæta við
upplýsingum eða leiðrétta,
það er auðvitað vel þegið og
bara gaman að því,“ segir
Guðmundur.
Guðmundur segist alls ekki
vera að fara að slaka á í tón-
listarkaupum og áhuga. Því
getur verið erfitt að áætla hvað
safnið verður stórt eftir því
sem tíminn líður. Eitt er þó á
hreinu, tónlistarmenn sem
troða upp í bænum mega eiga
von á því að sjá ljósu lokkana
í fremstu röð um ókomin ár.
– nonni@bb.is
Í kringum 1980 var hljóm-
sveitin Bjartsýnismenn
stofnuð. Í hljómsveitinni
voru Óli Pétur Jakobsson,
Guðmundur Heiðar Guð-
mundsson, Sigurður
Snorri Jónsson, Helgi
Jóhann Hilmarsson og
Einar Ársæll Hrafnsson.
Menn þurfa ekki lengur að láta sér nægja skötuveislu einu sinni á ári.
Mikil ánægja með skötu-
veislu Lions og Tjöruhússins
Gleðin skein úr andlitum
gesta Tjöruhússins í hinni
árlegu skötuveislu Lions-
klúbbsins á Ísafirði. Með
skötuveislunni fagna Lions-
menn Þorláksmessu að sumri.
Veislan er orðin einn líflegasti
viðburður sumarsins hjá
Tjöruhúsinu en allur ágóði
rennur til góðgerðarmála.
Skötuveislan heppnaðist
ljómandi vel í ár að sögn Kára
Jóhannssonar sem skipulagði
veisluna í samstarfi við
Magnús Hauksson, vert í
Tjöruhúsinu.
„Fólk lét mjög vel af sköt-
unni enda erum við með vana
menn í eldamennskunni.
Hérna voru um 100 manns í
hádeginu líkt og síðustu ár.
Föstu kúnnarnir mæta alltaf
en einnig var nokkuð um ný
andlit. Það komu hingað
nokkrir erlendir ferðamenn og
átu skötu. Þeim fannst bragðið
sérstakt, svo vægt sé til orða
tekið. Við skulum bara segja
að þeir fengu sér ekki ábót“,
segir Kári. Það sama var ekki
að segja um nokkra íslenska
skötuunnendur sem að sögn
Kára þurfti að bera í burtu
eftir þriðja skammt. Það er
ekki furða þar sem kokkarnir
í ár, líkt og síðast, eru á
heimsmælikvarða þegar kem-
ur að skötusuðu. Við pottinn
standa Halldór Hermannsson,
skötumeistari, og tengdasonur
hans og skötulærlingur,
Magnús Hauksson.
– nonni@bb.is Um hundrað manns mættu í Tjöruhúsið í hádeginu til að gæða sér á skötu.
Þjálfarinn fékk rautt spjald
Sameinað knattspyrnulið
Ísafjarðar og Bolungarvíkur
gerði 1-1 jafntefli við lið Þróttar
frá Vogum á Vatnsleysuströnd
á laugardag. Mikil barátta
einkenndi leikinn sem og
spjaldagleði dómarans í garð
Djúpsmanna, en alls fóru sex
spjöld í loft í átt að leikmönnum
Bí/Bolungarvíkur. Fátt mark-
vert gerðist í fyrri hálfleik en
það dró til tíðinda á 64. mínútu
þegar Þróttarar komust yfir. Svo
virtist vera sem upp úr ætlaði
að sjóða á næstu mínútum en
BÍ/Bolungarvík fengu að líta
fjögur spjöld á sex mínútna
tímabili, þar á meðal var eitt
rautt þegar þjálfari BÍ/Bol-
ungarvíkur, Slobodan Milisic,
fékk rauða spjaldið og var
sendur upp í stúku af dómara
leiksins. Djúpsmenn voru þó
ekki hættir og neituðu að gefast
upp þá á móti blés og náðu að
jafna leikin með marki frá
Dimitar Madzunarov þegar
aðeins fimm mínútur voru til
leiksloka. Þar við sat og úrslit
leiksins 1-1 jafntefli.
Þrátt fyrir jafnteflið situr BÍ/
Bolungarvík ennþá í toppsæti
B-riðils 3. deildar Íslandsmóts-
ins í knattspyrnu með 20 stig
að 9 umferðum loknum.
Hamrarnir/Vinir sækja fast á
hæla þeirra með 19 stig eftir 9
leiki en BÍ/Bolungarvík er með
mikið betri markatölu, 15 mörk
í plús en Harmarnir/Vinir með
4 mörk í plús.
Næsti leikur BÍ/Bolungar-
víkur verður á Torfnesvelli á
laugardag þar sem þeir etja
kappi við lið Knattspyrnufélags
Garðarbæjar sem situr um
miðjan riðil. Leikurinn hefst
klukkan 14.00. – nonni@bb.is
BÍ/Bolungarvík situr enn í toppsæti riðilsins eftir
jafntefli helgarinnar.