Bæjarins besta


Bæjarins besta - 24.07.2008, Page 14

Bæjarins besta - 24.07.2008, Page 14
FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 200814 Mannlífið Netspurningin er birt vikulega á bb.is og þar geta lesendur látið skoðun sína í ljós. Niðurstöðurnar eru síðan birtar hér. Smáauglýsingar Alls svöruðu 388. Já sögðu 263 eða 68% Nei sögðu 125 eða 32% Spurning vikunnar Hendir þú mat? Systkinin Brynjólfur Örn, Sigurður Óli og Margrét Rún æfa öll glímu en þau eru á nítjánda, fjórtánda og tólfta ári. Glíman hefur allt sem góð íþrótt þarf að hafa Systkinin Brynjólfur Örn, Sigurður Óli og Margrét Rún æfa öll glímu en þau eru á nítjánda, fjórtánda og tólfta ári. Í maí voru haldin sam- dægurs þrjú glímumót á norð- anverðum Vestfjörðum þar sem systkinin komu, sáu og sigruðu. Brynjólfur sigraði í keppninni um Vestfirðinga- beltið en hún var endurvakin fyrir tveimur árum eftir 73 ára hlé. Hann hlaut þar með sæmdarheitið glímukóngur Vestfjarða. Yngri systkini hans sigruðu í sínum flokkum á Þrastarmótinu. Nú er Brynjólfur að undir- búa sig fyrir heimsmeistara- mót í glímu sem fer fram í Danmörku í ágúst. Fjölskylda hans ætlar að fylgja honum eftir enda hefur glímubakter- ían svo sannarlega lagt sitt mark á hana. – Hvað eruð þið búin að æfa lengi? „Ég er búinn að æfa í fjögur ár eða frá enda níunda bekkjar. Þá ákvað ég bara að slá til og lenti strax í öðru sæti á móti. Margrét hefur æft í tvö ár og Óli frá því í desember. Þetta smitar út frá sér. Ég byrjaði bara til að prófa og svo byrjaði Margrét að æfa en Óli var alltaf í körfuboltanum og hafði engan áhuga á að prófa glímu. Svo fékk ég hann til að prófa í desember og hann varð annar á móti. Hann ætti þremur vik- um seinna í körfuboltanum og byrjaði alveg í glímunni, segir Brynjólfur. Systkinin hafa ekki langt að sækja glímuna því móður- langafi þeirra, Magnús Har- aldsson, frá Bolungarvík var glímukappi en hann glímdi fram á sjötugt. – Hvað er það sem heillar ykkur systkinin við glímuna? „Þetta er svo frábrugðið öll- um öðrum íþróttum. Maður verður mikið yfirvegaðri og nær betri stjórn á sjálfum manni og skapinu. Glíman nýtist á svo marga vegu, hún styrkir mann og eykur snerpu og kennir manni sjálfsvörn. Hún hefur allt sem íþrótt þarf að hafa“, segir Brynjólfur. – Þú vannst Vestfjarðabelt- ið og hlaust sæmdarheitið glímukóngur Vestfjarða. „Eiginlega var það bara óvart. Ég hafði verið að vinna alla nóttina sem dyravörður í Edinborgarhúsinu og vaknaði rétt fyrir kl. 10 þegar skráning- in var að byrja. Ég brunaði yfir á Suðureyri og bjóst svo sem ekki við neinum árangri. Ætlaði bara að vera með til að vera með. Ég ætlaði að reyna að vinna fegurðarverðlaunin. Ég lagði Steinar og Daníel og gerði jafnglímu við Stíg. Hann gerði jafnglímu við mig og Daníel og lagði Steinar. Hann var því með tvo vinninga en ég tvo og hálfan og því sigraði ég. Og ég fékk einnig fegurð- arverðlaunin“, segir Brynjólf- ur. – Margrét og Óli sigruðu í sínum flokkum á Þrastarmót- inu sem fór fram samdægurs og keppt var um Vestfjarða- beltið. „Ég var í flokki stúlkna 11- 12 ára og var ákveðin í að vinna. Alveg frá því að ég vissi hvenær mótið yrði haldið var ég ákveðin í að vinna. Ég held að það hafi hjálpað mér mjög mikið“, segir Margrét. „Ég var í flokki drengja 13- 14 ára. Ég var svakalega glað- ur með sigurinn.Ég fékk tvær jafnglímur en vann hinar glím- urnar mínar og fór því í úr- slitaglímu við strák sem ég þekki. Við kunnum á hvorn annan en ég var nú ekkert svo lengi með hann samt“, segir Óli. Vélmanna- dans í fyrstu – Glíman hefur vakið mikla athygli á Vestfjörðum. Til að mynda hefur aldursflokkur Óla verið að glíma fyrir ferða- menn af skemmtiferðaskipum og kynna íþróttina. „Hörður er þriðja stærsta glímufélagið á landinu. HSK eru stærstir og svo kemur Reyðarfjörður og svo við. Þá er talið með bæði fullorðnir og börn en hjá stóru félögun- um vantar öflugra starf fyrir börn og unglinga. Við erum með mjög gott starf fyrir yngri kynslóðina en það mætti samt vera fleiri stelpur að æfa hjá okkur“, segir Brynjólfur. „Já við erum bara þrjár. Oft- ast æfum við með strákunum en stundum æfum við bara þrjár saman“, segir Margrét. „Það æfir þær kannski bara meira að æfa með strákunum því þeir taka fjölbreyttari brögð sem ekki eru vanalega kennd í stelpnaflokkunum. Eins er það jákvætt fyrir strák- ana því stelpurnar glíma á mikið mýkri hátt, en þeir eru svo stórir og stífir og því læra þeir að mýkja sig upp þegar þeir glíma á móti stelpunum. Eins og þegar við byrjuðum fyrst fyrir fjórum árum þá var þetta bara eins og vélmenna- dans og stál í stál. Hörður er líka eina íþrótta- félagið á norðanverðum Vest- fjörðum sem er með fleiri en eina íþrótt. Við erum með box, tæ kvon dó, glímu og hand- bolta. Svo höfum við aðstöðu til að bjóða upp á æfingar í Þrír kassavanir kettlingar fást gefins. Uppl. í síma 456 3372. Gisting í miðbæ Reykjavíkur. Verð 5.000. Uppl. í síma 895 0497. Íbúð til leigu. 3ja herbergja íbúð til leigu í Holtahverfi. Uppl. í síma 891 7997 eftir kl 16. Til sölu tengdamömmubox. Lítið notað Mont Blanc RBX 3200 ferðabox til sölu á krónur 15.000,-. Stærð L134 x B94 x H45, 310l. Uppl. í síma 895 7130 Íbúð í Stórholti 11 til leigu, 3ja herbergja. Laus frá og með 1. ágúst. Uppl. í síma 898 9794. Hef til sölu 2 nýjar útidyra- hurðir. Vinstri opnun, góður afsláttur. Uppl. í síma 456 3470 eða 862 3470. Íbúð í Kópavogi. Til leigu er 3ja herbergja íbúð í Kópavogi. Um er að ræða nýlega 101 fm. íbúð, leigutími er eitt ár frá og með 1. september n.k. Möguleiki er á að leigja húsgögn með íbúð- inni. Eingöngu reyklausir aðilar koma til greina. Uppl. í síma 456 5363 og 844 3143. Til sölu sófasett, 3 + 2 + 1, á krónur 20 þúsund. Einnig er til sölu nýlegt rimla-barnarúm með dýnu, verð 7 þúsund. Nánari upplýsingar hjá Mörthu í síma 696 5874. Einbýlishús á 2 hæðum að Hjallavegi 16, Suðureyri 430, 144,4 fm úr steinsteypu. 5 herbergi. Uppl. í síma 440 0982. Til sölu Honda CB1300 2007. Ef þú ert á annað borð fyrir Mótorhjól þá gæti þér líkað við þetta, Frábært til að ferðast á. Alvöru Mótorhjól hlífalaust, eins og þau voru gerð milli 80 og 90, nema núna 1300cc, með alvöru bremsum, og beinni innspýtingu. Ekið 9000 km, þó nokkuð af aukahlutum, Micron slipon, belly faring, crass protector, speglar, handföng, Hugger með áfastri keðjuhlíf, K&N, loftsía, Light Faring. Verð aðeins 1.190 þ.kr. Uppl í síma 6150445 eða 8632314. Halldór. Til sölu barnarimlarúm, vel með farið. Uppl. í síma 892 4372. Til leigu er 3ja-4ra herb íbúð í Bolungarvík. Uppl. í síma 691 3115. Til sölu er Hrannargata 3, Ísafirði. 142,5 fermetra einbýlis- hús á tveimur hæðum, fjögur svefnherbergi, skjólríkur pallur við húsið. Uppl. í síma 861 7860, Rósamunda. Farandsalinn kom víðar við en á Vestfjörðum Farandsalinn sem handtekinn var á Ísafirði á dögunum virðist hafa komið við víðar en á Vestfjörðum. Að því er frá er greint á visir.is segir kona á Blönduósi að á dögunum hafi maður bankað upp á hjá sér og boðið til sölu málverk sem hann var með í poka. Málverkunum svipar til þeirra sem gerð voru upptæk þegar farandsalinn var handtekinn á Ísafirði. Maðurinn virtist ekki tala ensku en rétti konunni þess í stað miða. Á miðanum hafði verið skrifað á íslensku að málverk farandsalans væru til sölu en kona sagðist ekki hafa áhuga. „Hann hristi þá bara hausinn og virtist nokkuð fúll. Því næst gekk hann í burtu,“ segir konan við Vísi. Það er ódýrara að vera áskrifandi að Bæjarins besta

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.