Bæjarins besta - 07.04.2011, Side 2
2 FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 2011
Stjórnarkjör
Samkvæmt 15. gr. laga Verkalýðsfélags Vest-
firðinga um stjórnarkjör er auglýst eftir listum
eða tillögum um einstaklinga í stjórnarsæti
vegna kjörs stjórnar og trúnaðarmannaráðs
fyrir starfsárin 2011 til 2013 að viðhafðri alls-
herjar atkvæðagreiðslu.
Samkvæmt því ber að skila lista skipuðum
formanni, varaformanni, gjaldkera, ritara og
fjórum til vara ásamt 30 einstaklingum í trún-
aðarmannaráð. Tveimur skoðunarmönnum
reikninga og tveimur til vara eða tillögum um
einstaklinga í eitthvert, einhver eða öll stjórnar-
sætin sem kjósa skal til samkvæmt lögum fé-
lagsins. Hverjum framboðslista eða tillögu
skulu fylgja meðmæli minnst 25 fullgildra fé-
lagsmanna.
Listi stjórnar og trúnaðarmannaráðs liggur
frammi á skrifstofu félagsins og er birtur á vef-
síðu þess, www.verkvest.is.
Listum eða tillögum ber að skila á skrifstofu
félagsins Pólgötu 2, Ísafirði eigi síðar en kl. 12
á hádegi þriðjudaginn 19. apríl 2011.
Ísafirði, 4. apríl 2011,
Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga.
Daníel Jakobsson, bæjarstjóri
Ísafjarðarbæjar og fyrrum lands-
liðsmaður á skíðagöngu, nældi
sér í brons í hefðbundinni göngu
á Skíðamóti Íslands í Bláfjöllum
á laugardag. Í kvennaflokki varð
eiginkona hans Hólmfríður Vala
Svavarsdóttir í öðru sæti en ein-
ungis munaði sekúndu á henni
og sigurvegaranum Veroniku Lag-
un. Daníel og Hólmfríður kepptu
bæði undir formerkjum Skíðafé-
lags Ísfirðinga. Í sprettgöngu
sigraði Silja Rán Guðmunds-
dóttir frá Ísafirði í flokki kvenna.
Þá var Einar Ólafsson frá SFÍ í
öðru sæti í flokki 35-49 ára í
göngu með frjálsri aðferð.
Í síðustu grein göngukeppn-
innar, boðgöngu, hafnaði sveit
Ísafjarðar í þriðja sæti. Í kvenna-
flokki var engin sveit skráð í
boðgöngu þar sem ekki náðist að
manna þriggja manna sveitir en
þess í stað var keppt í tvímenn-
ingskeppni þar sem hver kona
fór tvo spretti. Sigursveitin kom
rétt rúmri mínútu á undan Hólm-
fríði Völu Svavarsdóttur og Silju
Rán Guðmundsdóttur sem höfn-
uðu því í öðru sæti. Keppnin
telst þó ekki hluti af Skíðamóti
Íslands. – thelma@bb.is
Ísfirðingar á verðlaunapalli
rannsóknaniðurstöður sýna að í
lagi sé að beita þar. Lagt er til að
gerð verði lítil beitartilraun (þrjár
kindur með lömbum af ómeng-
uðu svæði) til að kanna upptöku
Sérfræðingahópur sem stofn-
aður var til að fjalla um mengun
í búfé og framtíð búskapar í Skut-
ulsfirði segir ekki ráðlegt er að
beita skepnum í Engidal þar til
díoxína og etv. fleiri efna í Engi-
dal. Án slíkrar tilraunar er ekki
óhætt að hleypa afurðum á mark-
að nema að undangengnum ítar-
legum rannsóknum.
Í skýrslu sem hópurinn hefur
gefið út segir að bægja þurfi að-
komufénaði frá Engidal. Hey-
skapur muni minnka álag díoxína
á landið, en heyinu ætti að farga.
Gera þurfi ítarlegar rannsóknir á
jarðvegi. Þá þurfi einnig að taka
þarf sýni af villtum fiski í sumar.
Huga þurfi að sýnatöku á rjúpu
og berjum fyrir veiðitíma/upp-
skeru. Hreinsa þurfi öll gripahús,
hlöður og fóðurgeymslur vand-
lega.
Eftir ítarlegar umræður, rýni
niðurstaðna, greiningu ýmissa
efnamynda díoxíns, lestur greina
og annarrar þekkingaröflunar þá
eru þessar niðurstöður helstar:
Búfé í Efri Engidal er líklega
töluvert mengað, svo og afurðir.
Búfé frístundabænda er líklega
töluvert mengað, svo og afurðir.
Sama gildi um búfé fengið í Engi-
dal. Ekki er hægt að segja til um
fyrr en að loknum rannsóknum á
jarðvegi og ryki. Hvað varðar
villt dýr segir í skýrslunni að
líklegt er að rjúpa geti verið
menguð. Villtur fiskur í ánni og
lóninu þarfnast rannsóknar þar
sem setið geti verið mengað.
„Það eru því varla forsendur til
að undanskilja nein dýr á svæð-
inu þegar talað er um mengun,“
segir í skýrslunni.
Tekin voru alls þrettán sýni af
kjötafurðum frá bændum í Skut-
ulsfirði. Af þessum 13 sýnum
reyndust tvö vera eðlileg og í
samræmi við niðurstöður sem
fengist hafa við fyrri rannsóknir
á búfjárafurðum. Tvö sýni sýndu
væga hækkun en fimm sýni
sýndu verulega hækkun en þó
undir viðmiðunarmörkum. Tvö
sýni níu af tólf voru yfir viðmið-
unarmörkum. Einnig var sýni úr
kú sem hafði verið eitt ár á bæn-
um Efri Engidal, en fengin annars
staðar frá, við viðmiðunarmörk.
Sama má segja um niðurstöðu
sýnis úr fimm vetra gamalli kind
sem slátrað var í rannsóknarskyni
og hafði gengið á beit í Engidal
en á heyfóðri annars staðar frá.
Auk þessa voru tekin sex sýni
af mjólk hjá framleiðendum.
Fimm sýni voru tekin á Vest-
fjörðum og eitt í Öræfum. Sýni
tekið í Efri Engidal reyndist yfir
mörkum, hin voru eðlileg. Einnig
var tekið heysýni í Skutulsfirði
Efri Engidal. Þar var um að ræða
safnsýni tekið úr nokkrum hey-
rúllum. Mæligildi þessa meðal-
talssýnis reyndist einnig það hátt
að þeir gripir sem éta það fóður
að staðaldri, fara mjög líklega
yfir viðmiðunargildi sbr. niður-
stöður mjólkur- og nautgripa-
kjötsýna frá Efri Engidal. Af því
leiðir að þetta fóður leiðir til ónýt-
anlegra afurða.
Skýrslan var kynnt á fundi Mat-
vælastofnunar með sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðuneytinu,
Bændasamtökum Íslands, sam-
tökum afurðasölufélaga og Um-
hverfisstofnun þar sem sérfræði-
hópur kynnti áfangaskýrslu um
áhrif díoxínmengunar á framtíð
búskapar í Engidal í Skutulsfirði.
Niðurstaða fundarins og sér-
fræðihópsins var sú að markaðs-
setning búfjárafurða af þessu
svæði sé ekki ásættanleg og að
skoða verði framtíð búskapar á
svæðinu í því ljósi.
Til að taka afstöðu til framtíð-
araðgerða á svæðinu var ákveðið
að þegar yrði boðað til fundar
með sjávarútvegs- og landbún-
aðarráðuneytinu, umhverfisráðu-
neytinu, MAST, Umhverfis-
stofnun, Bændasamtökum Ís-
lands, fulltrúum bænda á svæð-
inu og Ísafjarðarbæjar.
Búfé líklega töluvert mengað
Engidalur í Skutulsfirði.