Bæjarins besta - 07.04.2011, Side 8
8 FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 2011
Auglýsing um breytingu á deiliskipu-
lagi snjóflóðavarna undir Traðarhyrnu
Bæjarstjórn Bolungarvíkur auglýsir hér með tillögu að breytingu á deili-
skipulagi snjóflóðavarna undir Traðarhyrnu skv. 1. mgr. 43. gr. skipulags-
laga nr. 123/2010.
Breytingin felur í sér að svæðið sem gildandi deiliskipulag tekur yfir
stækkar úr 23 ha í 24,7 ha. Breytingin er gerð í tengslum við gerð nýs
snjóflóðavarnargarðs sem kemur austan við þann garð sem nú er í bygg-
ingu en sunnan við götuna Stigahlíð. Skipulagssvæðið nær að lóða-
mörkum Völusteinsstrætis 1 og 2a, og Hjallastrætis 2. Deiliskipulagstill-
agan sýnir legu nýja snjóflóðavarnargarðsins, einnig legu göngustíga
og annarra útivistarsvæða við hann.
Breytingartillagan verður til sýnis á bæjarskrifstofunni í Ráðhúsinu í Bolungarvík og á heima-
síðu Bolungarvíkurkaupstaðar, www.bolungarvik.is, frá og með 1. apríl 2011 til og með 13. maí
2011.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir
við breytingartillöguna. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út 13. maí 2011.
Skila skal inn athugasemdum á bæjarskrifstofu Bolungarvíkur, Ráðhúsinu Aðalstræti 10-12,
Bolungarvík.
Þeir sem ekki gera athugasemdir við breytingartillöguna fyrir tilskilinn frest, teljast samþykkir
henni.
Bolungarvík, 30. mars 2011,
Gísli Gunnlaugsson, byggingarfulltrúi.
Strandar á
Byggðastofnun
Byggðastofnun hefur ákveð-
ið að ganga til samningar
við fyrirtækið Toppfisk í
Reykjavík um sölu á eignum
þrotabús Eyrarodda ehf., á
Flateyri, að því er fram kom
í fréttum Ríkisútvarpsins.
Aðeins er um að ræða þær
eignir búsins sem Byggða-
stofnun er veðhafi í en fyrir-
tækið Lotna ehf., hafði áður
fest kaup á stórum hluta
eignanna. Jón Steinn Elías-
son, framkvæmdastjóri Topp-
fisks, segir viðræður við
Byggðastofnun vera á byrj-
unarstigi og ekki sé búið að
ganga frá kaupunum.
„Tilboð okkar hljóðar upp
á allar eignir þrotabúsins,
en eins og er, er annar aðili
með rekstur í hluta húsanna.
Það verður því í raun ekki
hægt að hefja samningavið-
ræður fyrr en búið er að
ganga frá þeim málum,“ seg-
ir Jón Steinn, sem vill ekki
tjá sig um framtíðaráform
fyrirtækisins með kaupum
á fiskvinnslunni á Flateyri.
„Málið er einfaldlega of
stutt á veg komið svo ég geti
tjáð mig. Ég geri mér þó
vonir um að málin muni
skýrast betur í þessari viku,“
segir Jón Steinn í samtali
við BB. Kristján Kristjáns-
son, framkvæmdastjóri Lotnu
ehf., sem rekur fiskvinnslu í
húsum þrotabúsins, segir í
samtali að fyrirtækið ætli að
halda áfram að verka fisk í
húsunum. „Við höldum bara
okkar striki. Ég veit ekki
hreint og beint ekki hvernig
málin munu þróast og fylgist
einfaldlega með í fjölmiðl-
um,“ segir Kristján. Í frétt
RÚV um málið er haft eftir
samstarfsmanni Kristjáns í
Lotnu, Sigurði Aðalsteins-
syni, að það breyti engu þótt
fyrirtækið þurfi að afhenda
þær eignir sem Lotna hefur
leigt af Byggðastofnun eftir
stjórn stofnunarinnar ákvað
að hætt við söluna. Hægt sé að
halda áfram vinnslu.
Breski Óskarsverðlaunahafinn
og stórleikarinn Jeremy Irons var
staddur á Ísafirði í byrjun vikunn-
ar. Var hann í fylgd með breskum
kvikmyndagerðarmönnum en
þeir vinna nú að heimildarmynd
sem beinir sjónum sínum að sorp-
förgun og vandamálunum sem
fylgja henni. Ísafjörður komst ný-
verið í fréttirnar vegna sorp-
brennslustöðvarinnar Funa en
henni var lokað eftir að díoxín-
mengun mældist frá henni. Að
því er fram kemur á dv.is ætlar
Jeremy því að beina sjónum
sínum að Ísafirði og þeim vanda-
málum sem sveitarfélagið hefur
þurft að takast á við vegna sorp-
förgunar og tóku kvikmynda-
gerðarmennirnir meðal annars
viðtal við bæjarstjóra Ísafjarðar-
bæjar, Daníel Jakobsson.
Bjarni Brynjólfsson, ritstjóri
Iceland Review, hefur verið
breska framleiðslufyrirtækinu
Blenheim Films innan handar
vegna verkefnisins. „Þetta er al-
þjóðlegt verkefni sem fjallar um
sorpförgun og það er tekið um
allan heim í rauninni. Ísafjörður
er fyrsti áfangastaður og það er
verið að velta fyrir þessu díoxín
vandamáli sem kom upp og er
hér á Íslandi, víðar en hér reynd-
ar,“ segir Bjarni í samtali við
DV. Hann segir Breta notast við
sorpbrennslustöðvar og hyggi á
að byggja fleiri slíkar. „Þetta er
því vandamál víðar en hér. En
mér skilst að það sé verið að taka
allhressilega á málum á Íslandi
og allir byrjaðir að flokka sorp
og taka til,“ segir Bjarni en hann
segir Jeremy Irons vera fenginn í
verkefnið sem þulur myndarinn-
ar.
Jeremy Irons á að baki glæstan
kvikmyndaferil en hann hefur
einnig leikið í fjölmörgum leik-
ritum á sviði og bæði sjónvarps-
myndum og þáttum. Sem dæmi
um myndir hans má nefna The
Man in the Iron Mask, Stealing
beauty, Die Hard with a Venge-
ance, Lion King, Eragon og Rev-
ersal of Fortune en fyrir leik sinn
í henni hlaut hann fjölda verð-
launa þar á meðal Óskarsverð-
laun sem besti leikarinn.
– thelma@bb.is
Jeremy Irons á Ísafirði
Jeremy Irons er margverðlaunaður og heimsfrægur leikari.