Bæjarins besta - 07.04.2011, Side 13
FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 2011 13
Á átta ára ferli stendur ýmislegt
upp úr, sem blaðamaður stenst
ekki mátið að spyrja um.
„Það er alveg slatti,“ segir
Öddi. „Það fyrsta sem stóð upp
úr voru tónleikar á Spáni þar
sem ég ætlaði að hætta að vera
tónlistarmaður. Það urðu alveg
ógleymanlegir tónleikar – ég gaf
allt í þá. Mér var alveg sama.
Mig langaði helst að það liði yfir
mig. Ég dró eins djúpt andann
og ég gat og svo öskraði ég eins
hátt og ég gat, eins lengi og ég
gat. Ég var farinn að sjá nokkrar
stjörnur, svona, og hugsaði bara
jess – það er að líða yfir mig!
Djöfull væri það flott! Svo leið
ekki yfir mig. Ég var mjög
svekktur, en þetta voru samt al-
veg geðveikir tónleikar. Ég var
kannski svolítið inn í mig fram
að þeim, vel krúttaður á því. En
svo fattaði ég þarna að maður
verður að gefa svolítið í. Þeir
breyttu mér, þessir tónleikar,“
rifjar hann upp.
Hann hefur sömuleiðis hitað
upp fyrir bandið Queens of the
Stone Age á tónleikaferðalagi um
Kanada þvert og endilangt. „Það
var líka ógleymanlegt í alla staði,
að vera með þessu bandi og að
spila fyrir fimm, tíu þúsund manns
á kvöldi,“ segir hann frá.
„Þegar ég var að tölvutrúba-
dorast hitaði ég líka upp fyrir
band sem heitir Fantomas í Lon-
don. Þar voru svona 5000 manns
í salnum og allt gotharar. Ég
þorði ekki fyrir mitt litla líf að
taka eina einustu ballöðu og man
að ég setti allt í botn. Það var
alveg rosalegt hljóðkerfi þarna.
Ég setti eitthvað bassahljóð í
gang og hélt grínlaust að ég
myndi sprengja húsið. Ég horfði
út í sal og fólk var í alvörunni
hrætt. Að sjá fimm þúsund goth-
ara vera að skíta á sig af hræðslu...
það fannst mér eitthvað alveg
geggjað,“ segir hann og hlær við.
Einangrunin hentar vel
Öddi og Rúna hafa nú búið í
Súðavík í fimm ár, sem hann
segir hafa verið góðan tíma.
„Þetta er búið að vera æðislegt
og góður balans, að vera í ein-
angrun hér og svo í geðveikinni.
Það á mjög vel við mig. En það
er samt alveg hellings einangrun
að búa í Súðavík veturlangt. Það
getur verið alveg hundleiðinlegt
að vera í þessu myrkri. Ég vinn
líka heima hjá mér, þannig að
maður fær stundum smá „cabin
fever“. Þetta er eins og að vera út
á sjó – að labba bara upp og
niður stigann heima hjá sér, út í
kaupfélag og til baka. Þó það sé
æðislegt fólk hérna þá er sjón-
deildarhringurinn kannski svo-
lítið lokaður stundum,“ segir
Öddi, sem reiknar með því að
fjölskyldan flytji sig einhvern
tíma um set – þó hann hafi ekki
hugmynd um hvort það verði í
næsta mánuði eða eftir tuttugu
ár.
„Þetta eru náttúrulega heima-
hagarnir hennar Rúnu, svo ég
hugsa að við verðum alltaf með
eitthvað „base“ þarna, en ég held
að við verðum ekki í einhverjum
Húsið á sléttunni fílingi þarna að
eilífu,“ segir hann brosandi.
Auk plötuútgáfunnar, og auð-
vitað Aldrei fór ég suður, stefnir
Öddi á tónleikahald í sumar.
Hann hefur þegar bókað sig á
nokkra tónleika erlendis, en von-
ast til að komast á rúnt um Ísland
líka með börn og buru og tjald í
farteskinu. „Það væri draumur
að geta sameinað tónleika og úti-
legu,“ segir hann.
„Ég hlakka líka til að fara til
Færeyja, á G! Festivalið. Það er
besta hátíð í heimi, ekki bara út
af músíkinni, heldur bænum,
Götu. Þegar ég var þar fór ég
einu sinni út í runna að pissa. Á
meðan ég var að kom karl út úr
runnanum og bauð góðan daginn
– þá var ég að pissa í garðinn
hans. Hann benti mér á, í góðum
fíling, að húsið væri opið og mér
væri velkomið að pissa bara í
klósettið hans. Ég hélt náttúru-
lega að hann væri að grínast og
baðst afsökunar. Svo var hann
ekkert að grínast. Hann sagði að
það væru öll hús þarna opin og
fólki velkomið að fara inn og
nota klósettið – og hjá honum og
bróður hans gætum við líka farið
í ísskápinn og sótt okkur bjór
eða lagt okkur í sófanum, eða
hvað sem er,“ segir Öddi frá, en
hann segist gjarnan vilja sjá svip-
aðan anda á Ísafirði í kringum
Aldrei fór ég suður.
„Vestfirðingar eru sérlundaðir
og skemmtilegt fólk. Það væri
geðveikt ef það væri hægt að
virkja þessa stemningu meira, að
bærinn sé bara í afmælisveisl-
unni,“ segir hann. „Það er það
sem er svo skemmtilegt – fyrir
aðkomufólk líka. Bærinn er ekki
bara hylki utan um einhverja há-
tíð, heldur gæti þetta verið lífæð
– að það sé gaman að koma
hingað út af fólkinu. Þess vegna
langaði okkur líka að hluta til að
opna þetta og fá Ísfirðinga meira
með okkur í hin og þessi verk-
efni,“ segir Öddi, sem elur annars
þann draum í brjósti sér að geta
lagt hátíðina í hendur annarra.
„Draumurinn væri að geta sagt
sig frá þessu og verið bara gestur.
Ekki spurning. Rúna hefur stund-
um ekki séð eitt einasta atriði.
Og ég hef ekki borðað páskaegg
með strákunum mínum í mörg
ár. Ég veit að þannig er það hjá
okkur öllum í nefndinni góðu,“
segir hann og brosir.
Og þar með, á meðan upp-
hafstónar Hagléls hljóma í út-
varpinu, lýkur spjallinu á hafn-
arkontórnum. Áhugamenn um
Aldrei fór ég suður geta hins
vegar hlakkað til komandi páska,
og þeir sem vilja leggja sitt af
mörkum geta haft samband við
rokkstjórann Jón Þór, eða rétt
upp hönd á Facebook-síðu hátíð-
arinnar. Hver veit nema aðstoð-
armaður úr klósettnefnd þetta
árið geti orðið arftaki Ödda og
félaga þegar fram líða stundir.