Bæjarins besta - 07.04.2011, Síða 14
14 FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 2011
Bann við dragnótaveiðum út af Ströndum tekur gildi 15. apr-
íl og stendur til og með 31. desember 2015. Sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðuneytið hefur gefið út reglugerð þess eðlis. Verða
þá allar veiðar með dragnót bannaðar á eftirfarandi svæði: Inn-
an línu sem dregin er frá Rana í Hornbjargi 66°27,3´N - 022°
24,1´V í Selsker 66°07,5´N - 021°30,0´V og þaðan í Gjögurvita
65°59,3´N - 021°19,0´V allt árið. Brot á ákvæðum reglugerðarinn-
ar varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga um veiðar í
fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum. Með mál út
af brotum skal farið að hætti opinberra mála.
Dragnótaveiðar bannaðar
Norrænar handverksbúðir verða haldnar á Þingeyri í sumar
á vegum Heimilisiðnaðarfélags Íslands í samstarfi við Þjóð-
búningafélag Vestfjarða. Í sumarbúðunum verður boðið upp á
námskeið fyrir alla aldurshópa m.a. námskeið í jurtalitum,
vattasaum, útskurði, eldsmíði og íslenskri matargerð. Þá verður
boðið upp á fyrirlestra á milli námskeiða auk þess sem haldnar
verða sýningar, kvöldvökur og í dagsferð um Arnarfjörð. Þátt-
takendur koma frá öllum Norðurlöndunum og fer kennslan
fram á skandinavísku.
Handverksbúðir á Þingeyri
Kosning til embættis vígslubiskups í Skálholti lýkur á föstu-
dag. Gert er ráð fyrir að talið verði miðvikudaginn 13. apríl og
að niðurstöður liggi fyrir samdægurs. Fimm prestar eru til-
nefndir í kjörinu þar á meðal sr. Agnes M. Sigurðardóttir, sókn-
arprestur í Bolungarvík og prófastur í Vestfjarðaprófastdæmi.
Auk hennar gefa kost á sér sr. Jón Dalbú Hróbjartsson, sr.
Kristján Valur Ingólfsson, sr. Sigrún Óskarsdóttir og sr. Karl
V. Matthíasson, vímuvarnarprestur og fyrrum prestur á Suður-
eyri, Tálknafirði og Ísafirði. Nýr vígslubiskup verður vígður á
Skálholtshátíð 17. júlí.
Sr. Agnes gefur kost á sér
Eva Margrét Kristjánsdóttir leikmaður KFÍ hefur verið valin
í landslið stúlkna yngri en 15 ára. Er hún meðal tólf leikmanna
sem Tómas Holton þjálfari, hefur valið til að taka þátt í sterku
móti í Kaupmannahöfn í sumar. Ísland hefur tekið þátt undan-
farin ár og sigruðu meðal annars mótið fyrir tveimur árum í
flokki drengja en mótið mun vera fyrir bæði kynin í fyrsta sinn
í ár. Síðasta ár léku stelpurnar nokkrar leiki við jafnöldrur sín-
ar í danska landsliðinu. U15 er fyrsta stig í landsliðsstarfi KKÍ
og undanfari U16 liðanna sem taka þátt í Norðurlandamótinu
ár hvert. Eva hefur staðið sig vel í leikjum með KFÍ í vetur þrátt
fyrir að vera aðeins 14 ára.
Eva valin í U15 ára landslið
Hlaða batteríin í sumar
á Kirkjubóli í Bjarnardal
Sjónvarpshjónin Þóra
Arnórsdóttir og Svavar
Halldórsson ætla að reka
litla bændagistingu í
Bjarnardal í Önundar-
firði í sumar. „Við fáum
svo sem lítið út úr því
nema bara fyrir kostn-
aði enda er það sam-
veran sem við erum að
leita eftir,“ segir Svavar
í viðtali við helgarblað
DV. Hann segist mjög
spenntur fyrir verkefn-
inu og að öll fjölskyldan
muni hjálpast að við
verkefnið. „Stóru stelp-
urnar munu fá sín verkefni og smá laun fyrir það. Þær verða í
því að undirbúa morgunmatinn og einhverju fleira. Þetta verður
svona fjölskylduframtak að halda staðnum gangandi og við
hlökkum mikið til. Þannig ættum við Þóra að geta hlaðið
batteríin og mætt tvíelfd til leiks eftir sumarfríið.“
Auglýsing
um kjörfund 9. apríl 2011
Tilkynning frá kjörstjórn Bolungarvíkurkaupstaðar
Þjóðaratkvæðagreiðsla um samþykkt eða synjun laga nr. 13/2011,
fer fram laugardaginn 9. apríl 2011.
Kjörfundur þann 9. apríl 2011 verður haldinn í fundarsal Ráðhúss
Bolungarvíkur að Aðalstræti 12.
Kjörfundur hefst kl. 10:00 árdegis og stendur til kl. 22:00 síðdegis.
Bolungarvík, 30. mars,
Kjörstjórnin í Bolungarvík.
Á leikárinu 2009/2010 sóttu
1.500 Vestfirðingar sýningar
áhugaleikfélaga í fjórðungnum.
Samkvæmt samantekt Hagstofu
Íslands á leikhúslífi landans voru
á síðasta ári starfandi tvö áhuga-
leikfélög á Vestfjörðum og settu
þau upp tvær uppfærslur sem
sýndar voru 15 sinnum. Þetta
þýðir að meðalfjöldi sýningar-
gesta á Vestfjörðum var 100 tals-
ins á síðasta ári. Þegar miðað er
við íbúafjölda í fjórðungnum
sóttu tveir af hverjum tíu íbúum
sýningar áhugafélaganna sem er
tvöfalt hærra hlutfall en á land-
inu öllu. Á Vestfjörðum er líka
starfandi einn atvinnuleikhópur,
Kómedíuleikhúsið, en tölur um
gesti og uppfærslur leikhópsins
eru ekki með í þessum tölum Hag-
stofunnar.
Þegar litið er til sögunnar hef-
ur leikhúslífið á Vestfjörðum oft
verið líflegra en síðastliðin ár. Leik-
árið 2001/02 voru gestir leikhús-
anna 6.810 sem þýðir að 9 af
hverjum 10 Vestfirðingum hafi
sótt uppfærslur leikfélaganna. Þá
má sjá að áhugaleikfélögum hefur
fækkað nokkuð hratt síðastliðna
tvo áratugi. Leikárið 1991/92 voru
starfandi sjö áhugaleikfélög í
fjórðungnum og settu þau upp 10
uppfærslur sem sýndar voru 68
sinnum. – kte@bb.is
Vestfirðingar eru dug-
legir að sækja leikhús
Almenn skynsemi
er besta forvörnin
Vírusvarnir mega sín lítils þeg-
ar notendur velja sjálfir að virkja
forrit með því að smella á hlekki
á netinu. Björn Davíðsson, þró-
unarstjóri hjá tölvuþjónustunni
Snerpu á Ísafirði, segir „almenna
skynsemi“ seint verða ofmetna
sem forvörn á internetinu. Fólk
sem notar samskiptavefinn Face-
book kann að hafa orðið vart við
nokkra aukningu á því að jafnvel
grandvörustu menn sendi frá sér
það sem virðist vera tenglar í
vafasamt efni á vefnum. Full
ástæða er til að sýna aðgát í þess-
um efnum, jafnvel þótt einungis
virðist vísað á saklaust grín.
Í samtali við Fréttablaðið segir
Björn algengt að fólk þurfi að
setja upp kerfisviðbætur til að
skoða efni á netinu, svo sem
Microsoft Silverlight, Flash eða
Shockwave. Mikilvægt sé hins
vegar að sýna aðgát þegar fólk er
beðið að samþykkja forrit sem
það ekki þekkir. „Við köllum
þetta trójuhesta, en það eru forrit
og forritsbútar sem virðast vera
annað en þeir eru,“ segir hann.
Fjölmargar útgáfur eru af slík-
um svikabrögðum á netinu, en
flestar eiga þær sammerkt að
fiskað er eftir upplýsingum úr
tölvu notandans, oftar en ekki
til þess að senda fleirum óvær-
una. „Og stundum kemur fyrir
að notandinn samþykkir notkun-
ina, jafnvel án þess að kynna sér
skilmála sem upp koma. Þar gæti
eins staðið að forritið ætli að nýta
sér upplýsingar úr tölvu notand-
ans,“ segir Björn, þessi leikur
hefur verið leikinn á Facebook,
þar sem fólk lætur plata sig gegn
loforðinu um að fá að sjá myndir,
myndskeið eða brandara.
Björn Davíðsson, þróunarstjóri Snerpu á Ísafirði.