Bæjarins besta - 07.04.2011, Page 17
FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 2011 17
Steinunn Knútsdóttir leikstjóri annar stofnenda Herbergis 408
listaverk. Við reynum að vera í
samstarfi við heimafólk, eða að
minnsta kosti fólk sem hefur ein-
hver tengsl við sýningarstaðinn.
Hugmyndin er að styrkja menn-
ingarlíf á hverjum stað líka, í stað
þess að senda leikara á hvern og
einn stað, til dæmis,“ útskýrir hún.
Árni Pétur Guðjónsson er í að-
alhlutverki í Reykjavík, Halldóra
Malin Pétursdóttir á Seyðisfirði
en Aðalbjörg Árnadóttir á Akur-
eyri. Á Ísafirði er það leikarinn
Ársæll Níelsson sem fer með
hlutverk Halldórs, en Bjarni Þór
Sigurbjörnsson sér um leikmynd
og útlitshönnun. Bjarni hefur haft
annan fótinn á Flateyri á síðustu
árum, en Ársæll er Vestfirðing-
um hins vegar að góðu kunnur
eftir starf sitt með Kómedíuleik-
erum við öll að vinna á sama
staðnum og klukkan er frekar
mikið á lofti,“ segir Steinunn og
brosir. „Við erum svolítið að
skoða millitímana og stilla þetta
saman. En það eru auðvitað leiðir
til þess að samstilla sýningarnar
þó að við séum á fjórum mismun-
andi stöðum,“ segir hún.
Fá heimafólk
í lið með sér
Frumsýning Jökla er 15. apríl,
en sýnt verður nokkrum sinnum
í dymbilvikunni, á Skírdag og
laugardegi fyrir páska. Þegar sýn-
ingum er lokið verður efnið hins
vegar unnið og klippt saman og
gert aðgengilegt á netinu.
„Það verður þá svolítið í lík-
ingu við hljóðverkið Herbergi
408. Fólk mun geta nálgast það á
netinu og við munum þá texta
verkið líka. Internetið er alþjóð-
legur vettvangur og þannig getur
fólk alls staðar að úr heiminum
komið í leikhúsið okkar,“ bendir
Steinunn á.
Fjöldi fólks kemur að undir-
búningi og sýningu Jökla og
Steinunn segir hópinn hafa reynt
að nýta sér hæfileika heimafólks
á hverjum stað. „Ég og Hrafn-
hildur Hagalín erum handritshöf-
undar og svo erum við með fullt
af samstarfsfólki um allt land.
Það er að mestu leyti myndlist-
arfólk sem hefur umsjón með
sjónræna hlutanum, svo hver
sýning er í raun eins og sjálfstætt
húsinu.
Steinunn hefur gert internetið
að viðfangsefni sínu og miðli
áður. „Árið 2003 vann ég sýning-
una Aurora Borealis með leik-
hópnum Lab Loki í samstarfi við
leikhúsið Kassandra Production
í Danmörku, þar sem við settum
upp sýningar í báðum löndum
sem töluðust á yfir hafið,“ segir
hún frá.
„Ég er hins vegar ekki bara
hrifin af internetinu sem miðli,
heldur líka sem rými. Í leikhúsinu
erum við nefnilega alltaf að vinna
með rými. Internetið er líka stað-
ur þar sem fólk eyðir miklu af
sínum tíma og þar er til dæmis
orðinn stór vettvangur fyrir
menningarneyslu – öll neysla
hefur færst mikið yfir á netið.
Fólk er ekki eingöngu að sækja
sér afþreyingu þar, heldur líka
menningu,“ útskýrir Steinunn.
„Þess vegna finnst mér það mjög
eðlilegt að skoða netið sem vett-
vang fyrir ýmiss konar gjörn-
inga,“ bætir hún við.
Frá því að hún vann sýninguna
Aurora Borealis fyrir átta árum
hefur hins vegar ýmislegt gerst
hvað varðar tæknimál. „Tæknin
var allt önnur þá, það er mun
auðveldara að gera þetta núna,“
segir Steinunn og hlær við. „Þá
vorum við að glíma mikið við
„delay“-vandamál. Ef einhver
sagði eitthvað þurfti að bíða að-
eins þangað til það heyrðist á
hinum staðnum. Í dag er ekkert
mál fyrir okkur að tala saman og
halda fundi í gegnum netið. Þó
að við séum sitt í hverjum lands-
hluta getum við talað saman á
netinu og öll verið í mynd,“ segir
Steinunn.
„Það er mjög spennandi að
fylgjast með því hvernig tækn-
inni fleygir áfram. Það eru alltaf
að opnast nýjir möguleikar,“
bætir hún við. Þróunin einskorð-
ast þó ekki við tæknileg atriði,
heldur hefur internetið sjálft með
árunum öðlast breyttan sess. Allt
það sem þar er að finna eignast
sífellt stærri þátt í lífi mannsins,
sem sækir í dag mun fleira en
upplýsingar á veraldaravefinn.
„Þetta er ekki lengur spurning
um formtilraunir, heldur er þetta
þannig í dag að sögur gerast
mikið á netinu. Fólk gerir allt á
netinu, löglegt og ólöglegt, það
elskast og hatast og afgreiðir öll
sín mál og sinnir flestum sínum
þörfum í netheimum. Þessi staður
sem veraldarvefurinn er, er orð-
inn nýr vettvangur fyrir mannleg
samskipti,“ segir Steinunn.
„Í tilfellum eins og hjá persón-
unum í Jöklum getur fólk lifað
lífi sínu að miklu leyti á netinu.
Þar á það sín samskipti. Fyrir því
fólki er netið mun meiri veruleiki
en það sem er fyrir utan hurðina.
Þar eigum við samskipti, finnum
ástina, þrána og allt það sem við
erum alltaf að fjalla um í leik-
húsinu í heild sinni,“ segir Stein-
unn.
Nánari upplýsingar um verkið
má nálgast á heimasíðunni www.
herbergi408.is.
– Sunna Dís Másdóttir.
Leikhópurinn sem tekur þátt í verkinu. Árni Pétur Guðjónsson,
Halldóra Malin Pétursdóttir, Aðalbjörg Árnadóttir og Ársæll Níelsson.