Bæjarins besta - 07.04.2011, Side 18
18 FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 2011
Krossgáta og Vestfirðinga.
Höfundur: Hafliði Magnússon frá Bíldudal.
Lausn á síðustu krossgátu
Sykurmolar, teskeiðar
og plastpokar á safni?
Hugmyndir um svokallað Dellu-
safn á Flateyri hafa vakið mikla
athygli og hefur Jón Svanberg
Hjartarson, tilvonandi safnstjóri,
fengið loforð um tvö einkasöfn
til framtíðarvörslu. Þar er um að
ræða safn aldraðrar konu í Reyk-
javík sem hefur safnað teskeiðum
á ferðum sínum um heiminn.
Safnið telur yfir 300 teskeiðar
frá yfir 40 þjóðlöndum. Þá á Jón
Svanberg einnig gamalli ferða-
tösku sem er full af plastpokum
frá verslunum sem starfað hafa á
Ísafirði síðustu áratugi.
„Það er klárt að þar leynast
gullmolar enda um hluti að ræða
sem fæstir hafa haft rænu á ða
halda upp á,“ segir í bréfi Jóns
Svanbergs til bæjaryfirvalda. „Þá
hafa menn lýst áhuga á að koma
upp pennasafni, járnmódelsafni
með nákvæmar eftirlíkingar
vinnuvéla- og vörubifreiða.
Einnig er hugsanlegt að sýnt
verði sykurmolasafn, tóbaksum-
búðasafn frá hernámsliðinu sem
var á Flateyri í síðari heimstyrj-
öld, og svo framvegis,“ segir í bréf-
inu þar sem Jón Svanberg ítrekar
beiðni um styrk.
Eins og komið hefur fram hefur
hann farið þess á leit við Ísafjarð-
arbæ að fá húsnæðið sem áður
geymdi skrifstofur Flateryrar-
hrepps og bóksafn, leigt án end-
urgjalds til þriggja ára á meðan
safninu er komið á koppinn. Ósk-
ar hann því eftir að ef Ísafjarðar-
bær samþykkir að leigja honum
húsnæðið að gengið verði frá því
sem fyrst.
Jón Svanberg segir hugmynd-
ina hafa kviknað þegar hann fór
að velta fyrir sér hvaða mögu-
leikar gætu verið í boði til að
skapa störf á Flateyri. Segist hann
hafa til nokkurra ára haft hug á
því að opna á Flateyri alþjóðlegt
lögregluminjasafn. Hann hefur
jafnframt bent á að safnið gæti
orðið aðdráttarafl fyrir ferða-
menn og gæti jafnvel átt mögu-
leika til tekjuöflunar þannig að
það geti orðið sjálfbært hvað varð-
ar launa- og húsnæðiskostnað.
Jón Svanberg Hjartarson, tilvonandi safnstjóri.