Bæjarins besta - 15.03.2012, Page 10
10 FIMMTUDAGUR 15. MARS 2012
„Mjög mikill. Almenningur í
Tælandi berst ekki jafn mikið á,
enda launin ekki há. Í síðustu
ferð heimsótti ég vinkonu mína
sem býr norðarlega í landinu.
Þar er fólk sjálfu sér nægt með
allt saman og stöðugt brosandi
og hlæjandi. Enda er Tæland kall-
að land brossins.“
Strangt eftirlit
Vinkona Finns hafði áður
heimsótt hann á Ísafjörð.
„Hún kunni mjög vel við sig
hér. Tælenskar konur sækja í að
kynnast mönnum frá hinum vest-
ræna heimi til að geta bjargað
sér og sínum fjárhagslega. Hún
kom hingað og ég fór svo út og
heimsótti hana núna um áramót-
in. En það er erfitt fyrir Tælend-
inga að koma hingað. Hún varð
að fá boðsbréf frá mér í gegnum
Útlendingastofnun og í framhald-
inu varð ég að sýna fram á að ég
gæti framfleytt henni þann tíma
sem hún dveldi hér, en hámarkið
er þrír mánuðir. Þetta er það
strangt og maður þarf helst að
gifta sig til að þetta liðkist. En
um daginn heyrði ég reyndar af
manni sem er giftur tælenskri
konu og ætlaði að bjóða tengda-
foreldrum sínum hingað í heim-
sókn til að hitta barnabörnin. Það
tók níu mánuði að koma því í gegn.“
- Gætirðu hugsað þér að búa í
Tælandi?
„Já, ég gæti það. Enda hittir
maður fullt af Íslendingum sem
eru ýmist búsettir þar hálft eða
allt árið. Allir mjög ánægðir. Það
væri því ágætt að setjast í helgan
stein þarna þar sem meira verður
úr eftirlaununum.“
Golfæfingar í
sundlauginni
Nú er sól farin að hækka á
lofti, hvað er framundan?
„Ætli maður eyði ekki megn-
inu af vorinu og sumrinu á golf-
vellinum. Nú erum við golfarar
komnir með fína æfingaaðstöðu
á loftinu á sundlauginni. Þarna
er net til að slá í, fínn púttvöllur
og Auðunn Einarsson er að
kenna. Það er boðið upp á sér-
staka tíma fyrir karla, konur,
unglinga og börn. Fólk ætti því
að geta mætt í hörkuformi á völl-
inn í vor. Enda sumarið stutt hér
og leiðinlegt að missa kannski heil-
an mánuð í að komast almenni-
lega af stað,“ segir Finnur að lok-
um. - Huldar Breiðfjörð.
Húsfyllir var á Hlífarsam-
sætinu sem haldið var í Frí-
múrarasalnum á Ísafirði á
sunnudag. „Samsætið gekk
vonum framar, eins og alltaf.
Ætli það hafi ekki verið um
170-180 manns sem sóttu
það,“ segir Anna Karen Krist-
jánsdóttir, formaður Kvenfé-
lagsins Hlífar. Að venju var
boðið upp á skemmtidagskrá
en þar var m.a. að finna tón-
listaratriði frá nemendum
Tónlistarskólans á Ísafirði
auk þess krakkar frá Leikfé-
lagi Menntaskólans á Ísafirði
fluttu atriði frá söngleiknum.
Þá var Morfíslið MÍ með atriði
og Halldóra Björnsdóttir leik-
stjóri var með upplestur. Að
dagskrá tæmdri var stiginn
dans.
„Við Hlífarkonur viljum
þakka öllum þeim sem hjálp-
uðu til við að samsætið heppn-
aðist svona vel en að venju
voru margir sem aðstoðuðu,“
segir Anna Karen. Hlífarsam-
sætið hefur verið fastur liður
í starfsemi Kvenfélagsins
Hlífar í rúma öld. En það var
fyrst haldið árið 1907 er konur
buðu, gömlu fólki og þeim sem
áttu bágt, til matarveislu.
Hlífarsamsætið er í raun upp-
hafið að stofnun félagins árið
1910. – thelma@bb.is.
Eldri borgarar
skemmta sér