Bæjarins besta - 15.03.2012, Síða 14
14 FIMMTUDAGUR 15. MARS 2012
Tveir kaupmenn á Vestfjörð-
um hafa gert athugasemdir við
framkvæmd verðkönnunar Verka-
lýðsfélags Vestfirðinga sem fram-
kvæmd var á dögunum og greint
er frá hér að ofan. Annar þeirra
er Eyvindur Magnússon kaup-
maður í Hólakaupum á Reyk-
hólum. Hann segist vera mjög
hlynntur verðkönnunum en rétt
skuli vera rétt. Hann segir sjö
atriði vera röng varðandi verð-
könnun hjá hans verslun og það
geti ekki verið klaufamistök. „Ég
ætla að taka það fram strax að ég
er mjög hlynntur verðkönnunum.
En að því sögðu er það mín krafa
að vandað sé til verka svo að upp-
lýsingar komist réttar til neyt-
enda. Að slá fram niðurstöðum
eins og er gert þarna er engum til
gagns og líka eru greinileg merki
um óvandvirkni í öðrum verslun-
um, Bónus er til dæmis með tvö-
falt hærra verð á súrmjólk en
aðrir sem ég efast um að sé rétt,“
segir Eyvindur en hann hefur sent
formlega athugasemd til félags-
ins.
Eyvindur segir að könnunin í
verslun hans hafi tekið 105
mínútur og reiknaði hann með
að það væri merki um vandvirkni.
Þá gerir hann athugasemd við
nokkur atriði. „Eftirtalin atriði
voru til í versluninni en eru skráð
með e sem þýðir væntanlega ekki
til: KEA skyrdrykkur með jarða-
berjabragði, Frón pólo kex,
Homeblest kex, þurrkaðar sveskj-
ur, túrtappar OB en þau voru til.
Síðan er ég skráður með ódýrasta
kílóverð Kellogs kornflex sem
væri gaman en ég hef ekki haft
Kellogs í rúmt ár (bara Coop).
Síðan er ég skráður með lang-
hæsta verð á strásykri en þetta er
verðið á 2 kg pk DDS sykri hér í
búðinni í stað kílóaverðs annars
staðar.“ Hann segir jafnframt að
ekkert hafi verið minnst á 100%
verðmerkingar í búðinni.
Eyvindur segist vona að önnur
könnun verði gerð fljótlega en
að meira samráð verði haft við
starfsmenn verslananna. „Verð-
kannanir á að gera í samstarfi við
verslunarfólk svo að rétta upp-
lýsingar komist til skila, þ.e.a.s.
að fylgja könnunarfólki um búð
og finna vörur fyrir það. Vona ég
að meiri vandvirkni verði höfð í
næstu könnun sem ég vona að
verði fljótlega,“ bætir Eyvindur
við.
Finnbogi Sveinbjörnsson, for-
maður Verkalýðsfélags Vestfirð-
inga, segir að verið sé að kanna
athugasemdina. Hann segir að
könnunin hafa verið unnin í sam-
starfi við Alþýðusamband Ís-
lands og unnið eftir verklags-
reglum þeirra. „Ástæðan fyrir því
að við birtum hana undir okkar
formerkjum en ekki þeirra er sú
að annars hefðum við þurft að
henda helmingnum af verslunum
út, því samkvæmt verklagsregl-
um þeirra þurfa að vera ákveðið
margar vörutegundir til í versl-
unum annars má ekki birta sam-
anburðinn. Við erum nú ekki með
margar stórverslanir hér á Vest-
fjörðum. Við höfum fengið óskir
frá íbúum á minni stöðunum um
að gerð yrði verðkönnun í þess-
um búðum því fólk sem ekki
hefur greiðan aðgang að stór-
verslunum, notast við þær. Var
því ákveðið að fara í verslanir
víða um Vestfirði og birta þær
undir okkar formerkjum.“
Finnbogi segir að margt hafi
komið í ljós við gerð könnunar-
innar og nefnir í því sambandi að
sumar vörur hafi ekki verið sömu
tegundar og í öðrum búðum. Í
einni verslun hafi brauð verið á
1.100 krónur. „Ég ákvað að birta
könnunina með þessum hætti fre-
kar en að birta könnun sem sýndi
eingöngu þrjár til fjórar stærstu
verslunarinar en þannig hefði það
verið ef við hefðum farið ná-
kvæmlega eftir reglum Alþýðu-
sambandsins.
Annar kaupmaður gerir athuga-
semd við það sem stendur í frétt
Verkalýðsfélagsins að einn versl-
unareigandi hafi neitað þátttöku
í könnuninni. Verslunum hafi
ekki staðið til boða að neita þátt-
töku. Finnbogi segir vinnuregl-
urnar vera þær að viðkomandi
skoðunarmaður fer á staðinn án
þess að gera boð á undan sér.
„Hann á að fara og finna vörurnar
en ef hann finnur þær ekki á hann
að spyrja starfsmenn. Ef starfs-
maður eða verslunareigandi vísar
skoðunarmanninum á dyr þá lýk-
ur könnuninni þar og gefið upp
að fyrirtækið hafi hafnað að taka
þátt. Öllum var þó frjálst að neita
að taka þátt.“ Hann bætir við að
hvergi hafi verið tekið illa á móti
skoðunarmönnum fyrir utan á
einum stað þar sem neitað var að
taka þátt.
Aðspurður hvort framhald
verði á slíkum könnunum segist
Finnbogi vonast til þess. „Þetta
er fyrst og fremst gert í því skyni
að vera á neytendavakt og ég
vonast til að við getum gert þetta
aftur. Þetta er náttúrulega heljar-
innar útgerð að framkvæma
svona könnun. Við vorum með
menn á öllum stöðunum sem fóru
út á sama tíma fyrir utan eina
undantekningu en sami maðurinn
fór bæði á Flateyri og Suðureyri.
En vonandi getum við gert það
fljótlega aftur en svona stór könn-
un hefur ekki verið gerð á svæð-
inu mjög lengi. Þetta hefur þegar
haft góð áhrif en bætt hefur verið
úr verðmerkingum á Suðurfjörð-
unum sem var ábótavant þegar
könnunin var gerð.“
Gera athugasemdir við verðkönnun
Yfir 100% verðmunur hjá
verslunum á Vestfjörðum
Bónus var oftast með lægsta
verðið þegar Verkalýðsfélag
Vestfirðinga kannaði verð á ýms-
um dagvörum í fimmtán mat-
vöruverslunum á Vestfjörðum.
Mikill verðmunur var á hæsta og
lægsta verði nær allra vöruteg-
unda, en skoðuð var ein lágvöru-
verðsverslun og 14 aðrar versl-
anir. Af þeirri 81 vörutegund sem
könnuð var, var yfir 100% verð-
munur á næstum helmingi þeirra,
en í þriðjungi tilvika var á milli
50-100% verðmunur á hæsta og
lægsta verði. Af þeim vörum sem
skoðaðar voru og voru verð-
merktar, var verslunin Hólakaup
á Reykhólum með hæsta verðið í
17 tilvikum af 81 og verslunin
Albína á Patreksfirði í 15 tilvik-
um. Bónus á Ísafirði var oftast
með lægsta verðið eða á 61 vöru-
tegund af 81 sem skoðaðar voru,
Kaupfélag Strandamanna á Hólma-
vík í átta tilvikum og Samkaup
strax í Bolungarvík í fimm til-
vikum.
Flestar vörurnar sem skoðaðar
voru í könnuninni voru fáanlegar
í Bónus og Samkaupum og næst
flestar fengust í Kaupfélagi Stranda-
manna á Hólmavík og hjá Sam-
kaupum strax í Bolungarvík.
Áberandi var hve illa verðmerkt
var í sumum verslunum. Af þeim
57 vörum sem verslunin Tálkna-
kjör á Tálknafirði átti til voru 29
ekki verðmerktar. Í versluninni
Vegamótum Bíldudal voru til 30
vörur sem skoðaðar voru í könn-
uninni en 28 þeirra voru ekki
verðmerktar. Hjá Bakkabúðinni
Flateyri voru til 34 vörur en 21
þeirra var óverðmerkt og Bjarna-
búð í Bolungarvík átti 34 vöru-
tegundir en 14 þeirra voru óverð-
merktar.
Af þeim 17 mjólkurvörum, osti
og viðbiti sem skoðaðar voru,
var verðmunurinn undir 50% í
11 tilvikum. Minnstur verðmun-
ur var á Fjörmjólk og var verð-
munurinn 14% milli lægsta verðs
sem var hjá Bónus og hæsta hjá
Hamónu á Þingeyri. Mestur verð-
munur var á E.F. pítusósu og var
verðmunurinn 80% milli lægsta
verðs sem var hjá Bónus og hæsta
sem var hjá Albínu á Patreksfirði.
Áberandi mestur verðmunur var
á ávöxtum, grænmeti, dósamat
og þurrvörum. Í öllum tilvikum
nema þremur var yfir 100% mun-
ur á hæsta og lægsta verði.
Mestur verðmunur var á maís-
baunum eða 347%. Þær ódýrustu
fengust hjá Bónus á Ísafirði en
þær dýrustu hjá Bjarnabúð í Bol-
ungarvík.
Könnunin var gerð á sama tíma
í eftirtöldum verslunum: Vega-
mót Bíldudal, Bakkabúðin Flat-
eyri, Hamraborg Ísafirði, Bjarna-
búð Bolungarvík, N1 Ísafirði,
Tálknakjör Tálknafirði, Hamónu
Þingeyri, Víkurbúðin Súðavík,
Fjölvali Patreksfirði, Hólakaup
Reykhólum, Albínu Patreksfirði,
Samkaupum Strax Bolungarvík,
Kaupfélagi Strandamanna Hólma-
vík, Samkaupum Úrval Ísafirði
og Bónus Ísafirði. Verslunin
Fisherman Suðureyri neitaði þátt-
töku í könnuninni.
– asta@bb.is
Bónus á Ísafirði var oftast með lægsta verðið.