Listin að lifa - 01.09.2000, Blaðsíða 7

Listin að lifa - 01.09.2000, Blaðsíða 7
um baksunds-fótatökum. Hér voru þó hængar tveir á: Þar sem félagar mínir gátu ekki farið í laugina sökum las- leika en heimafólk á Eiðum eingöngu fullorðið fólk og smábörn hafði ég engan jafningja til að æfa mig með og ég þar að auki miklu slakari í bak- en bringusundi leit þetta ekki „björgu- lega“ út fyrir mér. Eitthvað var ég þó að sulla í lauginni þessa daga, en hvort ég reyndi að hafa kút eða kork fyrir jafningja man ég ekki gjörla. Þá var það um nónbilið á öðrum degi hvítasunnu að kennarinn kallaði á mig. Kvað hann nú loks vera lag, fólk á mínu reki væri niðri í sundlaug og skyldi ég koma þangað og þreyta björgunarsundið. Eg þaut niður í bað- klefa fullur bjartsýni, dreif mig heldur en ekki kímileitar er ég birtist í gættinni, struku framan úr sér ný- komnar úr kafinu. Þær kunnu víst að synda! Atti ég að synda með stelpu? Og það í flík sem ekki var einu sinni brókarígildi! Og hún í litlu efnismeiri fatnaði! Aldrei fyrr hafði ég séð stelpu öðruvísi klædda en samkvæmt gild- andi siðalögmálum, í mesta lagi með bera leggi eitthvað áleiðis upp til hnjánna í góðviðri á sumardögum. Atti hin svo að horfa á og hlæja að? Eg sá greini- lega að þær skelli- kveðjuskyni, aldrei grunað að það væri svona viðkomu, svona hlýtt, svona mjúkt, svona lifandi. Snerting- in við það sendi undrasterka strauma um allan lrkama minn og þeir ollu ó- lýsanlegum stormsveipum innra með mér, öðrum ofan við þind, hinum neð- an við hana. Sveipir þessir sendu síð- an enn magnaðri strauma út í bjórinn á mér aftur og þaðan sló þeim inn á ný af sívaxandi krafti. Hér var hafinn darraðardans líffær- anna, sem mér var um megn að ráða við. Eg fann hálsinn á mér herpast saman og svelgdist á einhverju öðru en sundvatninu, saup hveljur, missti allt ráð handa og fóta, sleppti öllum tökum í miðri laug, kraflaði mig í dauðans ofboði að bakkanum og upp á hann, ætlaði að láta skjálfandi fætur forða mér inn í baðklefa, en kennarinn stóð í vegi fyr- úr hverri spjör, skolaði mig undir sturtunni, tróð mér í sundskýlunna og ætlaði að snarast inn í laug, en nam staðar í dyrunum af mikilli skyndingu eins og ég hefði gengið á vegg, fann blóðið þjóta fram í andlitið af miklum sprengikrafti, fékk sting í brjóstið, titr- ing í hné, og hjartað, sem tekið hafði ógnarviðbragð, síga ískyggilega hratt áleiðis niður í sundskýluna. í lauginni voru tvær stelpur af ná- grannabæ og ekki annað manna. Þær höfðu komið sér fyrir úti við annan hliðarbakkann og héldu í rennuna út- breiddum örmum. Kennarinn var kominn á vettvang og hafði sýnilega búið þær undir komu mína, því að þær urðu ekkert undrandi á svipinn en hlógu báðar innan í sér; þeim þótti víst þessi kafrjóði, hvimandi og heim- óttarlegi „herramaður“, sem þarna væflaðist fram á laugarbakkann, hrifn- ingarverður í hófi. Kennarinn benti annarri stúlkunni að koma að bakkanum, sem ég hímdi á, sagði mér að bjarga henni frá drukknun og ég fann hvernig hin glotti í gegnum mig. Skelfingu lost- inn klöngraðist ég niður í laugina og fikraði mig að stúlkunni, fálmaði til hennar í ofboði, greip undir kverkar henni, spyrnti í bakkann; lagði á djúp- ið upp á líf eða dauða og nú flissaði hin opinberlega. Aldrei fyrr hafði ég snert stúlkuhör- und, nema þá með handabandi í ir mér, stuggaði mér niður í laugina aftur og sagði að ég gæti þetta ...víst. Aftur lagði ég af stað með stúlkuna og aftur varð mér snertingin við þenn- an álfakropp um megn og ég sleppti honum eftir enn færri sundtök en áður. Kennarinn lét mig reyna a.m.k. einu sinni enn, kannski oftar, ég man það ekki, en gafst loks upp, hristi höfuðið og sagði mér að hætta þessum björg- unaraðgerðum. Þá voru stelpumar löngu orðnar vitlausar úr hlátri og ekki síður sú, er ég hafði margdrekkt en hin sem horfði á slysfarirnar. Sigurður Oskar Pálsson, Faxatröð lOb, Egilsstöðwn

x

Listin að lifa

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.